Mengunarþoka frá gosinu liggur yfir landinu

Hæstu gildi brenni­steins­dí­oxíðs sem mælst hefur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frá upp­hafi eldsum­brota á Reykja­nesskaga.

Mengunarþoka frá gosinu liggur yfir landinu

Meng­un­ar­þoka hefur legið yfir stórum hluta lands­ins frá því að nýtt eld­gos hófst á Reykja­nesskaga síð­ast­lið­inn mið­viku­dag. Sér­fræð­ingar hjá Umhverfis- og orku­stofnun Íslands segja að hægur vindur, þoku­móða og mistur sé meg­in­or­sök þess að brenni­steins­ríkur gosmökk­ur­inn hafi legið sem ský yfir suð­vest­ur­hluta lands­ins. Umhverf­is­stofnun gaf fyrr í dag út rauða loft­gæða­við­vörun fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið og nágrenni, sem er hæsta stig við­bún­aðar. Með deg­inum hefur þó létt aðeins á móð­unni. 

„Það er alger móða yfir stórum hluta lands­ins,“ sagði Hlynur Árnason, sér­fræð­ingur hjá Umhverfis- og orku­stofnun. „Venju­lega er mik­ill vindur sem flytur meng­un­ina frá, en núna er nán­ast logn. Mengunin hangir kyrr yfir land­inu.“

Mengunin stafar að mestu leyti af brenni­steins­dí­oxíði sem gýs úr gíg­unum, en það umbreyt­ist í and­rúms­lofti í súlfatagnir sem mynda svo­kall­aða gosmóðu eða „blá­móðu“. Þó að efnið sé ekki talið eitrað við núver­andi styrk, getur það verið mjög ert­andi fyrir önd­un­ar­færi, sér­stak­lega hjá börnum, eldra fólki …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Brennisteinsdíoxíð er væntanlega hvorugkyns eins og önnur loftkennd efni. Eignarfallið er því brennisteinsdíoxíðs en ekki brennisteinsdíoxíðar eins og stendur í greininni.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár