Margfaldur meistari með skýr markmið

Baldvin Þór Magn­ús­son er besti lang­hlaup­ari lands­ins í dag. Hann hugsar stöðugt um næsta skref.

Margfaldur meistari með skýr markmið

Baldvin Þór Magn­ús­son er besti lang­hlaup­ari lands­ins í dag. Hann er nýbak­aður Norð­ur­landa­meist­ari í 3.000 m inn­an­húss og bætti um leið eigið Íslands­met. Hann tók þátt í Evr­ópu­meist­ara­móti í 5.000 metra hlaupi, 23 ára og yngri, árið 2021 og vann til brons­verð­launa en hann hljóp á tím­anum 13 mín­útum og 45 sek­úndum, sem var Íslands­met og þriðji besti árangur á þessu móti. Hann á einnig Íslands­met í 1.500 m, 3.000 metra hlaupi og inn­an­húss í 5.000 m. Hann á Íslands­met inn­an­húss 1.500 mílu,  3.000 m, 5.000 m og utan­húss í 1.500 m, 3.000, 5.000 m og 10 km götu.

Á göt­unni setti Baldvin glæsi­legt Íslands­met í 10 km og varð þá fyrsti Íslend­ing­ur­inn til að fara vega­lengd­ina undir 29 mín­útum. Baldvin stefnir lengra og segir mik­il­vægt að hlauparar setji sér mark­mið í þrepum og vinni að þeim til jafn­vel nokk­urra ára.

Atvinnuhlaupari

Baldvin Þór fædd­ist á Íslandi en flutti til Bret­lands fimm ára gam­all þar sem hann býr. Hann er mjög fjöl­hæfur hlaup­ari og hefur átt afar far­sælan feril en hann stund­aði háskóla­nám með hlaup­unum og er núna útskrif­aður með M.Sc.-gráðu í íþrótta­fræðum. Baldvin Þór stundar hlaup sem atvinnu og er einnig að þjálfa. Hann tryggði sér sæti á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu sem fór fram nýlega þegar hann varð Norð­ur­landa­meist­ari og náði þar lang­besta árangri sem Íslend­ingur hefur náð á EM í víða­vangs­hlaupum. Hann varð 16. af 82 kepp­endum. Baldvin hleypur bæði á braut og götu upp að 10 km og var val­inn milli­vega­lengda- og lang­hlaup­ari 2024 af Frjáls­í­þrótta­sam­bandi Íslands og hlaup.is og kos­inn götu- og braut­ar­hlaup­ari sama árs af les­endum hlaup.is.  

Markmiðin þurfa að vera í þrepum

Það þarf margt til þess að verða afburða lang­hlaup­ari; aga, vilja og ástríðu, en ekki síður að setja sér mark­mið og stefna að þeim í ákveðnum þrepum. Líkamleg hlið og and­leg eru einnig mik­il­vægar. Baldvin hefur unnið að mark­miðum sínum með skipu­lögðum hætti og sífellt náð lengra og stefnt hærra. „Ég myndi segja að það sé mjög mik­il­vægt að vera til­bú­inn til að gera þetta heils hugar og gefa hlaup­unum langan tíma ef maður vill ná góðum árangri, það er lyk­il­at­riði en líka að gera hlut­ina rétt og þar er margt sem spilar inn í, hug­ar­farið er mikið atriði. Menn geta lent í meiðslum eða hrein­lega misst haus­inn eftir von­brigði eða þegar eitt­hvað gengur ekki upp  eins og maður vildi og hafa þá ekki lagt 100% í hlaupin. Aginn er líka mjög mik­il­vægur ef fólk vill ná árangri.“ 

„Mark­miðin þurfa að passa vel saman ár eftir ár og fara stig­vax­andi
Baldvin Þór Magn­ús­son
Íslands­meist­ari í hlaupum

Og fleira hefur áhrif á hlaupa­ár­angur. „Maður þarf að hafa gaman af þessu og njóta þess að hlaupa og þess vegna er félags­skap­ur­inn mik­il­vægur í þessu hjá flestum, hann hjálpar veru­lega. Mark­miðin þurfa að passa vel saman ár eftir ár og fara stig­vax­andi en þau mið­ast við hvað maður vill ná út úr hlaup­unum. Ef þú ert til dæmis með ákveðið mark­mið á þessu ári, þá þarftu að velta fyrir þér hvað væri raun­hæft mark­mið fyrir þig á næsta ári ef þú vilt ná toppá­r­angri eða jafn­vel vinna aftur á bak. Hins vegar ef þú ert meira í hlaupum til að hafa gaman eða hlaupa ein­hverja 5 km þá er það annað mál.“

Und­ir­bún­ingurEr í átta vikna æfinga­ferð í Pýrenn­ea­fjöll­unum á mótum Spánar og Frakk­lands.

Baldvin stefnir að því að kom­ast á Ólymp­íu­leik­ana 2028. „Ef mark­miðið er að vera þar þá þarf ég að hlaupa á undir 13 mín. í 5 km hlaupi eftir þrjú ár. Ég hef því mark­mið fyrir þetta ár og set mér mark­mið fyrir næsta ár og ef það allt gengur upp þá ætti ég að vera á góðum stað árið eftir, maður gerir þetta í stigum. Það þurfa allir að finna út hvað þeir vilja gefa mikið í hlaupin, eftir því hvað aðstæður leyfa og gefa tök á. Ég er hepp­inn því ég get gefið allt í hlaupin, en ef maður er með fjöl­skyldu og í fullri vinnu þá þarf maður að passa sig á að gera þetta á löngum tíma, hver og einn þarf að finna hvað passar honum. Það geta samt allir bætt sig.“ 

Hvernig æfirðu fyrir mót? „Til að toppa þá breyt­ast æfing­arnar þannig að maður fer í gegnum upp­bygg­ing­ar­tíma­bil og í hágæða æfingar. Eins og ég hugsa þetta þá er fullt af æfingum sem byggja menn upp sem hlaupara líf­eðl­is­fræði­lega og svo eru aðrar æfingar sem und­ir­búa mann fyrir keppn­ina. Það er svo­lít­ill munur á hvernig maður tekur æfingar, t.d. ef maður vill vinna í mjólk­ur­sýru­þrös­k­uldi, sem er kannski ekki mjög mikil nákvæmnisæf­ing fyrir neina ákveðna keppn­is­vega­lengd í en svo eru aðrar æfingar sem eru nákvæmar fyrir keppn­is­vega­lengd­ina þína.“  

Lyftir til að halda sér heilum

Álags­meiðsli herja á hlaupara eins og margt annað íþrótta­fólk og segir Baldvin að þau megi var­ast með styrkta­ræf­ingum. „Ég tek lyft­inga­ræf­ingar en legg þær í aft­ur­sætið þegar keppni nálg­ast, lyft­inga­ræf­ingar geri ég til að halda mér heilum og þær eru mik­il­vægar til að að ég geti gert sem mest á hlaupum.“ 

„Ef þú ert ekki með kol­vetni í lík­am­anum mun hann ekki svara æfing­unum sem skyldi
Baldvin Þór Magn­ús­son
Íslands­meist­ari í hlaupi

Kol­vetna­ríkt matar­æðið er mik­il­vægt fyrir lang­hlaupara og það þarf að huga að réttri tíma­setn­ingu til að taka þau inn svo þau nýt­ist sem best. „Flestir hlauparar þurfa mun meira af kol­vetnum en venju­legt fólk og það þarf að passa að borða kol­vetni á réttum tíma þannig að það þarf að borða þau fyrir æfingar, á æfingum ef þær eru langar, en sjálfur tek ég eins mikið af kol­vetnum og ég kemst upp með, og svo strax eftir æfingu. Það er mik­il­vægt að taka kol­vetni á réttum tíma, það er ekki gott að vera með lágan blóð­sykur og ef þú ert ekki með kol­vetni í lík­am­anum mun hann ekki svara æfing­unum sem skyldi og þá er maður heldur ekki jafn­til­bú­inn fyrir næstu æfingu. Til að geta æft eins mikið og þú hefur tök á er gott að fylla alltaf á bens­ínið um leið og þú ert far­inn að nota það.“  

Meiri taktík í hlaupum á braut 

Þrátt fyrir að hafa stundað mikið lang­hlaup þá við­ur­kennir Baldvin að sér finn­ist götu- og braut­ar­hlaup í raun skemmti­legri, þau krefj­ist allt ann­arra þátta og séu mjög teknísk. „Hlaup á braut eru allt öðru­vísi en lang­hlaupin, það þarf miklu meiri taktík í þeim,“ segir hann og við­ur­kennir að sér finn­ist skemmti­legra að hlaupa braut­ina og að hlaupa 1.500 m sé skemmti­leg­ast. 

Hvað er fram undan hjá þér? „Núna er ég í æfinga­búðum í Pýrenea-fjöll­unum í Frakk­landi og hef verið í tvær vikur og á sex vikur eftir, svo fer ég til Brussel í Belgíu og keppi þar í 5 km hlaupi og síðan í 1.500 m. Ég tek frekar langa keppn­islotu og svo ætla ég að sjá til hvað verður hjá mér, hvort ég taki annað búst í háfjöllum eða smá hlé fyrir sum­arið, ég hefði mátt gera betur í taktík­inni á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu þannig að ég ætla að vinna með það. Það sem maður þarf alltaf að hugsa um þegar maður hefur hlaupið í ein­hvern tíma er hvert næsta skref er og hverju maður getur breytt eða bætt við í æfingum sem lík­am­inn þarf á að halda, eða að bæta ein­hverju við og breyta ein­hverju, hvort sem það er í magni eða gæðum hlaupa.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlaupablaðið 2025

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár