Sextán ára baráttukona gegn laxeldi í sjókvíum

„Mótmæli eru aðgengi­leg leið til að láta í sér heyra,“ segir Ísadóra Ísfeld umhverf­is­að­gerðasinni sem hóf í níunda bekk að berj­ast gegn lax­eldi í sjó­kvíum. Hún fer skap­andi leiðir til þess að koma skila­boðum sínum á fram­færi, semur rapp- og raf­tón­list um nátt­úr­una og finnst skemmti­legt að sjá vini sína blómstra í aktíf­ism­anum. Hún vill fræða börn og ung­linga um umhverf­is­málin og hvetja þau til að nota rödd­ina sína til að hafa áhrif.

Sextán ára baráttukona gegn laxeldi í sjókvíum
Ísadóra Ísfeld Byrjaði ung að efna til mót­mæla. Mynd: Golli

Ísadóra Ísfeld er 16 ára umhverf­is­að­gerðasinni sem fer sínar eigin leiðir, en þrátt fyrir ungan aldur hefur hún áorkað ansi miklu. Hún stendur fyrir mót­mælum gegn lax­eldi í sjó­kvíum og fræðir ferða­menn um umhverf­is­mál, semur tón­list með níger­ískum rapp­ara, kennir á leik­list­ar­nám­skeiði og keppir fyrir Íslands hönd í kín­versku. Hún er virk í ung­liða­starfi og var valin Ungur umhverf­is­sinni árs­ins 2025 og til­nefnd sem sjálf­boða­liði árs­ins hjá Lands­sam­bandi ung­menna­fé­laga árið 2024. Ísadóra von­ast til þess að fleiri börn og ung­lingar fái áhuga á umhverf­is­málum og vill að þau láti dug­lega í sér heyra á mót­mælum á Aust­ur­velli. 

Heim­ildin hitti Ísadóru og spjall­aði um umhverf­is­málin, afrekin og fram­tíð­ina yfir tebolla. Hún mætir blaða­manni glað­leg í fasi og í lit­ríkum fötum sem lífga upp á gráa íslenska sum­arið. Ísadóra er nýút­skrifuð úr Lauga­lækj­ar­skóla og vinnur nú sem aðstoð­ar­kenn­ari á leik­list­ar­nám­skeiðum fyrir börn og í Ísbúð Lauga­lækjar. Upp á síðkastið hefur hún …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár