Atvinnuvegaráðherra segir að fyrirtæki sem sinna gjaldtöku á bílastæðum við ferðamannastaði þurfi að bæta upplýsingagjöf og samræma gjaldtökuna við lög. Stjórnvöld muni fara í lagabreytingar ef lögin eru óskýr.
„Það var leiðinleg sending sem fjölskylda úr Grafarvogi fékk í kjölfar frábærrar dagsferðar um Snæfellsnes,“ skrifar Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra í færslu á Facebook í dag.
„Sendingin barst í heimabankann, rukkun upp á 5.750 krónur af því að þau stoppuðu stutta stund við hið fallega Kirkjufell. Grunngjaldið var 1.000 krónur, en þar sem ekki var greitt innan sólarhrings bættist við 4.500 króna vangreiðsluálag og 250 króna færslugjald.“
Hún segir engan í fjölskyldunni hafa tekið eftir neinum skýrum merkjum um gjaldskyldu eða leiðbeiningum um hvernig greiða skyldi. „Þetta er ekki einsdæmi,“ skrifar Hanna Katrín. „Kvartanir vegna svipaðra mála berast bæði Neytendastofu og Neytendasamtökunum nánast vikulega, þar sem fólk lýsir óljósri, ósýnilegri eða villandi gjaldtöku sem kemur fram löngu eftir að ferðinni er lokið.“
„Almenningur á rétt á því að þessi mál séu í lagi“
Hanna Katrín segist hafa skilning á því að það sé dýrt að byggja upp og reka bílastæði. „Þess vegna á það ekki að koma á óvart þegar gjald er tekið fyrir afnot af stæðum,“ skrifar hún. „En ef fólk fær ekki skýrar upplýsingar um verð og greiðsluskilmála, þá hættir gjaldtakan að vera sanngjörn og jafnvel lögleg. Neytendastofa hefur í kjölfar fjölda kvartana skoðað viðskiptahætti nokkurra bílastæðafyrirtækja. Í ljós hafa komið dæmi þar sem leiðbeiningar um greiðslu eru óskýrar eða ófullnægjandi og aukagjöld ekki kynnt fyrirfram. Upplýsingagjöf á reikningum í heimabanka er líka oft mjög ábótavant.“
Hún segir að því hafi verið beint til viðkomandi fyrirtækja að lagfæra upplýsingagjöf og samræma gjaldtökuna við lög. „Stjórnvöld munu fylgja því fast eftir að þessar úrbætur nái fram að ganga. Ef lögin eru óskýr þá verður það lagfært. Almenningur á rétt á því að þessi mál séu í lagi.“
Athugasemdir