Háskólaprófessorar takast á um ísraelskan fræðimann sem var slaufað

Hag­fræð­ing­ur­inn Gylfi Zoega gagn­rýnir palest­ínu­mót­mæl­endur sem stöðv­uðu fyr­ir­lestur ísr­ea­lesk pró­fess­ors um gervi­greind. Hann segir að ekki eigi að koma í veg fyrir að fræði­menn geti lýst nið­ur­stöðum rann­sókna sem eru alls óskyldar stjórn­málum og styrj­öldum.

Háskólaprófessorar takast á um ísraelskan fræðimann sem var slaufað
Gylfi Zoega reyndi að rök­ræða við mót­mæl­endur en tókst ekki að sann­færa þá um að leyfa fund­inum að halda áfram. Mynd: Víkingur

„Það er ekki rétt að slaufa ein­stak­lingi vegna þjóð­ernis, kannski er hann einn af þús­undum sem mót­mælir rík­is­stjórn Ísraels, án þess að ég viti neitt um það,“ segir hag­fræð­ing­ur­inn Gylfi Zoega en hann þurfti að aflýsa fyr­ir­lestri með ísra­elska hag­fræð­ingnum Gil Epstein út af palest­ínu­mót­mæl­endum. Fyr­ir­lest­ur­inn átti að fara fram í fund­ar­sal Þjóð­minja­safns­ins í gær og fjalla um gervi­greind og hvaða áhrif hún getur haft á vinnu­mark­aði, en for­skriftin var: „Þegar gervi­greindin spyr manns­hug­ann: Hvers vegna ert þú hér?“ Ein lyk­il­spurn­ingin var hvort gervi­greind geti hjálpað vest­rænum sam­fé­lögum að bregð­ast við lægri fæð­ing­ar­tíðni og öldrun sam­fé­laga með því að auka fram­leiðni þeirra sem eru á vinnu­mark­aði. Annar háskóla­pró­fessor, Ingólfur Gíslason, lýsti yfir sigri eftir að fyr­ir­lestr­inum var slaufað vegna mót­mæla.

Sagður samsekur

Gil starfa hjá Bar Ilan háskól­anum í Ísrael og sam­kvæmt dreifi­riti sem var dreift á fund­inum, komu fram ásak­anir um að háskól­inn væri sam­sekur með þjóð­ar­morði …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Vel gert að sröðva fyrilesturinn! Gylfi vil kannski útskýra fyrir okkur af hverju það eru ekki daglegir fyrirlestrar Rússlenskra prófesora við Háskólann.
    Hættum þessari hræsni og lokum á allt sem frá Ísrael kemur!
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár