Segir að geimvera gripi inn í fjölmiðlafrumvarpið

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar ósáttir við að Morg­un­blaðið og Sýn fái ekki hærri styrki.

Segir að geimvera gripi inn í fjölmiðlafrumvarpið
Jón Pétur Zimsen Er ósáttur við að þak á stuðn­ing til stærstu fjömiðla sé tak­mark­aður við 22% af allri styrkupp­hæð­inni. Mynd: Golli

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Mið­flokks­ins hafa í umræðu um fram­leng­ingu á styrkjum til einka­rek­inna fjöl­miðla í dag gagn­rýnt að stærstu fyr­ir­tækin, Árvakur og Sýn, sem gefa út Morg­un­blaðið og Vísi.is, fái ekki meira en 22% af heild­ar­upp­hæð­inni hvert, sam­kvæmt breyt­ingu á fyr­ir­komu­lag­inu.

Í fyrra hlutu Árvakur og Sýn 22,24% hvort af heild­ar­upp­hæð styrkja til einka­rek­inna fjöl­miðla. Ef þak hefði verið við 22% hefði hlut­deild þeirra minnkað sam­tals um 0,24% hvor mið­ill. En þakið hefur verið 25%.

Jón Pétur Zimsen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lýsti óánægju með að „frjálsu fjöl­miðl­arnir sem eru í mestri sam­keppni og geta veitt rík­is­fjöl­miðl­inum aðhald,“ fái skertan styrk. Hann vís­aði til þess að geim­vera myndi sjá sam­hengið.

„Ef það væri geim­vera sem kæmi hérna út og myndi bara horfa á þetta alveg kalt, án póli­tískrar hugs­unar, myndi bara meta málið: Við erum með rík­is­fjöl­miðil og svo erum við með tvo aðra, einu sem geta veitt aðhald. Rík­is­fjöl­mið­ill­inn er með marg­falt meiri rík­is­styrk, samt eru þessir tveir hér, það er tekið af þeim, tvö stöðu­gildi. En rík­is­fjöl­mið­ill­inn, það er ekki hróflað við honum. Og í þessu mætti auð­veld­lega segj­ast að það væru póli­tísk skila­boð.“

Þá sagði hann að eftir á að hyggja hefði minni­hluti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar, sem hann situr sjálfur í, átt að leggja til að Rík­is­út­varpið yrði skert sem nemur skerð­ingu á fram­lag­inu.

„Það hefði verið snið­ugt, og maður getur nú alltaf verið vitur eftir á, að koma þessu inn í minni­hluta­á­litið hjá okkur, að taka fjár­magn úr Rík­is­miðl­inum og hann yrði í raun­inni skertur til jafns við stóru miðl­ana sem hann er í sam­keppni við og veita honum aðhald. Það hefði verið jafn­ræð­is­sjón­ar­mið í því.“

Lækkunin væri 1,4 milljónir króna

Styrkir til einka­rek­inna fjöl­miðla voru sam­tals 550 millj­ónir króna í fyrra. Þar af fékk Árvakur hf, sem gefur út Morg­un­blaðið, 123.898.018 krónur, eða 22,24% fjár­veit­ing­ar­innar. Ef þak hefði verið við 22% hefði Árvakur fengið sam­tals 1,4 millj­ónum krónum minna.

Sýn fékk sömu upp­hæð og Árvakur, tæpar 124 millj­ónir króna.

Rík­is­styrkir til fjöl­miðl­anna tveggja hefðu því minnkað um tæp­lega 3 millj­ónir króna við lægra þak, sem hefðu dreifst til minni fjöl­miðla, en almenn lækkun rík­is­styrks kemur á móti.

Styrkupp­hæðin í ár, sam­kvæmt fjár­lögum, er í heild­ina lægri sem nemur 53 millj­ónum króna vegna aðhalds­kröfu sem dreif­ist á einka­reknu fjöl­miðl­ana. Þannig ákvað rík­is­stjórnin í fjár­laga­frum­varpi sínu að lækka fram­lag til einka­rek­inna fjöl­miðla, en auka fram­lag til Rík­is­út­varps­ins sem nemur 390 millj­ónum króna.

Óvissa er því um rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla, þar sem ekki er enn end­an­lega ákveðið hvort kostn­aður við rekstur síð­asta árs fæst end­ur­greiddur í ár.

Töpuðu milljón á dag

Árvakur tap­aði um einni milljón á dag í fyrra, þrátt fyrir rík­is­styrki, og fékk í vor aukið hlutafé frá útgerð­ar­fé­lögum sem eiga mik­inn meiri­hluta félags­ins. Árvakur hefur tapað öll rekstr­arár frá og með íslenska efna­hags­hrun­inu, ef frá er talið árið 2013, þegar hagn­aður var 6 millj­ónir króna.

Rík­is­út­varpið fær hins vegar 6,5 millj­arða króna fram­lag frá rík­inu, sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu.

„Sovéskt ástand“

Snorri Másson, þing­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi fjöl­miðla­maður sem stofn­aði Rit­stjór­ann.is, sagði að ekki væru „spenn­andi við­skipta­tæki­færi“ í fjöl­miðlum og verið væri að „halda áfram að sneiða að þessum miðlum“. Þá sagði hann yfir­burði Rík­is­út­varps­ins „hálf­part­inn sov­éskt ástand“, að fréttir væru bara í boði rík­is­ins. „Klukkan sjö færðu sann­leik­ann beint í æð, eins og rík­is­valdið sér hann.“

Full­trúar meiri­hlut­ans hafa svarað því til að ein­ungis sé um ein­falda fram­leng­ingu lag­anna að ræða, og að unnin verði ný fjöl­miðla­stefna næsta haust.

Hvað varðar þak á greiðslur til stærstu fyr­ir­tækj­anna svar­aði Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son, fram­sögu­maður meiri­hlut­ans í atvinnu­vega­nefnd:

„Það var vilji rík­is­stjórn­ar­flokk­anna að styðja betur við hér­aðs­frétta­miðl­anna.“

Í frum­varp­inu er það rök­fært með þeim hætti að þannig sé unnið gegn „frétta­eyði­mörkum“. „Eins og komið hefur fram þá hefur þró­unin ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum verið í þá átt að lækka hámarks­hlut­fall styrkja til ein­stakra fjöl­miðla, t.d. í Noregi og Svíþjóð, sem og að auka stuðn­ing við stað­bundna miðla til þess að tryggja að ekki mynd­ist svo­kall­aðar frétta­eyði­merkur, þ.e. tryggja aðgengi alls almenn­ings að vand­aðri og óháðri frétta­mennsku hvar sem það er statt á land­inu og þar þrí­fist fjöl­miðlar sem miðla af heima­byggð í heima­byggð.“

Fyr­ir­vari um hags­muni: Sam­ein­aða útgáfu­fé­lagið, sem gefur út Heim­ild­ina, hlýtur styrki til einka­rek­inna fjömiðla með sama hætti og aðrir.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    1.3 miljón minna! Það dekkar ekki einu sinni 1 mánaðar laun fyrir Davíð. Sykurpabbarnir verða þá bara að borga meira fyrir Dabba sinn.
    3
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Allir Jarðarbúar eru geimverur. Líka Jón Plasttappi Zimsen.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár