Sagði „nei“ við einu frumvarpi ríkisstjórnarinnar

Halla Hrund Loga­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, hvetur til sam­vinnupóli­tíkur og sagð­ist ekki taka þátt í mál­þófi stjórn­ar­and­stöð­unnar um veiði­gjöld. Hún hefur greitt atkvæði með mun fleiri málum rík­is­stjórn­ar­innar en á móti.

Sagði „nei“ við einu frumvarpi ríkisstjórnarinnar
Halla Hrund Loga­dóttir Þing­maður Fram­sókn­ar­flokks tók ekki þátt í mál­þófi stjórn­ar­and­stöð­unnar. Mynd: Golli

Halla Hrund Loga­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks og fyrr­ver­andi orku­mála­stjóri, sem bauð sig fram til for­seta vorið 2024, hefur aðeins sagt „nei“ við einu frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar.

Halla Hrund greiddi atkvæði gegn frum­varpi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um opin­ber fjár­mál. 

Að öðru leyti hefur hún ein­ungis greitt atkvæði gegn breyt­ing­ar­til­lögum stjórn­ar­and­stöð­unnar í ein­staka málum, afbrigðum um lengd þing­fundar og því að frum­varpi um veiði­gjöld yrði vísað til atvinnu­vega­nefndar eftir 1. umræðu.

Halla Hrund hefur sagt „já“ í 69,5% atkvæða­greiðslna, nei í 5,2% þeirra og setið hjá í 16,1% til­vika. Flest mál­anna sem hún studdi eru stjórn­ar­frum­vörp en í mörgum þess­ara mála sátu stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn hjá eða greiddu atkvæði gegn þeim.

Vill styttri ræðutíma og lengri undirbúning mála

Halla Hrund birti í gær færslu á Facebook um þennan fyrsta þing­vetur sinn þar sem hún hvatti til sam­vinnu­stjórn­mála að nor­rænni fyr­ir­mynd. Benti hún á að hún hefði ákveðið að taka ekki þátt í mál­þófi stjórn­ar­and­stöð­unnar í veiði­gjalda­mál­inu.

„Síðustu vikur þings­ins hafa vakið upp blendnar til­finn­ingar hjá mér,“ skrif­aði hún. „Ég vona að næst náist að ljúka þing­störfum þannig að sem mest sátt ríki á meðal þing­flokka. Betri bragur er á slíku en þeirri stig­vax­andi átakapóli­tík sem nú ræður ríkjum sem er óvið­un­andi og þingi ekki sæm­andi, sama hvaða flokki fólk til­heyrir. Við þurfum líka að gæta þess að halda skyn­sam­legu tungu­taki því það þjónar hvorki okkur né öðrum að líkja stöðu Íslands, frið­samasta ríki heims í alþjóð­legum sam­an­burði, við stríðs­á­stand eða að lýð­ræð­inu sé ógnað. Næg eru átökin í heim­inum þar sem slík orð­ræða á því miður við.“

„Næg eru átökin í heim­inum“

Benti hún á að hún hefði átt góð sam­töl við fólk í öllum flokkum, þar á meðal sessu­nauta sína Njál Trausta Frið­berts­son úr Sjálf­stæð­is­flokki og Snorra Másson úr Mið­flokki, auk þess að hafa lært mikið af Sigurði Inga Jóhanns­syni, for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins.

„Að mínu mati er sam­tal og sam­vinna mik­il­væg­asta aflið sem við þurfum að virkja,“ skrif­aði Halla Hrund. „Sjáum ekki óvini í hverju horni. Veljum aðra leið. Horfum heldur til sam­vinnupóli­tíkur Norð­ur­land­anna þar sem und­ir­bún­ingur mála er lengri með aðkomu ólíkra flokka og ræðu­tími í þing­inu því styttri. Ég þekki vel úr starfi mínu sem orku­mála­stjóri að frum­vörp geta tekið eitt til þrjú ár í und­ir­bún­ingi áður en þau verða að lögum. Það krefst þol­in­mæði og úthalds og mik­il­vægt er að horfa ekki ein­göngu á hraða afgreiðslu sem mæli­kvarða árang­urs. Best er að stíga vönduð skref í laga­setn­ingu auð­linda­mála sem stand­ast tím­ans tönn óháð því hvaða rík­is­stjórn situr, því árang­urs­rík og ábata­söm nýt­ing auð­linda krefst fyr­ir­sjá­an­legrar og traustrar umgjörðar.“

Kjósa
64
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Það þarf hugrekki til að fylgja hugsjónum sínum í stað þess að að gera það sem auðveldara er og fylgja bara ríkjandi straum. Allir skinja að Halla Hrund er vönduð hugsjónakona og öflugur leiðtogi sem fylgir sínum hugsjónum. Því er ekki skrítið að öllum flokkum finnust hún passa betur hjá sér en þar sem hún er. Allir vildu Hölluna eiga ;-) En það er Halla Hrund sem velur sjálf hvar hún vill vera. Hún með frábæra menntun og reynslu. Leiðandi rrödd samvinnu, sjálfbærni og skynsamlegrar nýtingar náttúruauðlinda, velferðar og friðar. Hún tekur ekki þátt í ómálefnalegu málþófi og líkar ekki við illmælgi. Hún gerir mikið gagn hvar sem hún er. Það verður spennandi að fylgjast með Höllu Hrund í framtíðinni.
    19
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár