Starfsfólk á útfarastofum: „Hinir látnu birtast í draumum mínum“

„Á einn eða annan hátt kemst ég í gegnum þetta. Ég tek róandi lyf, það er allt og sumt,“ sagði hin 59 ára gamla Svitlana Ostapenko, sem starfar á útfarar­stofu í Úkraínu.

Í borginni Sumy í norð­austurhluta Úkraínu gekk útfarar­stjórinn Svitlana Ostapenko fram og aftur á meðan hún bjó hina látnu undir þeirra síðustu ferð. Eftir fimm ára starf í útfarar­þjónustunni var hún orðin vön því að sjá lík, en sívaxandi fjöldi látinna, og þar á meðal ungs fólks sem lést í árásum Rússa, var farinn að yfirbuga hana. „Dauðinn gerir ekki greinarmun á ungum og gömlum,“ sagði hún grátandi við AFP.

Á útfarar­stofum í Úkraínu starfar fólk sem er sjálft að reyna að lifa stríðið af en verður ítrekað vitni að ofbeldis­fullum dauðsföllum í kjölfar innrásar Rússa, sem hófst snemma árs 2022, og ber vaxandi tilfinninga­lega byrði á sama tíma og það styður syrgjandi fjöl­skyldur.

Þar að auki hefur heimabær Ostapenko, Sumy, sem er nálægt landa­mærum Rússlands, orðið fyrir sprengju­árásum allan innrásar­tímann. Framlína rússneska hersins hefur fært bardagana í allt að 20 kílómetra nálægð. Íbúar borgarinnar ganga hjá án …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár