Bandaríkin hafna samningi SÞ um plastmengun ef hann tekur til olíuframleiðslu

Viðræður vegna samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um plast­mengun hafa gengið mjög erf­ið­lega síð­ustu dag. Gjá ríkir á milli Evr­ópu­sam­bands­ins og olíu­ríkja. Banda­ríkin munu ekki styðja samn­ing sem tekur hlut­verk jarð­efna­elds­neytis í plast­fram­leiðslu inn í mynd­ina.

Bandaríkin hafna samningi SÞ um plastmengun ef hann tekur til olíuframleiðslu
Samn­inga­við­ræður um plast­mengun ganga illa 98 pró­sent einnota plasts er fram­leitt úr efnum sem verða til í jarð­efna­elds­neyt­is­iðn­aði. Mynd: Shutterstock

Banda­ríkja­stjórn mun ekki sam­þykkja samn­ing um plast­mengun ef hann tekur til aðkomu jarð­efna­elds­neytis í plast­fram­leiðslu. Þetta kom fram í minn­is­blaði frá Banda­ríkj­unum í aðdrag­anda samn­ings­við­ræðna aðilda­ríkja Sam­ein­uðu þjóð­anna. En þær fara nú fram í Genf. 

Við­ræð­urnar sem 184 aðild­ar­ríki SÞ koma að hófust í síð­ustu viku og lýkur 14. ágúst. And­rúms­loftið er þungt og sagði diplómati í við­tali við AFP að hann sæi ekki neinn árangur af við­ræð­unum. 

Sádi-Arabía, Rússland, Íran, Kasakstan og Malasía eru meðal ríkja sem hafna bind­andi aðgerðum um að draga úr plast­fram­leiðslu.

Gjá hefur skap­ast á milli ríkja sem fram­leiða jarð­efna­elds­neyti — sem eru and­víg tak­mörk­unum á fram­leiðslu plasts sem fram­leitt er út frá jarð­olíu — og ein­inga eins og Evr­ópu­sam­bands­ins og lít­illa eyj­a­ríkja, sem berj­ast fyrir frek­ari tak­mörk­unum.

Við­ræð­urnar sem nú standa yfir má rekja til árs­ins 2022. Þá sam­þykkti Umhverf­is­þing SÞ að hefja við­ræður um samn­ing um plast­mengun sem …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Plast er frábært efni til margra hluta. Það er ekki plastinu að kenna að það lendir úti í náttúrunni, heldur fólki. Fræðsla getur gert bót á því en oft reinist best að nota "gulrót". Hvað með að setja endurvinnslugjald á plast?
    0
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Eitt af mörgu sem sýnir að Bandaríkin í dag eru á röngum megin við söguna - sem og alþjóðlegu olíufélögin sem enginn mun standa upp á móti, bæði í Bandaríkjunum og annars staðar. Einnig er vert að hafa í huga að gler er fullkomlega nothæf lausn fyrir umbúðir: við neitum einfaldlega að velja að nota það til fulls.
    0
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Is there any production of plastics that does not involve fossil fuels in one way or another? What does it mean if all production of plastics involves fossil fuels?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár