„Hobbitarnir“ voru enn minni en talið var

Margt leyn­ist enn í jörð á eyj­unni Flores í Indónesíu.

„Hobbitarnir“ voru enn minni en talið var
Hve stórir voru „Hobbit­arnir“ á Flores? Með hjálp gervi­greindar var þessi mynd búin til sem sýnir stærð­ar­hlut­föl „gömlu“ Homo Flor­esi­ensis-teg­und­ar­innar (til vinstri), Homo Erectus (í miðið) og „nýju“ Flores-teg­und­ar­innar. Gervi­greindin er að vísu orðin svo sið­prúð að hún neit­aði að búa til mynd af raun­veru­legum Homo Flor­esi­ensis og Homo Erectus vegna þess að þær teg­undir gengu naktar. Hún fékkst sem sem­ingi á að búa til sams­konar mynd af Neand­er­dals­mönnum af því þeir voru ekki berrass­aðir. Stærð­ar­hlut­föllin eru hins vegar rétt.

Árið 2003 bár­ust óvænt tíð­indi út um ver­öld­ina. Á eyj­unni Flores í Indónesíu höfðu fund­ist leifar um áður óþekkta mann­teg­und sem virt­ist vera mun minni en nokkur sem áður hafði þekkst. Ekki varð betur séð en með­al­hæð þess­arar teg­undar hefði verið um einn metri.

Og allra merki­leg­ast var að þessi litla mann­teg­und reynd­ist hafa verið uppi á sama tíma og nútíma­mað­ur­inn homo sapi­ens var kom­inn til sög­unnar. Og var ber­sýni­lega á svip­uðu þroska- og tækni­stigi og stein­ald­ar­menn eins og homo habilis og sér­stak­lega homo erectus. Nýja teg­undin, sem fékk nafnið homo flor­esi­ensis (oft kölluð „Hobbitar“), mun hafa dáið út fyrir aðeins um um 50.000 árum.

Sumir vildu meira að segja trúa því að þessi eða svip­aðar afar smá­vaxnar teg­undir hefðu lifað af mun lengur og orðið kveikjan að þeim dverga­sögum sem allir ætt­stofnar manns­ins eiga í sínum þjóð­sagnakistum, en það mun þó fjarri sanni.

Nokkur styrr stóð um homo flor­esi­ensis framan af. Sumir vildu ekki trúa því að jafn­lítil mann­teg­und og með jafn­lít­inn heila gæti hafa þróað sams konar lifn­að­ar­hætti og homo erectus. Leif­arnar sem fund­ust á Flores hlytu að vera af ein­hvers konar van­þroska eða van­sköp­uðum ein­stak­lingum.

Önnur smátegund á Filippseyjum

Þær kenn­ingar hafa fyrir all­löngu verið slegnar út af borð­inu. Homo flor­esi­ensis var ein­fald­lega full­þróuð og sjálf­stæð mann­teg­und.

Og senni­leg­ast að hún hafi þró­ast frá homo erectus en minnkað vegna sér­stakra aðstæðna á Flores.

Nýlega fund­ust svo leifar um aðra álíka smáa teg­und á Fil­ipps­eyjum sem renndi stoðum um að ekk­ert væri óeðli­legt við Flores-fólkið.

Nú – þetta hefur nú allt saman verið á almanna vit­orði árum saman.

En á síð­asta ári bar nýrra við.

Þá fund­ust nefni­lega á Flores nýjar leifar af litla mann­fólk­inu þar og kemur þá ekki á dag­inn að þar virð­ist um að ræða sjón­ar­mun minna fólk heldur en fannst 2003 og það svo miklu minna að vís­inda­menn eru meira að segja að bræða með sér hvort þeir eigi að kalla það sér­staka teg­und.

Stór – lítill – stærri

Og það sem meira var – með ein­hverjum aðferðum sem ég kann ekki að skýra, þá komust vís­inda­menn fljót­lega að því að þessir nýfundnu „enn þá-minni-Hobbitar“ væru í raun­inni for­feður og for­mæður hins áður­fundna Flores-fólks.

Þessi minni sort af homo flor­esi­enses er svo lítil að um skeið kvikn­aði sú kenn­ing að hún gæti ekki hafa þró­ast frá homo erectus. Hún hlyti að hafa þró­ast beint frá ein­hverri „suð­ur­apa“-teg­und eins og hinni víð­frægu Lucy. Suð­ur­ap­arnir gátu svo aftur af sér aðrar og þró­aðri teg­undir, þar á meðal homo habilis sem aftur gat af sér homo erectus.

En hlaut ekki þetta örlitla Flores-fólk að vera komið beint frá suð­ur­öp­unum?

Þótt eng­inn hafi hingað til vitað til þess að suð­ur­ap­arnir hafi nokkurn tíma farið frá Afríku þar sem þeir urðu til.

Um þetta hafa vís­inda­menn brotið heil­ann síð­asta hálfa árið.

En nú mun nið­ur­staða komin.

Of löng leið

Flores-fólkið, hvorki minni sortin né sú stærri, er ekki komið af suð­ur­öpum.

Heldur sé raunin sú, eins og áður var talið, að teg­undin (eða teg­und­irnar) séu báðar komnar af homo erectus.

Nú lítur lík­leg­asta kenn­ingin þannig út að fyrir um milljón árum hafi ein ætt­kvísl homo erectus ein­angr­ast þegar sjáv­ar­borð hækk­aði skyndi­lega í Suð­austur-Asíu og eyjan Flores varð til. Þá voru um 800.000 ár síðan erectus yfir­gaf Afríku, fyrsta mann­teg­und að vitað er.

Nákvæm­lega hvenær og hvers vegna Flores ein­angr­að­ist er ekki vitað en eftir á voru um 60 kíló­metrar frá eyj­unni til næstu stóru eyja á svæð­inu.

Það var of löng leið til þess að nokk­urt sam­band gæti orðið milli erectus-fólk á Flores og umheims­ins.

Hvað þarf langan tíma?

Hve mörg þau hafi verið af kyni erectus sem nú ein­angr­uð­ust á Flores er auð­vitað engin leið að segja með vissu því alltof fátt hefur enn fund­ist af stein­gerv­ingum og/eða beina­leifum á eyj­unni. Hins vegar virð­ist nú ljóst að „aðeins“ 300.000 árum síðar hafi hin smærri útgáfa af homo flor­esi­ensis verið komin fram.

Í fyrstu kann það að virð­ast alltof skammur tími til þess að ný dýra­teg­und þró­ist út frá annarri, tala nú ekki þegar um svo mik­inn (stærðar)mun er að ræða eins og milli homo erectus og homo flor­esi­ensis en raunin er nú samt sú að sá tími dugar ljóm­andi vel.

Vís­inda­menn hafa rann­sakað í þaula hvernig dverg­vöxtur fíla á Mið­jarð­ar­hafs­eyjum þró­að­ist frá því að venju­legir fílar ein­angr­uð­ust á ýmsum eyjum þegar sjáv­ar­mál hækk­aði og nið­ur­staða þeirra er næstum ótrú­leg.

Fílar smækka á leifturhraða

Það gæti vissu­lega hafa tekið um 20.000 ár fyrir fíla­teg­undir að smækka frá því að vera fjórir metrar á hæð og niður í einn metra, en það kann líka að hafa tekið ekki nema 1.300 ár!

Það er að segja aðeins á 40 kyn­slóðum hinna lang­lífu fíla, sem hljómar nátt­úr­lega eins og nærri brjál­æð­is­legur hraði á þró­un­inni. 

Svo þótt 300.000 ár virð­ist við fyrstu sýn of skammur tími til að alveg ný mann­teg­und hafi þró­ast frá homo erectus á Flores, þá er það í raun­inni alveg nægur tími.

Og það sem kemur kannski ein­hverjum á óvart er að þeim mun færri ein­stak­lingar af kyni erectus sem urðu inn­lyksa á Flores, þeim mun skemmri tíma tók það lík­lega fyrir nýju teg­und­ina að verða til – bæði að smækka um helm­ing og sitja uppi með næstum helm­ingi létt­ari heila, án þess vel að merkja að missa í nokkru hæfni til að búa til stein­ald­ar­tól eða þurfa að þola „frum­stæð­ari“ lifn­að­ar­hætti.

Stækkaði aftur?

Eftir því sem best er vitað voru lífs­hættir homo flor­esi­ensis nefni­lega í fáu frá­brugðnir lífsmáta homo erectus þótt heili þess fyrr­nefnda væri helm­ingi minni bæði að rúm­máli og þyngd.

Í raun mun vera einna lík­leg­ast að hóp­ur­inn sem ein­angr­að­ist á Flores og gat svo af sér nýja teg­und á (í hæsta lagi) 300.000 árum hafi ekki talið nema 50 ein­stak­linga.

Í hæsta lagi 300.

Ef fjöld­inn hefði verið meiri, þá hefði gena­mengi erectus-fólks á Flores nefni­lega verið stöðugri og það hefði þá áreiða­nega tekið mun lengri tíma fyrir nýja teg­und, eða teg­undir, að verða til.

En eftir að hinn nýupp­götv­aði minni Flores-maður var á annað borð orð­inn til, þá virð­ist sem sé að minnsta kosti hluti teg­und­ar­innar hafi stækkað aftur en þó aðeins upp í þá stærð sem homo flor­esi­ensis mælist í, það er um einn metri.

Hvað finnst næst?

Óþarft er að taka fram að æ fleiri stein­gerv­inga­fræð­ingar flykkj­ast nú til Flores í von um að finna fleiri bein og mann­vist­ar­leifar þar í jörð. Kannski er margt fleira þar ófundið sem getur kennt okkur enn fleiri lex­íur um til­urð okkar og for­tíð.

Líka er von­andi óþarft að taka fram, en best að gera það samt, að lág­vaxnir ætt­bálkar nútíma­manna, svo­kall­aðir pygmíar, eiga ekk­ert skylt við homo flori­enses eða aðrar þær mann­teg­undir sem hér hefur verið fjallað um. Pygmíar, sem þekkj­ast bæði í Mið-Afríku og Suð­austur-Asíu (Taron-þjóðin sem nú býr í Mjanmar), eru ein­fald­lega komnir af þeim sömu homo sapi­ens og allt annað fólk í ver­öld­inni. Pygmíar nútím­ans eru reyndar mun hærri en Flores-fólkið. Karlmenn eru að með­al­tali 140–150 senti­metra háir en konur ívið lægri.

„Hópurinn sem ein­angr­að­ist á Flores og gat af sér nýja mann­teg­und taldi senni­lega ekki nema 50 ein­stak­linga
Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár