Ráðherra kvartar yfir gjaldtöku við Kirkjufell

Hanna Katrín Frið­riks­son atvinnu­vega­ráð­herra segir gjald­töku á bíla­stæðum við ferða­manna­staði oft ósann­gjarna og jafn­vel ólög­lega.

Ráðherra kvartar yfir gjaldtöku við Kirkjufell
Hanna Katrín Frið­riks­son Ráðherra gagn­rýnir gjald­töku á ferða­manna­stöðum. Mynd: Bára Huld Beck

Atvinnu­vega­ráð­herra segir að fyr­ir­tæki sem sinna gjald­töku á bíla­stæðum við ferða­manna­staði þurfi að bæta upp­lýs­inga­gjöf og sam­ræma gjald­tök­una við lög. Stjórn­völd muni fara í laga­breyt­ingar ef lögin eru óskýr.

„Það var leið­in­leg send­ing sem fjöl­skylda úr Graf­ar­vogi fékk í kjöl­far frá­bærrar dags­ferðar um Snæ­fells­nes,“ skrifar Hanna Katrín Frið­riks­son atvinnu­vega­ráð­herra í færslu á Facebook í dag.

„Send­ingin barst í heima­bank­ann, rukkun upp á 5.750 krónur af því að þau stopp­uðu stutta stund við hið fal­lega Kirkju­fell.  Grunn­gjaldið var 1.000 krónur, en þar sem ekki var greitt innan sól­ar­hrings bætt­ist við 4.500 króna van­greiðslu­á­lag og 250 króna færslu­gjald.“

Hún segir engan í fjöl­skyld­unni hafa tekið eftir neinum skýrum merkjum um gjald­skyldu eða leið­bein­ingum um hvernig greiða skyldi. „Þetta er ekki eins­dæmi,“ skrifar Hanna Katrín. „Kvart­anir vegna svip­aðra mála ber­ast bæði Neyt­enda­stofu og Neyt­enda­sam­tök­unum nán­ast viku­lega, þar sem fólk lýsir óljósri, ósýni­legri eða vill­andi gjald­töku sem kemur fram löngu eftir að ferð­inni er lokið.“

„Almenn­ingur á rétt á því að þessi mál séu í lagi“

Hanna Katrín seg­ist hafa skiln­ing á því að það sé dýrt að byggja upp og reka bíla­stæði. „Þess vegna á það ekki að koma á óvart þegar gjald er tekið fyrir afnot af stæðum,“ skrifar hún. „En ef fólk fær ekki skýrar upp­lýs­ingar um verð og greiðslu­skil­mála, þá hættir gjald­takan að vera sann­gjörn og jafn­vel lög­leg. Neyt­enda­stofa hefur í kjöl­far fjölda kvart­ana skoðað við­skipta­hætti nokk­urra bíla­stæða­fyr­ir­tækja. Í ljós hafa komið dæmi þar sem leið­bein­ingar um greiðslu eru óskýrar eða ófull­nægj­andi og auka­gjöld ekki kynnt fyr­ir­fram. Upp­lýs­inga­gjöf á reikn­ingum í heima­banka er líka oft mjög ábóta­vant.“

Hún segir að því hafi verið beint til við­kom­andi fyr­ir­tækja að lag­færa upp­lýs­inga­gjöf og sam­ræma gjald­tök­una við lög. „Stjórn­völd munu fylgja því fast eftir að þessar úrbætur nái fram að ganga. Ef lögin eru óskýr þá verður það lag­fært. Almenn­ingur á rétt á því að þessi mál séu í lagi.“

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár