Þegar Persakóngur húðstrýkti sjóinn

Ír­an á langa sögu. Hér seg­ir frá ein­um drama­tísk­asta við­burði í forn­ald­ar­sög­unni þeg­ar Xerx­es Per­sakóng­ur hugð­ist leggja und­ir sig Grikk­land.

Þegar Persakóngur húðstrýkti sjóinn
Þegar náttúruöflin voru mönnum í fornöd andstæð báðu flestir sér vægðar hjá guðunum. En ekki Persakóngur. Hann leit svo stórt á sig að hann refsaði náttúruöflunum. Mynd: Alamy

Á dögunum meðan stríð Írans og Ísraels stóð yfir – með þátttöku Bandaríkjanna – þá hóf ég að skrifa sögu Írans í nokkrum flækjusögugreinum á netinu, og hér kemur framhaldið. Fyrri greinar finnið þið á vefsíðu Heimildarinnar.

Þar var komið sögunni að um það bil 500 árum fyrir upphaf tímatals okkar var risið í Mið-Austurlöndum mesta heimsveldi sögunnar fram að því, Persaveldi, kennt við íranska þjóð sem upphaflega bjó í Baktríufjöllum, þar sem Afganistan er núna, en flutti síðan til fjallanna norður af Hormuz-sundi og Persaflóa. Konungur Persa, Kýrus hinn mikli, stýrði sókn Persa gegn helstu stórveldum þess tíma og eftirmenn hans héldu sókninni áfram. Þar var komið árið 490 að Persar réðu löndum allt frá Líbíu í vestri til Baktríu og Indlands í austri, og frá Krímskaga og Úkraínuströndum í norðri til Súdans í suðri.

Undirbúningur í áratug

Árið 490 hugðist Daríus Persakóngur svo leggja Grikkland undir hið nýja …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Saga Írans 5: Kameldýrakarl frá Baktríu, frumlegasti trúarhöfundur sögunnar
Flækjusagan

Saga Ír­ans 5: Kam­eldýra­karl frá Baktríu, frum­leg­asti trú­ar­höf­und­ur sög­unn­ar

Í síð­ustu grein (sjá hana hér) var þar kom­ið sögu að stofn­andi Persa­veld­is, Kýrus hinn mikli, var horf­inn úr heimi. Það gerð­ist ár­ið 530 FT en áhrifa hans átti eft­ir að gæta mjög lengi enn og má vel segja að Kýrus sé enn af­ar vold­ug­ur í hug­ar­heimi Ír­ana. En nú spóla ég að­eins aft­ur í tím­ann og dreg fram ann­an...

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár