Þessi grein birtist fyrir rúmlega 7 mánuðum.

Átti erfitt með gang en hleypur nú hundrað kílómetra

Sif Sum­arliða­dótt­ir þreytt­ist auð­veld­lega við göngu í skól­ann sem barn og þurfti oft að hvíla sig. Hún var ant­isport­isti lengi vel en svo gerð­ist eitt­hvað sem kveikti í henni. Hún missti þriðj­ung úr lunga en lét ekk­ert stoppa sig og hef­ur ver­ið í lands­lið­inu í bak­garðs­hlaup­um.

Átti erfitt með gang en hleypur nú hundrað kílómetra
Sif Sumarliðadóttir Hjúkrunarfræðingurinn sem hleypur hundrað kílómetra. Mynd: Golli

Hún átti oft erfitt með gang  sem barn vegna plattfótar og þurfti að hvíla sig á handriðum á leiðinni í skólann.

Sif Sumarliðadóttir, hjúkrunarfræðingur og heilsuhagfræðingur, varð síðan á fullorðinsárunum ultra-hlaupari.

„Ég átti líka erfitt með að skauta og fleira. Á tímabili kom upp sú hugmynd að ég færi í stóra bæklunaraðgerð til að leiðrétta þetta en það var fallið frá því. Ég er hjúkrunarfræðingur þannig að ég þurfti mikið að standa í starfinu en með tímanum óx ég upp úr þessu og þetta háði mér minna og minna.“

Antisportisti sem gerðist maraþon- og ultra-hlaupari

Sif fór svo að hlaupa, sem var óvænt því hún var „antisportisti“ eins og hún segir sjálf. „Ég fór eitt árið í Kvennahlaupið og við vinkonurnar gerðum allt til að vera síðastar í mark,“ segir hún og hlær.

„Ég byrjaði ekki að stunda líkamsrækt fyrr en eftir 2005 eftir að ég eignaðist fyrsta barnið …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín Thorarensen skrifaði
    Skráning á að vera: Kristín María Thorarensen.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlaupablaðið 2025

Mest lesið

Sagði sig úr skólaráði þegar Ársæll var ráðinn „af pólitískum ástæðum“
1
Stjórnmál

Sagði sig úr skóla­ráði þeg­ar Ár­sæll var ráð­inn „af póli­tísk­um ástæð­um“

Kenn­ari og fyrr­ver­andi formað­ur Kenn­ara­sam­bands Ís­lands sagði sig úr skóla­ráði Borg­ar­holts­skóla þeg­ar Ár­sæll Guð­munds­son var skip­að­ur skóla­meist­ari. Sagði hann eng­an í ráð­inu hafa tal­ið hann hæf­ast­an um­sækj­enda og full­yrti að ráðn­ing­in væri póli­tísk. Ár­sæll seg­ist rekja það beint til Ingu Sæ­land að hafa ekki feng­ið áfram­hald­andi ráðn­ingu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár