Presturinn þurft að ýta ferðamönnum út úr kirkjunni

Jóhanna Magn­ús­dóttir, prestur í Vík­ur­kirkju, segir dæmi um að erlendir ferða­menn reyni að kom­ast inn í kirkj­una til að taka myndir skömmu áður en kistu­lagn­ing fer fram. Hún hafi þurft að breyta sér í dyra­vörð íklæddan hempu til að ýta þeim ágeng­ustu út úr kirkj­unni. Björg­un­ar­sveitin í Vík hefur um þriggja ára skeið séð um að loka veg­inum upp að kirkj­unni meðan útfarir fara þar fram.

Neyðst til að vera ströng í kirkjudyrunum
Neyðst til að vera ströng í kirkju­dyr­unum Jóhanna Magn­ús­dóttir, sókn­ar­prestur í Vík­ur­presta­kalli segir að hún og starfs­fólk kirkj­unnar þurfi að vera sér­stak­lega ströng við ágenga ferða­menn í kirkju­dyr­unum þegar kistu­lagn­ing sé að hefj­ast. Flestir ferða­menn séu þó til­lits­samir. Mynd: Golli

Hún hefur gnæft yfir Vík í 90 ár, rauða og hvíta kirkjan sem Guðjón Sam­ú­els­son, húsa­meist­ari rík­is­ins, teikn­aði. Byggð úr steini og „stendur á svo­nefndu Skeri við Vík­ur­kaup­tún, hátt­gnæf­andi á fögrum stað“. Þannig var Vík­ur­kirkju lýst í Lesbók Morg­un­blaðs­ins nokkrum dögum eftir að kirkjan var vígð. Það var í októ­ber 1934 en þremur árum fyrr hófust menn handa við að byggja kirkj­una og sagði í dag­blöðum á þeim tíma að þaðan væri einkar fag­urt útsýni. 

„Hátt­gnæf­andi á fögrum stað“ Vík­ur­kirkja er vin­sæll áfanga­staður erlendra ferða­manna sem hingað koma.

Og það er útsýnið sem hefur dregið gríð­ar­legan fjölda ferða­manna að kirkj­unni und­an­farin miss­eri. Erlendir áhrifa­valdar á sam­fé­lags­miðlum hafa lagt sitt lóð á vog­ar­skál­arnar til að ýta undir aðsókn­ina með því að hvetja ferða­menn sem ætla að flakka um Suð­ur­landið til að fara að kirkj­unni.  

Furðulegt háttalag sumra ferðamanna

…

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár