Stjórnandi hjá Skildi Íslands flytur ræðu á Austurvelli

Sveinn Hjörtur Guð­finns­son er einn af tals­mönnum hóps­ins Skjöldur Íslands og ræðu­maður á næsta fundi Íslands þvert á flokka. Hann hefur komið víða við í póli­tík, í Fram­sókn­ar­flokknum, Mið­flokknum og Lýð­ræð­is­flokknum.

Stjórnandi hjá Skildi Íslands flytur ræðu á Austurvelli
Sveinn Hjörtur Guð­finns­son Sveinn Hjörtur sinnti örygg­is­gæslu á fundi Íslands þvert á flokka 14. júní en Baldur Borg­þórs­son, sem hann hefur verið með í Mið­flokknum og Lýð­ræð­is­flokknum, er í bak­grunni.

Fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík, sem hætti í flokknum ásamt Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, mun flytja ræðu á fundi Íslands þvert á flokka á Aust­ur­velli á laug­ar­dag.

Sveinn Hjörtur Guð­finns­son er skýrasta teng­ingin á milli hóps­ins Íslands þvert á flokka, sem staðið hefur fyrir mót­mælum gegn umsækj­endum um alþjóð­lega vernd á Aust­ur­velli, og Skjaldar Íslands, hóps manna sem hafa vakið athygli fyrir að ganga ein­kenn­is­klæddir um mið­borg Reykja­víkur til að fylgj­ast með meintum glæpum þessa þjóð­fé­lags­hóps.

Sveinn Hjörtur er stjórn­ar­maður og pró­kúru­hafi Íslands þvert á flokka og einnig stjórn­andi Facebook-hóps Skjaldar Íslands og hefur komið opin­ber­lega fram fyrir hóp­inn í við­tölum. Hann hefur sinnt gæslu á mót­mælum Íslands þvert á flokka ásamt fleirum, meðal ann­ars öðrum tals­manni Skjaldar Íslands, Sindra Daða Rafns­syni, sem hlaut sex ára fang­els­is­dóm fyrir vopnað banka­rán í Danmörku árið 1999.

Skjöldur Íslands breytti nýverið um merki en það fyrra var járn­kross­inn sem var not­aður af nas­istum í Þýska­landi og nýnas­istum seinna meir, þó að táknið hafi einnig aðrar og eldri skír­skot­anir. „Allt tal um ras­ista, nas­ista, þjóð­ern­is­sinna og teng­ingu við merki okkar, letur og nafn hóps­ins er kjána­leg til­raun til að rakka okkur niður,“ sagði í yfir­lýs­ingu Skjaldar Íslands til fjöl­miðla.

„Múslimar farnir að ögra menn­ingu þjóða, níða sögu þeirra og fara í hálf­gert stríð“

Í yfir­lýs­ing­unni segir hóp­ur­inn umsækj­endur um alþjóð­lega vernd „níða og mis­nota sam­fé­lag okkar, inn­viði og menn­ingu“ og segja ástandið stjórn­laust. „Um allan heim eru t.d. múslimar farnir að ögra menn­ingu þjóða, níða sögu þeirra og fara í hálf­gert stríð með sínum aðferðum sem eru þannig að fólki blöskrar,“ sagði enn­fremur í yfir­lýs­ing­unni.

Umsóknum um alþjóð­lega vernd fækk­aði um meira en helm­ing á milli áranna 2023 og 2024 og fóru úr 4168 í 1944. Þeim virð­ist ætla að fækka enn meira í ár en það sem af er ári hafa 629 borist en aðeins 87 manns verið veitt alþjóð­leg vernd, sam­kvæmt töl­fræði Útlend­inga­stofn­unar. Meira en helm­ingur umsókna í ár varða fólk frá Úkraínu, eða 337, en þar á eftir hafa 74 umsóknir borist frá venes­ú­elskum umsækj­endum og jafn mikið frá palest­ínskum.

Fylgdi Sigmundi Davíð úr Framsókn

Eins og Heim­ildin hefur greint frá hafa ræðu­menn Íslands þvert á flokka leitað sjón­ar­miðum sínum far­veg innan stjórn­mála­flokka á Íslandi um nokk­urt skeið.

Sveinn Hjörtur hefur lengi látið sig stjórn­mál varða og var virkur í Fram­sókn­ar­flokknum um tíma og studdi Sigmund Davíð Gunn­laugs­son. Þegar Sig­mundur Davíð tap­aði í for­manns­kosn­ingum gegn Sigurði Inga Jóhanns­syni árið 2016 og stofn­aði Mið­flokk­inn lét Sveinn það verða sitt fyrsta verk að segja sig úr flokknum.

Hann bauð sig í kjöl­farið fram fyrir Mið­flokk­inn í borg­ar­stjórn Reykja­víkur og var þar vara­borg­ar­full­trúi ásamt öðrum for­sprakka Íslands þvert á flokka, Baldri Borg­þórs­syni. Báðir áttu eftir að segja sig úr flokknum, Sveinn árið 2021.

Fram­bjóð­endur Mið­flokks­ins 2018Sveinn Hjörtur og Baldur eru báðir ræðu­menn á fundi Íslands þvert á flokka.

„Þess­um kafla lífs míns er hér með lokið. Er ekki á leið í aðra flokka, ef ein­hver ætti það að vera yrði það HLH-flokk­ur­inn,“ skrif­aði hann á Facebook.

Í fyrra var Sveinn Hjörtur hins vegar búinn að skipta yfir í Lýð­ræð­is­flokk­inn undir for­ystu Arnars Þórs Jóns­sonar og var kosn­ing­ar­stjóri flokks­ins fyrir kosn­ingar í lok árs 2024. Þar var Baldur í fram­boði í 1. sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður.

Sigfús Aðal­steins­son, for­sprakki Íslands þvert á flokka, hefur hins vegar stutt Sjálf­stæð­is­flokk­inn alla tíð. Hann hefur varið hóp­inn Skjöld Íslands og sagt hann „hóp sem lætur sér annt um Íslend­inga og öryggi þeirra“.

Sigfús verður ræðu­maður á fund­inum á laug­ar­dag ásamt Sveini Hirti, Baldri, Davíð Berg­manni Dav­íðs­syni ung­linga­ráð­gjafa og ónefndum ræðu­manni sem ein­ungis er titluð „áhyggju­full móðir“.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár