Þegar Ólöf Dóra Bartels Jónsdóttir ætlaði að greiða reikninginn fyrir máltíð á Hressó við Austurstræti í gær brá henni í brún. Henni og vinkonu hennar var tjáð að þær ættu að greiða 1.500 krónur aukalega fyrir að hafa setið við borð inni á staðnum. Á reikningi var tiltekið að þetta væri svokallað hátíðargjald, eða „Holiday fee“, enda þjóðhátíðardagurinn í gær.
„Við vorum náttúrlega hvumsa. Því við höfðum aldrei lent í þessu áður,“ segir Ólöf Dóra við Heimildina.
Hvorugri þeirra var, að sögn Ólafar Dóru, tjáð að svona gjald væri innheimt fyrr en þær hugðust borga reikninginn.
„Við vorum ekki þær einu sem ekki vissu af þessu gjaldi fyrirfram. Við spurðum viðskiptavini á staðnum hvort þeir hefðu verið látnir vita að það væri 1.500 króna gjald fyrir borðið. Þeir höfðu ekki heldur heyrt af því,“ bætir hún við.
Á meðan þær stóðu og veltu þessu fyrir sér gekk annar hópur fólks inn á veitingastaðinn og vinkona Ólafar Dóru tilkynnti þeim um gjaldtökuna. „Þau náttúrulega sneru við. Sögðu að þau létu ekki bjóða sér það.“
Óheimilt ef gjald er ekki tilgreint fyrirfram
Heimildin hafði samband við Breka Karlsson, formann Neytendasamtakanna, og bar atvikið undir hann. Breki hafði ekki heyrt af atvikinu, né nokkrum sambærilegum tilfellum slíkrar gjaldtöku á Íslandi.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég heyri þetta. Það er að sjálfu sér ekki ólöglegt að rukka svona – ef það er skilmerkilega sagt frá því fyrirfram,“ útskýrir hann. „Hafi það ekki verið gert er óheimilt að rukka svoleiðis gjald. Það fer algjörlega eftir því hvort hún vissi af þessu fyrirfram eða ekki, hvort þetta sé heimilt.“
„Á næst að rukka fyrir stól? Fyrir hnífapör? Mér finnst svolítið langt seilst, verð ég að segja“
Formaðurinn bendir á að það sé frjálst verðlag á Íslandi, en það þurfi að lúta ákveðnum lögmálum. „Það þýðir ekkert að rukka svona eftir á. Það er bara út í hött. Fólk þarf að geta tekið ákvörðun um það hvað það er að kaupa á hverjum tíma, og hvort það samþykki svona gjöld eða ekki.“

Það er greinilegt af máli Breka að honum þykir ekki mikið til gjaldtökunnar koma.
„Þetta er svolítið skrítið, finnst mér, að rukka svona aukalega fyrir setu á borði. Þetta er eiginlega út í hött. Það fylgir því að borða á veitingastað að sitja við borð. Á næst að rukka fyrir stól? Fyrir hnífapör? Mér finnst svolítið langt seilst, verð ég að segja. Svo þurfa allir að nota súrefni inni á vetingastað. Ætla þeir að rukka fyrir það líka? Það nær ekki nokkurri átt.“
Búin að láta Neytendasamtökin og Neytendastofu vita
Ólöf Dóra kemst næstum alveg eins að orði og Breki þegar hún er spurð út í álit sitt á þessum viðskiptaháttum.
„Mér finnst þetta algjörlega út í hött,“ segir hún og veltir því upp hvort aukna gjaldtöku megi rekja til ferðamennsku á Íslandi. „Veitingahúseigendur halda kannski að túristar láti allt yfir sig ganga, því þeir halda kannski að þetta sé allt venjulegt. En við Íslendingar vitum betur. Að þetta er ekki eðlilegt.“
Hún bætir því við að ef borðið átti að kosta 1.500 krónur þá hefði átt að gera þeim það viðvart fyrirfram. „Til þess að geta tekið upplýsta ákvörðun um hvort við ætluðum að sitja þarna fyrir 1.500 kall. Ég velti fyrir mér hvort þetta sé angi af græðgisvæðingu í kringum túrismann.“
Sjálf hefur Ólöf Dóra tilkynnt málið bæði til Neytendasamtakanna og Neytendastofu. „Þetta er komið í ferli,“ segir hún.
Athugasemdir