Sunna Ósk og Bjartmar verðlaunuð fyrir rannsóknarblaðamennsku

Sunna Ósk Loga­dóttir og Bjartmar Oddur Þeyr Alex­and­ers­son voru verð­launuð fyrir frétta­skýr­ingu sína um Running Tide við afhend­ingu Blaða­manna­verð­launa Blaða­manna­fé­lags Íslands fyrr í dag.

Sunna Ósk og Bjartmar verðlaunuð fyrir rannsóknarblaðamennsku

Sunna Ósk Loga­dóttir og Bjartmar Oddur Þeyr Alex­and­ers­son eru rann­sókn­ar­blaða­menn árs­ins 2024 og blaða­maður árs­ins er Freyr Gígja Gunn­ars­son. Blaða­manna­verð­laun Blaða­manna­fé­lags Íslands voru afhent í Grósku fyrr í dag. Þau eru veitt í fjórum flokkum – fyrir umfjöllun árs­ins, við­tal árs­ins, rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins og blaða­manna­verð­laun árs­ins.

Verð­launin fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku fengu Sunna Ósk Loga­dóttir og Bjartmar Oddur Þeyr Alex­and­ers­son fyrir frétta­skýr­ingar um fyr­ir­tækið Running Tide í Heim­ild­inni.

„Áhrifa­mikil umfjöllun sem afhjúpaði skýja­borgir fyr­ir­tæk­is­ins Running Tide sem seldi van­hugs­aðar lausnir á lofts­lags­vand­anum. Rætt var við fjölda vís­inda­manna sem gagn­rýndu vinnu­brögð fyr­ir­tæk­is­ins og þá var fjölda­margra gagna aflað við rann­sókn­ina sem vörp­uðu ljósi á hvernig bæði stjórn­völd og eft­ir­lits­stofn­anir brugð­ust hlut­verki sínu varð­andi starf­semi Running Tide. Fyr­ir­tækið hætti starf­semi sinni bæði á Íslandi og í Banda­ríkj­unum um það leyti sem umfjöllun Heim­ild­ar­innar birt­ist,“ sagði í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar. 

Blaða­manna­verð­laun árs­ins hlaut Freyr Gígja Gunn­ars­son, frétta­maður á RÚV, fyrir frétta­skýr­ingar sínar í Spegl­inum. Hann þótti sýna ein­staka þraut­seigju í að krefja stjórn­völd um svör í ýmsum frétta­málum og hafa dregið nýjar upp­lýs­ingar fram í dags­ljósið í krafti upp­lýs­inga­laga og sett þær í sam­hengi. 

Eva Björk Bene­dikts­dóttir á RÚV fékk verð­laun fyrir við­tal árs­ins 2024. Við­ur­kenn­ing­una fékk hún fyrir við­tal sitt við Hafdísi Báru Ósk­ars­dóttur sem varð fyrir lífs­hættu­legri lík­ams­árás af hendi barns­föður síns og fyrr­ver­andi sam­býl­is­manns. 

Verðlaun fyrir umfjöllun árs­ins hlaut Berg­hildur Erla Bern­harðs­dóttir, á frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar, fyrir sjón­varps­þátta­röð­ina Vist­heim­ilin. 

Verð­launa­hafar árs­ins 2024.

Fyr­ir­vari: Hér er fjallað um mál er varða Heim­ild­ina með beinum hætti.
Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Birgit Braun skrifaði
    Bravó....mest hef ég lesið eftir Sunnu...hugrök kona !
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár