Hvað myndum við gera ef hver einasti nemandi Kvennaskólans yrði myrtur? Og síðan allir nemendur Versló, Menntaskólans við Hamrahlíð, Menntaskólans í Reykjavík, á Akureyri, Ísafirði og Egilsstöðum ásamt öllum nemendum í Fjölbrautaskóla Suðurlands og í Garðabæ. Hver yrðu viðbrögðin?
Kannski að staðan væri flókin og erfitt að taka afstöðu?
Hvað ef öll fimmtíu þúsund grunnskólabörn íslands væru slösuð eftir hrottalegar árásir, hvert og eitt einasta, og þúsundir þeirra hefðu misst einn eða fleiri útlimi? Hver yrðu viðbrögðin?
Kannski að áfram yrði talað um að draga úr spennu á svæðinu?
Hvað myndi svo gerast ef öll leikskólabörn á Vestfjörðum, Austfjörðum, Norðurlandi, Austurlandi, Suðurlandi, Suðurnesjum og í Reykjavík væru drepin? Svelt, sprengd, skotin, sundurlimuð, kramin, kæfð, brennd. 19 þúsund börn myrt á hrottalegan hátt. Hver yrðu viðbrögðin?
Kannski myndu eiga sér stað „óformleg samtöl“ um viðbrögð við ástandinu en fullyrt að ekki væri tímabært að fara í einhliða aðgerðir?
Hvað yrði þá gert þegar allir íbúar Íslands hefðu þurft að flýja heimili sín, 90 prósent bygginga í landinu hefðu verið eyðilagðar eða jafnaðar við jörðu, tugþúsunda saknað, og þau sem eftir lifa í bráðri hættu á að svelta í hel? Hver yrðu viðbrögðin?
Kannski að þolinmæðin væri á þrotum og ef árásirnar og eyðileggingin yrðu ekki stöðvaðar væri ekki útilokað að gripið yrði til aðgerða?
Hvað myndum við sjálf gera ef við yrðum vitni að ofantöldum ódæðisverkum, ef hægt væri að streyma þeim í beinni útsendingu og fylgjast með þegar lífið væri murkað úr þjóðinni okkar? Hver yrðu viðbrögðin okkar?
Við vitum það nú þegar. Engin.
Viljum við að viðbrögð heimsins verði þau sömu og okkar gagnvart Palestínu ef Ísland verður fyrir árás? Að allir haldi að sér höndum vegna pólitískra og viðskiptalegra tengsla á meðan þjóðinni okkar er útrýmt? Geri ekkert. Ef svarið er nei þá verðum við að bregðast við, grípa til aðgerða, áður en það verður of seint.
19 þúsund börn jafgilda samanlögðum nemendafjölda í ofangreindum menntaskólum og leikskólalandshlutum.
Athugasemdir