Trump segir Obama sekan um landráð

Banda­ríkja­for­seti forð­ast umræðu um tengsl sín við barn­a­níð­ing­inn Jeffrey Epstein með því að ógna Barack Obama með rann­sókn og fang­elsun.

Trump segir Obama sekan um landráð
Trump í dag Á fundi með for­seta Fil­ipps­eyja hélt Trump tölu um meinta sekt Baracks Obama Banda­ríkja­for­seta um land­ráð. Mynd: AFP

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti leit­að­ist í dag við að beina athygl­inni frá vax­andi gagn­rýni vegna með­höndl­unar stjórnar hans á kyn­ferð­is­brota­máli Jeffreys Epstein með því að setja fram full­yrð­ingar um að Barack Obama hefði reynt að fremja valda­rán.

„Hvort sem það er rétt eða rangt er kom­inn tími til að fara á eftir fólki,“ sagði Trump á fundi í Hvíta hús­inu í dag. 

Svarar Epstein-málinu með hótun gegn Obama

Ásökunum þessum, sem settar voru fram á for­seta­skristof­unni, fylgdi óvænt til­kynn­ing um að dóms­mála­ráðu­neyti Trumps myndi yfir­heyra fyrr­ver­andi sam­verka­mann­eskju Epsteins sem situr í fang­elsi.

Todd Blanche, aðstoð­ar­dóms­mála­ráð­herra, sagði í yfir­lýs­ingu á X að Ghislaine Maxwell, breskur félags­mó­gúll sem afplánar 20 ára dóm fyrir þátt­töku sína í meintu barn­a­níð­ings­kerfi Epsteins, yrði spurð um nýjar upp­lýs­ingar.

„Engin vís­bend­ing er úti­lokuð,“ sagði Blanche.

Hins vegar virt­ist þessi sýn á gagn­sæi vera hluti af sam­stilltu átaki Hvíta húss­ins og …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Þessi mesti kjaftaskur í sögu forsetaembættis BNA ætlar sér hvergi að gæta hófsemdar né kurteysis í garð forvera sinna. Fyrir honum vakir að vekja sífellt athygli á sjálfum sér en það er honum sjálfum einungis til mikils vansa og vanvirðingar.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár