„Við vorum sprengikraftur“

Fimmtíu ár eru í dag liðin síðan rót­tækar bar­áttu­konur á rauðum sokkum tóku þátt í kröfu­göng­unni á bar­áttu­degi verka­lýðs­ins og stálu þar sen­unni, þótt þær gengju aft­ast. Á milli sín báru þær stærð­ar­líkneski af konu – Lýs­iströtu­stytt­una – og höfðu strengt borða um hana miðja sem á stóð: „Mann­eskja en ekki mark­aðsvara“. Gjörn­ing­ur­inn mark­aði upp­haf rauð­sokka­hreyf­ing­ar­innar sem átti eftir að hrista ræki­lega upp í fast­mót­uðu sam­fé­lagi næstu árin. Hér ræða fimm konur aðdrag­anda gjörn­ings­ins, áhrifum hreyf­ing­ar­innar og rauð­sokku­stimp­il­inn, sem þær bera enn í dag með stolti.

„Við vorum sprengikraftur“
Lýs­iströtu­styttan Konur á rauðum sokkum báru hana aft­ast í göng­unni þann 1. maí árið 1970. Það vakti mikla athygli, undran og jafn­vel reiði sumra. Mynd: Jón Þorleifsson

Fyrir fimm­tíu árum gátu aðeins ein­stæðar mæður fengið pláss fyrir börnin sín á dag­heim­ilum, eins og leik­skólar voru þá kall­aðir. Á þeim tíma töldu giftar konur ekki sjálfar fram til skatts, heldur voru tekjur þeirra færðar á skatt­fram­tal eig­in­mann­anna. Fátítt var að konur stund­uðu háskóla­nám og fast­mót­aðar venjur og hefðir stjórn­uðu sam­fé­lag­inu öllu. Hér eru aðeins nefndar nokkrar af þeim hömlum sem lífi kvenna voru settar. En þetta voru umbrota­tímar í heim­inum öllum og hingað til lands bár­ust sögur af rót­tækum hreyf­ingum kvenna, beggja vegna Atl­ants­hafs­ins, sem kröfð­ust breyt­inga. Ein þeirra sem hafði drauma sem rúm­uð­ust ekki innan veggja heim­il­is­ins var Gerður Ósk­ars­dóttir, sem árið 1970 var gift, vann sem kenn­ari og átti ung börn.

GerðurHún var alin upp á hefð­bundnu heimi og átti lengi fram eftir ævinni ekki von á öðru en að hún yrði heima­vinn­andi hús­móðir eins og mamma hennar.

Hún hafði snemma rekið sig á mis­réttið, svo sem eins og þegar hún fékk sum­ar­vinnu í frysti­húsi þar sem hún fékk greidd tals­vert lægri laun en karl­menn­irnir sem unnu svipuð störf og hún. Í kvenna­hópum sem hún til­heyrði, bæði vin­konu­hópnum úr Mennta­skól­anum í Reykja­vík og á kenn­ara­stof­unni, ræddu konur sín á milli að breyt­inga væri þörf. „Við vorum farnar að að spá í þetta, allar komnar með börn að ves­en­ast með þessa pössun og einmitt kannski að vinna fyrir eig­in­mönn­unum sem voru í lengra námi.“

Svo var það einn dag­inn að vin­kona hennar sem kenndi við Aust­ur­bæj­ar­skóla hafði sam­band og sagði Gerði frá því að hópur kvenna vildi skipu­leggja kröfu­göngu, í ætt við þær sem höfðu átt sér stað víða í Evrópu og í Banda­ríkj­unum. Hvort hún vildi ekki vera með. Hún þurfti ekki að hugsa sig um lengi. Tekin var ákvörðun um að bera Lýs­iströtu­stytt­una niður Laugaveg í 1. maí göngu verka­lýðs­ins. „Ég var í þessum hópi sem kom saman í kjall­ara nor­ræna húss­ins á vor­mán­uðum 1970 og ákváðum að ganga í göngu verka­lýðs­ins 1. maí. Það kom upp þessu brillj­ant hug­mynd að bera þessa stóru styttu af Lýs­iströtu úr leik­riti frá Mennta­skól­anum í Reykja­vík og vera með ein­hver spjöld. Það var rætt á þessum fundi í kjall­ar­anum hvað ætti að standa á þessum spjöldum. Við ákváðum að vera með þrennt. Mann­eskja, ekki mark­aðsvara, sem var þvert á þessa stóru styttu. Svo var það: Konur nýtið rétt­indi ykkar! og Vaknaðu, kona.“

Það var ljóð­skáldið Vilborg Dag­bjarts­dóttir sem átti hug­mynd­ina að því að nota stytt­una og setti líka aug­lýs­ingu í útvarpið: „Konur á rauðum sokkum, söfn­umst saman á Hlemmi klukkan 12.30.“ Og það gerði fjöldi kvenna, mun fleiri en þær sem höfðu tekið þátt í und­ir­bún­ingnum. Uppúr þessu varð Rauð­sokku­hreyf­ingin til. „Það bara steymdu til okkar konur – og ein­staka karl.“

Litin hornauga í stórfjölskyldunni

Það voru ekki allir hrifnir af Rauð­sokk­unum og fram­tíð­ar­sýn þeirra. Margar kvenn­anna fengu meira að segja bágt fyrir þátt­töku sína hjá sínum nán­ustu. Þáver­andi eig­in­maður Gerðar tók þátt í hreyf­ing­unni en það voru ekki allir jafn hrifnir. „Ég var alin upp mjög hefð­bundið á þeim tíma. Móðir mín var heima­vinn­andi hús­móðir og hafði alla tíð verið, faðir minn vann fyrir fjöl­skyld­unni, var höfuð fjöl­skyld­unnar og réði því sem hann vildi ráða. Bara hans nafn á bjöll­unni, bara hans nafn í síma­skránni og bara hann sem keyrði bíl­inn. Ég bjóst við að ég yrði líka heima­vinn­andi hús­móðir, lengi fram eftir aldri. Þannig var mitt umhverfi. Þetta var ekk­ert rót­tæk fjöl­skylda, þannig að þetta þótti mjög sér­kenni­legt hjá mér. Pabbi og mamma voru ekk­ert að fetta fingur út í þetta en ég fann í stærri fjöl­skyldu­boðum að þá var ég bara litin miklu horn­auga og allt mögu­legt var sagt upp í opið geðið á manni. Það var sagt að við værum frekar, eig­in­gjarnar, nenntum ekki að hugsa um börnin okkar og heim­ilið.“

Róttæk hugmynd um heilsdagsvistun

Sú hug­mynd rauð­sokk­anna, að konur ættu að vera jafnar körlum á öllum sviðum, þótti veru­lega rót­tæk að sögn Gerðar. Að giftar konur með börn gætu unnið fulla vinnu, tekið þátt í stjórn­málum og mótun sam­fé­lags­ins hafi þótt fárán­leg. „Ég var nú mikið í þessum dag­heim­il­is­málum. Við gerðum könnun í Kópavogi á þörf­inni, flotta könnun þar sem við bárum spurn­inga­lista í hús. Það kom nátt­úr­lega upp upp mikil þörf. Við kynntum þetta á opnum fundi í félags­heim­ili Kópavogs og bæj­ar­stjórn var boðið. Þeim fannst þetta alveg fárán­legt. Við sögðum: „Það þarf að byggja eitt dag­heim­ili á ári til alda­móta.“ Það var hlegið, sko. En svo var það gert. En það var ekki fyrr en uppúr síð­ustu alda­mótum sem að öll börn komust á leik­skóla hér á landi og í mörgum löndum er þetta bara útópía.“

Konur og börn í sama flokki

Eitt af því sem rauð­sokk­urnar börð­ust fyrir var að giftar konur yrðu skatt­lagðar sér­stak­lega, sem mörgum þótti mesti óþarfi. „Ég fyllti ekki út skatt­skýrslu. Við börð­umst fyrir því að allir yrðu skatt­lagðir. Ég var kenn­ari og svo fóru bara mínar tekjur á skatt­fram­tal manns­ins míns. Ég þurfti ekki einu sinni að skrifa undir. Þetta þótti rosa­lega rót­tækt, að fara að heimta þetta.“

Stjórn­mála­þátt­taka kvenna var lítil þegar rauð­sokk­urnar komu fram, aðeins 3 konur í borg­ar­stjórn og ein kona á þingi. Þær áttu þátt í að breyta því. Virðing fyrir störfum kvenna var hins vegar mis­mikil. Nokkru seinna, þegar Gerður var orðin virk í Alþýðu­banda­lag­inu og gegndi starfi skóla­stjóra í Nes­kaup­stað átti hún fund með nokkrum flokks­mönnum. „Þá var einn karl­inn, framá­maður, sem sagði: „Þetta er alveg hræði­legt, það eru ekk­ert nema konur og börn orðið í þess­ari fram­kvæmda­stjórn.“ Þannig að konur voru flokk­aðar eins og börn, enda var oft litið á konur eins og börn. Mér fannst ég upp­lifa það oft í mínum störfum í gegnum ævina að maður þótti ekki hafa vit á mál­unum, af því að maður var kona, og jafn­vel talað við mann svona eins og barn: „Já, já, þið þarna kon­urnar“ – ekki nefndar með nafni. Ég var oft í hópum þar sem voru ein­tómar karlar, nefndum eða eitt­hvað. Þeir mundu ekki hvað maður hét.“

Baráttan gott veganesti

Oft var bar­áttan hörð og þá fengu þær rauð­sokkur stundum að heyra það. „Stundum var hellt yfir okkur skömmum og gíf­ur­yrðum. En af því við vorum saman var svo mik­ill stuðn­ingur að það beit ekki svo á okkur. Mér finnst að ég hafi lært svo mikið á þessum árum. Ég lærði að taka við þessu og svara fyrir mig. Maður lærði mikið um sam­stöðu og sam­vinnu sem var dýr­mætt. Mér finnst ég hafa lært þetta og nýtt mér í minni stjórnun, því ég hef verið stjórn­andi meira og minna. Þetta var svo góður skóli.“ 

„Konur voru flokk­aðar eins og börn, enda var oft litið á konur eins og börn“

Þrátt fyrir að margt hafi breyst á fimm­tíu árum finnst Gerði sumt breyt­ast óþarf­lega hægt. „Maður var svo bjart­sýnn á þessum tíma. Ef maður sá ein­hver skref fram á við hélt maður að þetta myndi ganga miklu hraðar. Ég hefði ekki trúað því að við þyrftum að bíða í 30 ár eftir heils­dags­leik­skóla­dvöl fyrir börn, eða því að grunn­skól­arnir yrðu ein­setnir með mat í hádeg­inu, til dæmis. Og launa­mun­ur­inn. Það er ótrú­legt hvað hann er líf­seigur og er enn. Lægst laun­uðu stétt­irnar eru kvenna­stéttir, alveg eins og þá. Það er ótrú­lega hægt sem það gengur.“ 

Ófullnægðar mussukerlingar 

Ein þeirra sem bar Lýs­iströtu­stytt­una á þessum degi fyrir 50 árum var Guðrún Hall­gríms­dóttir. Hún segir frá því að það hafi verið líf­seigur mis­skiln­ingur að rauð­sokk­urnar vildu gera lítið úr því sem kven­legt væri. Sú mynd hafi hins vegar mark­visst verið dregin upp af þeim.

GuðrúnMeð tím­anum er henni farið að finn­ast að þær rauð­sokkur hefðu mátt sýna heima­vinn­andi hús­mæðrum meiri virð­ingu. Þær vildu að konur hefðu val en heima­vinn­andi hús­mæðrum fannst mörgum að sér sótt, í mál­flutn­ingi rauð­sokk­anna.

„Karl­arnir drógu upp mynd af okkur sem ófull­nægðum mussu­kerl­ingum, sem varð til þess að fræði­menn­irnir fóru af stað og drógu upp þessa mynd líka. Við hefðum viljað vera eins og karl­menn, sam­samað okkur karl­mönnum og trampað á öllu sem er kven­legt. Það var alls ekki rétt. Ég skal játa það að þegar ég varð aðeins eldri og skyn­sam­ari, að mér fannst við kannski ekki hafa sýnt heima­vinn­andi hús­mæðrum nægi­lega mikla virð­ingu. Við sögðum jú alltaf að konur eigi að hafa val en við hefðum kannski átt að hampa þeim svo­lítið meira, segja: „Þetta er ykkar val“ og „þið gerið alla þessu stór­kost­legu hluti“, því þeim fannst virki­lega að það væri sótt að þeim. Þær voru algjör­lega í vörn. Þeim fannst við vera að draga þær niður, gera lítið úr þeim og þeirra starfi. En það vissi auð­vitað eng­inn betur en þessar ves­al­ings vin­konur mínar með öll börnin sín og allar úti­vinn­andi hvað hús­móð­ur­störf voru.“

Hún man vel eftir því að margar af rauð­sokk­unum áttu í erf­iðum sam­skiptum við sína nán­ustu vegna þátt­tök­unnar í bar­átt­unni, þó ekki hafi það átt við um hana, sem sjálf var alin upp af rót­tækri móður. „Margar þarna áttu i miklum erf­ið­leikum í sam­skiptum við sína fjöl­skyldu. Þær komu úr afskap­lega borg­ara­legum aðstæðum og ruddu rót­tæka braut og áttu þá kannski bara í erf­ið­leikum í sam­skiptum við for­eldra og frænd­fólk.“ 

Og kannski eig­in­menn líka? „Já, alveg áreið­an­lega. Það var nú reyndar haldið því fram að þær hafi allar skilið en það var alls ekki rétt og margir eig­in­menn voru með okkur. Maður Gerðar þáver­andi var með okkur í byrjun og Þór Vig­fús­son, maður Hildar Hákon­ar­dóttur. Nú Flosi var með okkur, Ólafs. Það voru margir með okkur.“

Mömmurnar breyta heiminum

Rauð­sokka­hreyf­ingin leysti sjálfa sig upp árið 1982 en margar úr hópnum voru viðriðnar póli­tík, flestar í Kvenna­list­anum. Guðrún starf­aði um tíma í stjórn­ar­ráð­inu, þar sem kom í hennar hlut að til­nefna fólk í nefndir. „.Án þeirra [kvenn­anna í Kvenna­list­anum] hefði þetta verið von­laust að standa við það að hafa alltaf konur með og konur til jafns við karla. Þær voru þá virkar og maður gat leitað til þeirra. Ég var þeim þakk­lát fyrir allt en starf­aði ekki með þeim. Margar okkar hafa síðan verið með öllum þeim bylgjum sem hafa riðið yfir þjóð­ina. Við margar úr Rauð­sokka­hreyf­ing­unni stóðum að stofnun Kvenna­at­hvarfs­ins og ýmsum þeim stofn­unum sem kven­frels­is­bar­áttan hefur komið á lagg­irnar.“ 

Hún telur sam­fé­lags­leg áhrif rauð­sokk­anna ótví­ræð. „Hann Mörður Árnason, sonur einnar okkar, þeirra skel­egg­ustu sem því miður er fallin frá, Vil­borgar Harð­ar­dóttur, sagði við útgáfu­hófið þegar við gáfum út bók­ina: „Meðan við rót­tæk­ling­arnir þótt­umst vera að breyta heim­inum þá gerðu mömmur okkar það án þess að við tækjum eftir því.“ 

Skemmtiatriði fyrir karlasamtökin

Spurð að því að lokum hvaða ráð Guðrún geti gefið ungu bar­áttu­fólki í dag segir hún nauð­syn­legt að vera svo­lítið skemmti­legur og taka sig ekki of hátíð­lega. Það hafi hún reynt að gera, til að mynda þegar hún tókst á við þau verk­efni að mæta á fundi félaga­sam­taka karla og segja frá bar­áttu­mál­unum. Þær rauð­sokkur voru gríð­ar­lega vin­sælar á slíkum fundum og voru þar nán­ast eins og skemmti­at­riði. „Við fórum alltaf á fundi félaga­sam­taka. Karla­sam­tökin voru nátt­úr­lega öll á móti okkur, Lions, Rótarý og Oddfellow og hvað þetta allt saman hét. Við höt­uðum þá alveg út af líf­inu. En þeir voru alltaf að fá okkur til að koma á fundi hjá sér og það var svo gaman, því þeir voru svo æstir og við gátum svarað þeim svo fullum hálsi. Það var svo ofsa­lega gaman.“ 

 „Við höt­uðum þá alveg útaf líf­inu“

Og hún er ekki í vafa um að lengi enn þurfi konur að berj­ast fyrir sínu. „Það mun ævin­lega vera þörf fyrir bar­áttu, heim­ur­inn breyt­ist, fólkið breyt­ist, maður arf alltaf að vera á vað­bergi og það þarf alltaf að berj­ast fyrir öllu. Ég eygi það ekki nú hvað verður efst á baugi eftir tíu ár en ég efa það ekki að það verður hatrömm bar­átta fyrir ein­hverju sem við myndum svo seinna telja sjálf­sögð rétt­indi.“

Samfélagið þéttofið net af reglum

Hildur Hákon­ar­dóttir og Edda Ósk­ars­dóttir voru á meðal margra list­hneigðra rauð­sokka, en þær  eru báðar mynd­list­ar­menn. Raunar segir Hildur að margt skap­andi fólk og þá sér­stak­lega leik­hús­fólk hafi verið næmt fyrir hreyf­ing­unni. Hún hefur sína skýr­ingu á því. „Ég útskýri það þannig að þarna voru stelpur sem voru vanar að skipta um hlut­verk. Sam­fé­lagið var svo nið­ur­njörvað í ákveð­inn far­veg. Það mátti til dæmis ekki vera í fötum þar sem var brúnt og svart, ekki blátt og grænt, aldrei í fjólu­bláu ef þú varst rauð­hærð. Það voru ákveðnar reglur og sam­fé­lagið var þétt­ofið af fín­legum reglum. En ég held að leik­hús­stelp­urnar hafi verið svo­lítið frjáls­legri, því þær voru vanar að skipta um hlut­verk.“

HildurHún skildi karl­ana í 1. maí göng­unni vel að vera reiðir. Með aðgerðum sínum hafi þær rauð­sokkur brotið gegn hefð­inni og margir hafi verið hræddir við það.

Styttan sem notuð var í gjörn­ingnum 1. maí var úr upp­setn­ingu Mennta­skól­ans í Reykja­vík á Lýs­iströtu. Hún minnti á kven­legan búdda eða frjó­sem­is­gyðju og þótti til­valin til að vekja athygli á þætti kvenna í sam­fé­lag­inu. „Ég held að þessi leik­ræna aðkoma hafi gefið okkur fóður sem við vorum að vinna úr. Þetta var eins og gjöf sem við tókum með okkur í gegnum alla vinn­una.“

Andlitið datt af fólki

Þær Hildur og Edda skemmta sér aug­ljós­lega yfir minn­ing­unni af því þegar þær sóttu stytt­una í bíl­skúr í Kópavogi og fluttu hana niður á Rauð­ar­ár­stíg, þar sem henni var loks komið fyrir ofan á listum og borin uppi af kon­unum í göng­unni. Styttan bar áletr­un­ina Mann­eskja en ekki mark­aðsvara og kon­urnar báru spjöld sem á stóð Vaknaðu, kona og Kona, nýttu rétt­inn þinn. „Mér finnst þessi stikkorð lýsa svo vel um hvað þetta var, hver var mein­ingin með þessu. Alveg eins og að á kvenna­frí­dag­inn var mein­ingin að sýna fram á að konur voru ómissandi á vinnu­mark­aðnum og hvað þær skiptu miklu máli. Þarna var verið að reyna að vekja okkur sjálfar og aðrar konur til með­vit­undar um að það væri nú alveg óhætt að hrista af sér menn­ing­ar­doð­ann. Við höfðum mögu­leika og rétt á ýmsu sem við nýttum okkur ekki. Við höfðum gott af því að víkka sjón­deild­ar­hring­inn og skerpa svo­lítið á vit­und­inni. En það var engin krafa um eitt eða neitt,“ segir Hildur. 

En hvernig voru við­brögð fólks­ins í göng­unni? „Ég held að fólk hafi aðal­lega verið hissa. Það datt bara af því and­litið,“ segir Edda. Karl­arnir hafi margir hverjir verið reiðir. „Ég skil þá alveg,“ segir Hildur. „Fólk var ekki vant svona. Það var allt hefð­bundið. Það voru óskrif­aðar reglur í sam­fé­lag­inu um hvernig eig­in­lega allir hlutir áttu að vera. Þetta braut hefð­ina.“

„Við brutum múr hins hefð­bundna“

Þær hafi hins vegar strax náði í gegn, því þetta hafi verið skemmti­legt og vakið svo mikla athygli. „Við brutum múr hins hefð­bundna. En það var svo langt því frá að við værum að gera grín að hinni hefð­bundnu verka­lýðs­göngu. Það var fárán­leiki,“ segir Hildur en bætir svo við: „En þeim fannst það. Það var búið eitt­hvað að kalla til lög­reglu. En þeir urðu eig­in­lega að sætt­ast á það að við gengjum á eftir göng­unni. Þá lang­aði voða­lega mikið að hafa svo­lítið bil á milli en það er ekki hægt að stjórna göngum. Þær flæða áfram.“

Settu kröfurnar fram myndrænt

Edda segir að eftir að gangan með Lýs­iströtu-stytt­una vakti mikla eft­ir­tekt hafi hóp­ur­inn setti alltaf mein­ingar sínar fram með mynd­rænum hætti, sam­hliða orð­ræð­unni. Það hafi þótt nútíma­legt á þeim tíma. Þá hafi þær notað húmor til að koma á fram­færi ádeilu á gömlu hefð­irnar. Hildur er sam­mála því að þetta hafi verið mik­il­vægt. „Þetta er alveg á þeim tíma þegar við erum að fara úr þessu skrifræna, vinstri heila­hvels sam­fé­lags­gerð, yfir í þennan mynd­ræna heim sem við erum staddar í núna. Þetta er eins og að fá byr í seglin þegar þú ætlar að leggja af stað í ferða­lag eða ætlar að fara að hjóla og það er allt í einu með­vindur. Við hittum akkúrat á rétta aðferð á réttum tíma.“ 

EddaHún er mynd­list­ar­kona og átti sinn þátt í því að rauð­sokk­urnar settu sínar kröfur alla jafna fram á mynd­rænan hátt.

Annað sem ein­kenndi hreyf­ing­una var að hún hafði ekki form­lega upp­bygg­ingu, heldur var hún „líf­rænt form“ og and­stætt hinu hefð­bundna pýramida­skipu­lagi, eins og Hildur lýsir því, en það var hún sem átti hug­mynd­ina að því og setti fram mynd­rænt. Þetta flæð­andi skipu­lag hafi verið liður í því að dreifa álag­inu og gera konum kleift að taka þátt þegar þær vildu og draga sig í hlé þegar þær þurftu. „Það er gíf­ur­legt verk að vera rauð­sokka. Þetta var svo mikið sál­ar­legt álag að reyna að brjót­ast úr úr ákveðnum hefð­bundnum ramma, þó að það væri milt. Ramminn var alls staðar. Hann var í öllu sem gerð­ist í sam­fé­lag­inu. Ég stóð svo­lítið fyrir þessu kerfi og pré­dik­aði það að þú þarft ekki að vera rauð­sokka allan dag­inn, dag og nótt og alla vik­una. En þú reynir að vakna til vit­undar, það er alveg prýði­legt að þú ert rauð­sokka í svo­lít­inn tíma, undir vissum kring­um­stæðum.“

Af þessum sökum hafi engin félaga­skrá verið, svo að konur gætu stigið inn, tekið þátt og stigið svo aftur út eftir hent­ug­leika. „Ég held að þetta hafi orðið til þess að það hafi verið miklu meiri þátt­taka og meiri vit­und fyrir því sem við vorum að gera. Svo fór maður heim, bak­aði sínar kökur og féll í gamla farið. Þetta var alveg nauð­syn­legt. Þetta var dálítið eins og skæru­liða­hern­aður. Þú gast skipt – og þarna vísa ég aftur í leik­húsið – um hlut­verk þegar þú vildir.“

Smart en börðust gegn hégóma

Allar kon­urnar sem hér er rætt við kann­ast vel við umræð­una um að rauð­sokkur væru ómynd­ar­legri en aðrar konur, hugs­uðu ekki vel um heim­ili sín eða fjöl­skyld­una og hefðu ekki fyrir því að vera huggu­legar. „Við værum bara brussur í mussum. En tískan var bara þannig, þetta var hippa­tíma­bilið og þá voru mussur í tísku, fólk gekk í tré­skóm, klossum og fót­laga­skóm. Við vorum nátt­úr­lega blankar og allt þetta, þannig að við lit­uðum léréfts­poka og saum­uðum okkur flíkur úr þessu og lit­uðum bleyjur sem við vorum með sem höf­uð­föt. Við þóttum eitt­hvað púka­legar, eða ég veit það ekki. Við vorum bara smart. En við börð­umst nátt­úr­lega gegn hégóma. Þess vegna vorum við á móti feg­urð­ar­sam­keppnum og öðru slíku. Ef þú komst inn á bíla­verk­stæði voru flennistórar aug­lýs­ingar af brjósta­konum. Þú gast ekki selt bíl án þess að það sæti kona ofan á húdd­inu. Þannig var þetta bara.“

Nú ráða konur lífi sínu sjálfar

Þær Hildur og Edda minn­ast þessa tíma með mik­illi ánægju og stolti. „Við værum ekki að minn­ast þess­ara atburða fyrir 50 árum nema af því við erum óskap­lega stoltar. Mér finnst alveg mega minna á að að Ísland trónir efst á lista yfir lönd þar sem er kvenna­jafn­rétti,“ segir Hildur og bætir því við að flestar bylt­ingar mis­tak­ist, en ekki þessi. 

Edda segir að stærsta breyt­ingin sem átt hafi sér stað sé að konur ráði nú lífi sínu sjálfar. „Það sem breytti öllu var að konur fengu sjálf­ræði yfir eigin lífi. Við gátum stjórnað barn­eignum og kom­ist til mennta. Það var búið að halda helm­ingi þjóð­ar­innar niðri mennta­lega ára­tugum saman, eða öldum saman. Nú eru konur í miklum meiri­hluta í háskólum og konur geta valið sér störf þar sem hugur og hæfi­leikar fá að njóta sín. Konur eru búnar að sanna það að þær geta alveg hreint sinnt öllum störfum eins og karlar, alveg sama hvort það er í valda­stöðum eða ekki, en launa­jafn­rétt­inu er nú ekki náð ennþá, nema í stöku til­fellum. Almennt eru konur ennþá á lægri launum en karlar. Svo það er mikið óunnið,“ segir Edda og bætir því við að nóg sé af ungum og rót­tækum konum í nútím­anum, sem hún hafi fulla trú á að eigi eftir að halda áfram að breyta heim­inum. Hildur segir þeirra bíða það verk­efni að skapa nýja menn­ingu: „Við gátum ýtt út mörk­unum á þeirri menn­ingu sem sam­fé­lagið er í en ég hugsa að við eigum ennþá eftir að sjá menn­ingu sem byggir líka á kven­legum gildum. Það er þeirra yngri að finna leið­ina. Nú ertu allt í einu komin með hóp af fólki, konum með gíf­ur­lega góða menntun á óskap­lega víðu sviði. Við eigum eftir að skapa þessa menn­ingu þar sem karllæg og kven­læg gildi vega jafnt í upp­bygg­ingu sam­fé­lags­ins. Við eigum svo­lítið langt í land þar.“

Krossfesting þreyttu húsmóðurinnar

Bar­áttu­mál rauð­sokk­anna voru mörg og mis­jafn­lega erfið. Hér rifjar önnur rauð­sokka, Elísabet Gunn­ars­dóttir, upp helstu gagn­rýn­ina sem þær fengu og atvik sem skildi óþægi­lega mikið eftir sig, hjá sumum þeirra.

ElísabetÞegar rauð­sokkur kross­festu tusku­dúkku á jóla­tré á þor­láks­messu og köll­uðu hana hina þreyttu hús­móður urðu sumir ösku­reiðir.

„Stundum skarst í odda. Við vorum til dæmis með aðgerð fyrir jól. Við tókum hina þreyttu hús­móður, hún var tusku­dúkka í fullri stærð, kross­festum hana á jóla­tré, fórum með hana niður í Aust­ur­stræti og vorum með dreifi­bréf: „Eru þetta okkar jól, er það þetta sem við viljum?“ Það er næst því sem ég hef kom­ist að verða fyrir lík­am­legri árás á almanna­færi. Þetta var á þor­láks­messu svo það voru sumir slomp­aðir. Það voru konur í þessu sem veigr­uðu sér við að taka þátt í demon­stra­sjónum eftir þetta.“

Það mál sem hún segir að hafi reynt lang­mest á hreyf­ing­una og hinar kon­urnar nefndu allar líka var bar­áttan fyrir rétti kvenna til að gang­ast undir þung­un­ar­rof, eða fóst­ur­eyð­ingu eins og það var kallað þá. Samkvæmt lög­gjöf­inni sem var í gildi gátu konur farið í fóst­ur­eyð­ingu svo fremi sem líf móður eða barns var í hættu. Rauð­sokk­urnar tóku þátt í því að aðstoða konur við að fara til útlanda til að gang­ast undir fóst­ur­eyð­ingu, ef þær féllu ekki undir þá skil­grein­ingu en þurftu á því að halda. Þær vildu að konum yrði treyst fyrir því að taka ákvörð­un­ina sjálfar. Það varð ekki raunin fyrr en tæpum 50 árum seinna, árið 2018, þegar heift­úðug umræðan bloss­aði raunar upp á ný. En aftur til átt­unda ára­tug­ar­ins. „Þar var mjög mikil harka. Það var bara hrylli­legt oft á tíðum. Við höfðum það fyrir reglu að fara alltaf tvær eða fleiri á fund. Í þessu máli sendum við aldrei konur til að vera tals­menn, nema þær ættu börn.“ Hver var hugs­unin á bak­við það? Nú, svo þarna væri ekki ein­hver gála sem ástund­aði það að fara í fóst­ur­eyð­ingar, því hugs­un­ar­hátt­ur­inn var oft þannig. Enda voru konur sak­aðar um að vera barna­morð­ingjar. Ég man eftir því að einu sinni var kona sökuð um það. Hún var með börnin sín þarna og þau heyrðu þetta. Og svo var skrifað í blöðin.“

Ærslakennd samvera

Þrátt fyrir að málin hafi sum hver verið þung er það sem Elísa­betu er efst í huga hins vegar hversu skemmti­legt starfið með rauð­sokk­unum var. „Þetta var ofboðs­leg gaman. Þetta voru ekki leið­in­legir, þurrir fundir. Þetta var mjög oft ærsla­kennt,“ segir hún og lýsir hreyf­ing­unni þannig að hún hafi búið yfir anar­kís­kum sprengi­krafti.

„Það þarf að hafa félög eins og Rauða kross­inn, eins og Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands, sam­tök eins og Kvenna­at­hvarfið, sem eru skipu­lögð með fund­ar­gerðir, pen­inga í lagi og verða eins konar stofn­anir. Það þarf. En svo þarf líka, þegar það koma svona ólgu­tímar eins og voru þarna, fyr­ir­bæri eins og rauð­sokk­urnar, sem eru eins og sprengi­kraftur. Við vorum það og spreng­ingar standa ekk­ert sér­stak­lega lengi. Þess vegna gerðum við þann skyn­sam­lega hlut að leggja bara form­lega niður rauð­sokka­hreyf­ing­una,“ segir hún, sem þær gerðu líkt og fyrr segir árið 1982. Þá höfðu þær að mati Elísa­betar breytt lífs­við­horfi margra kvenna og sýnt Íslend­ingum, bæði körlum og konum, að vel er mögu­legt að breyta þétt­ofnum venjum og hefðum sam­fé­laga, þó það geti vissu­lega tekið langan tíma og kostað mikla bar­áttu.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár