„Samstæðar konur geta lyft grettistaki“

„Það sem gildir er kvenna­sam­staða,“ segir Guðrún Ágústs­dóttir, bar­áttu­kona fyrir jafn­rétti og einn af stofn­endum Rauð­sokka­hreyf­ing­ar­innar sem fékk fálka­orðu á þjóð­há­tíð­ar­dag. Hún segir mik­il­vægt að halda bar­átt­unni áfram.

„Samstæðar konur geta lyft grettistaki“
Guðrún Ágústs­dóttir Mynd: Vinstri græn

Guðrún Ágústs­dóttir hlaut fálka­orð­una á þjóð­há­tíð­ar­dag fyrir störf sín í þágu jafn­réttis og kvenna­bar­áttu. Hún var einn af stofn­endum Rauð­sokka­hreyf­ing­ar­innar og hefur barist ötul­lega fyrir kven­rétt­indum í ára­tugi. Heim­ildin spjall­aði við Guðrúnu í dag, 19. júní, þar sem 110 ár frá því að konur fengu í fyrsta sinn kosn­inga­rétt á Íslandi. 

Blaða­maður óskar Guðrúnu inni­lega til ham­ingju með fálka­orð­una og spyr hvernig til­finn­ingin sé að hljóta svo merkan heiður. „Mín fyrstu við­brögð voru: „Fyrir hvað í ósköp­unum?“ Er það af því að ég eign­að­ist þrjú börn?“ segir Guðrún og hlær. „Ein­hvern­vegin í þess­ari kvenna­bar­áttu þá erum við að gera allt saman stelp­urnar og við eigum þetta allt saman. Það að vera tekin út úr og fá sér­staka við­ur­kenn­ingu er þannig séð ekk­ert sem við eigum að venj­ast,“ segir hún og bætir við: „Ég lít á þetta sem við­ur­kenn­ingu fyrir allar konur sem hafa verið að vinna við að bæta kjör og aðstæður kvenna í gegnum ald­irnar.“

„Ég lít á þetta sem við­ur­kenn­ingu fyrir allar konur sem hafa verið að vinna við að bæta kjör og aðstæður kvenna í gegnum ald­irnar.“
Guðrún Ágústs­dóttir

„Stutt síðan við vorum ekki gjaldgengar“

Ingi­björg H. Bjarna­sonFyrsta konan sem tók sæti á Alþingi.

Guðrún hefur verið ötul bar­áttu­kona í ára­tugi og því vert að spyrja hvernig henni þyki málin hafa þró­ast í gegnum árin. „Það hefur orðið bylt­ing, það verður að við­ur­kenna það,“ segir Guðrún og heldur áfram: „En aldrei erum við nú ánægðar. Aldrei er nóg gert finnst okkur.“ Hún flissar og blaða­maður finnur sterkan bar­áttu­and­ann skína í gegn.  

Í dag, 19. júní 2025, eru 110 ár frá því að konur fengu kosn­inga­rétt í fyrsta skipti á Íslandi. „Þá fengu bara konur sem voru orðnar fer­tugar að kjósa, en svo breytt­ist þetta,“ segir Guðrún. „Hver sigur sem unnin hefur verið á leið­inni hefur kostað mikla bar­áttu og langan tíma. Það er svo ótrú­lega stutt síðan við vorum ekki gjald­gengar í raun­inni.“ 

Rauð­sokka­hreyf­ingin var síðan stofnuð árið 1970 þegar hópur kvenna, Guðrún þeirra á meðal, kom saman og tók þátt í verka­lýðs­göng­unni á 1. maí. Hópurinn gekk aft­ast í göng­unni og bar stóra styttu af gyðj­unni Venus sem á stóð „Mann­eskja, ekki mark­aðsvara.“ Rauð­sokka­hreyf­ingin var starf­rækt til árs­ins 1982 og börð­ust Rauð­sokkur ötul­lega fyrir kven­rétt­indum, meðal ann­ars fyrir bættum kjörum kvenna á vinnu­mark­aði og frjálsu þung­un­ar­rofi. 

Rauð­sokkur á 1. maí 1970Styttan Venus með skila­boðin „Mann­eskja, ekki mark­aðsvara.“

„Þegar við stofn­uðum Rauð­sokka-hreyf­ing­una fórum við að tala um hvaða aðferðir við gætum notað til þess að væri hlustað á okkur,“ segir Guðrún og heldur áfram: „Auðvitað höfðu konur á undan okkur unnið marg­vís­lega og flotta sigra. En það gekk allt of hægt og það var ein­hver stöðnun í gangi í kringum 1970.“

„Við fórum af stað með aðrar aðferðir,“ segir Guðrún en Rauð­sokkur fóru ótroðnar slóðir í jafn­rétt­is­bar­áttu sinni. Til dæmis lýsir Guðrún því hvernig Rauð­sokkur ferð­uð­ust einu sinni með kvígu með sér í rútu til þess að mót­mæla feg­urð­ar­sam­keppni. 

„Fóst­ur­eyð­inga­lög­gjöf­inni var breytt 1975 í kjöl­far mik­illar bar­áttu hjá Rauð­sokka­hreyf­ing­unni og fleiri konum en við fengum ekki full yfir­ráð yfir eigin lík­ama árið 2019 – Hugsaðu þér?“ segir Guðrún. Árið 2019 voru lög um þung­un­ar­rof sam­þykkt á Alþingi sem eiga að tryggja að „sjálfs­for­ræði kvenna sem óska eftir þung­un­ar­rofi sé virt með því að veita þeim öruggan aðgang að heil­brigð­is­þjón­ustu.“ Sama ár voru sam­þykkt lög um kyn­rænt sjálf­ræði sem kveða á um „rétt ein­stak­linga til þess að skil­greina kyn sitt og miða þannig að því að tryggja að kyn­vit­und þeirra njóti við­ur­kenn­ingar. Einnig er lög­unum ætlað að standa vörð um rétt ein­stak­linga til lík­am­legrar frið­helgi.“ Guðrún segir að konur hafi staðið saman í bar­átt­unni um frelsi yfir eigin lík­ama þegar lögin voru sam­þykkt. 

Kvennafrídagur næstum ekki að veruleika

Blaða­maður spyr Guðrúnu um eft­ir­minni­legar aðgerðir á vegum Rauð­sokk­anna sem hún hafi tekið þátt í. „Eft­ir­minni­leg­asta og rót­tæk­asta aðgerðin var þegar að hug­myndin um að leggja niður vinnu kom fram hjá Rauð­sokk­unum,“ segir Guðrún. Hún bætir því við að hug­myndin hafi orðið til löngu áður en kvenna­frí­dag­ur­inn varð að veru­leika. En í raun fóru hug­myndir um kvenna­verk­fall að heyr­ast í tengslum við göng­una 1. maí 1970. „Það var ekki hægt að segja að vinna kvenna skipti engu máli, og að við þurfum ekk­ert að fá jafn há laun og karlar. Ef við leggjum niður vinnu þá vitum við að sam­fé­lagið getur ekki gengið,“ lýsir Guðrún.  

Kvenna­frí­dag­ur­inn 24. októ­ber 1975Fyrsti kvenna­frí­dagur í heimi.

Í kjöl­farið varð til sam­staða meðal kvenna en í aðdrag­anda verk­falls­ins var þó hætta á því að ekki yrði að aðgerð­inni stóru: „Sumar konur vildu ekki kalla þetta verk­fall,“ segir Guðrún en hóp­ur­inn átti afdrifa­ríkan fund sem jók sam­stöð­una að nýju: „Þá var ein kona sem kom labbandi niður stig­ann á fund­inum og sagði: „Hvað með að kalla þetta frí?“ og þar með tóku níu­tíu pró­sent kvenna á Íslandi þátt í kvenna­frídeg­inum 24. októ­ber 1975 – Það var heims­við­burður og er enn.“

Kvik­mynda­gerð­ar­kon­urnar Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir og Pamela Hogan gerðu heim­ild­ar­mynd um þennan merka við­burð en reglu­lega minn­ist fólk á mynd­ina við Guðrúnu: „Ég var að horfa á þig í bíó­mynd,“ hermir hún eftir og hlær. Arfleifð kvenna­frí­dags­ins lifir áfram, bæði á hvíta tjald­inu og í sam­fé­lag­inu á Íslandi – og víðar. „Við sem stóðum að þessu gleymum þessu aldrei og okkur hlýnar alltaf um hjarta­rætur þegar við hugsum til baka,“ segir hún glað­lega. 

Nýjar kynslóðir mættar til leiks

Blaða­maður var ekki fæddur þegar kvenna­frí­dag­ur­inn 1975 fór fram. En á þó minn­ingu frá fjöl­mennum kvenna­frídegi sem hald­inn var árið 2023 og veltir því fyrir sér hvernig Guðrúnu finn­ist að sjá nýjar kyn­slóðir mæta á slíkan við­burð og að arf­leifð Rauð­sokk­anna lifi áfram.

„Það var alveg stór­kost­legt á Arn­ar­hóli og niðri í bæ,“ segir hún um kvenna­frí­dag­inn 2023. Um yngri kyn­slóð­irnar sem halda bolt­anum á lofti segir Guðrún: „Mér finnst það alveg frá­bært og óskap­lega gaman.“ Hún bætir við: „Ég hef fulla trú á ungum konum á Íslandi, að þær muni passa upp á þetta allt saman og bæta við sigrum – ég er alveg klár á því. Það er mjög mik­il­vægt.“

Guðrún minn­ist á þætt­ina Vigdísi sem komu út á síð­asta ári, þegar við ræðum yngri kyn­slóðir femínista. „Það var verið að gagn­rýna pínu­lítið að þetta væru ekki sagn­fræði­legir heim­ild­ar­þættir,“ segir hún. En sumir áhorf­endur höfðu efa­semdir um það hvort mun­irnir í leik­mynd­inni hefðu verið í notkun á þeim tíma sem þætt­irnir ger­ast. „Þætt­irnir hafa gert alveg gíf­ur­lega mikið gagn,“ segir Guðrún: „Þeir hafa vakið svo mik­inn áhuga hjá ungum konum og líka körlum á öllu því sem gerð­ist þegar var verið að kjósa Vigdísi sem for­seta. Þessi mynd hefur hrist upp í ungu fólki finnst mér.“ Guðrún segir að það skipti mestu máli að ungt fólk sé að skoða þessi mál núna. „Ekki hvort að gard­ín­urnar hefðu átt að vera öðru­vísi.“  

Kvenna­frí­dag­ur­inn 24. októ­ber 2023Gríð­ar­legar fjöl­mennt á Arn­ar­hóli á kvenna­frí­dag­inn.

Fullkomnar konur í ófullkomnum heimi?

Blaða­maður spyr Guðrúnu einnig út í stöð­una í dag. „Það hafa verið miklir sigrar á leið­inni en það sem ger­ist alltaf við og við, er að það kemur bakslag,“ segir Guðrún og bætir við: „Nú er ýmis­legt sem betur mætti fara.“ Hún segir að inn­gild­ing sé meðal vanda­mála sem við glímum við en í því felst það hvernig við tökum á móti konum af erlendum upp­runa. Hún segir að þær séu útsettar fyrir: „Mansali og hrika­legri með­ferð.“ 

Einnig nefnir Guðrún bakslag í bar­áttu hinsegin fólks: „Ofsóknir gegn trans­fólki eru að stig­magn­ast hér á landi og víða um heim,“ segir hún. „Þar verðum við að vera dug­legri að standa saman kon­urnar og karlar líkar.“

Guðrún segir að kyn­bundið ofbeldi sé ennþá „djúpt sam­fé­lags­mein“ sem við­gengst. „Það er í raun­inni það sem eru mestu von­brigðin finnst mér,“ segir hún og heldur áfram: „Kvenna­at­hvarfið var stofnað 1982 og hefur staðið sig feiki­lega vel og er gríð­ar­lega mik­il­vægt í okkar sam­fé­lagi og Stígamót líka.“ En þrátt fyrir þessi mik­il­vægu fram­tök sér Guðrún „ekk­ert lát á kyn­bundnu ofbeldi.“

„Kannski erum við full­komnar en það er ekki full­komin aðstaða sem við búum við.“
Guðrún Ágústs­dóttir

Vinnu­á­lag á konur er líka meðal áhyggja. „Konur eru að vinna tvö­falt vinnu­á­lag og eru að brenna út af of miklu álagi. Talað er um þriðju vakt­ina sem við þurfum að skoða vel,“ segir Guðrún og bætir við: „Við er ekki ennþá búin að ná launa­jafn­rétti.“ 

„Við eigum alltaf að vera bestar hérna á Íslandi og allt á að vera best á Íslandi en það er ekki full­komið, við erum ekki full­komnar,“ segir Guðrún en veltir því svo fyrir sér að „kannski erum við full­komnar en það er ekki full­komin aðstaða sem við búum við.“  

Kvennasamstaðan lykilatriði

Í ljósi þess að það er bakslag í jafn­rétt­is­mál­unum spyr blaða­maður hvað við öll getum gert til þess að halda bar­átt­unni áfram og hvort Guðrún telji að það sé ein­hver eig­in­lega enda­stöð í jafn­rétt­is­bar­átt­unni.

„Ég vildi óska að ég væri með krist­alkúlu,“ segir Guðrún og hlær. „Við verðum bara alltaf að halda áfram og í hvert skipti sem við verðum vör við bakslag verðum við að stíga fram og tala og mót­mæla og færa rök fyrir okkar máli.“ Guðrún segir það mik­il­vægt að eiga góða fjöl­miðla sem hægt sé að treysta, bæði hér á landi og erlendis. „Það er eig­in­lega vand­inn okkar núna, það er erfitt að koma hlutum á fram­færi,“ segir Guðrún og vísar í það að fjöl­miðlaum­hverfið hafi verið mun minna í bar­átt­unni á árum áður. 

Guðrún segir það líka mik­il­vægt að sýna umburð­ar­lyndi: „Það er skortur á því núna,“ segir hún og bætir því við að mik­il­vægt sé að: „Vera góð hvert við annað.“ 

„Það sem gildir er kvenna­sam­staða. Við höfum náð mestum og bestum árangri þegar við höfum sýnt að við getum staðið saman þvert á flokka, lífs­skoð­anir og annað. Sam­stæðar konur geta lyft grettistaki,“ segir Guðrún.

Undir lok við­tals­ins spyr blaða­maður hvort það sé nú eitt­hvað annað sem að Guðrún vilji koma á fram­færi: „Ég segi bara áfram stelpur!“ 

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár