Umhverfisráðherra segir verkefnið að rjúfa fylgni hagvaxtar og losunar

Jóhann Páll Jóhanns­son segir það segja sig sjálft að það sé ekki fagn­að­ar­efni að losun koltví­sýr­ings frá starf­semi stórra fyr­ir­tækja eins og Icelandair auk­ist á milli ára. Rík­is­stjórnin vilji að fyr­ir­tæki geti stækkað án þess að útblástur auk­ist og kolefn­is­sporið stækki.

Umhverfisráðherra segir verkefnið að rjúfa fylgni hagvaxtar og losunar

„Það segir sig sjálft að það er aldrei fagn­að­ar­efni þegar losun stórra fyr­ir­tækja eykst,“ segir Jóhann Páll Jóhanns­son, umhverfis-, orku og lofts­lags­ráð­herra, um aukna losun frá starf­semi Icelandair. Heim­ildin fjall­aði um áætl­aðan kostnað vegna los­un­ar­innar á föstu­dag. 

Jóhann Páll segir að rík­is­stjórnin sé með metn­að­ar­full mark­mið um að losa minna og binda meira. „Og þá er kannski stóra áskor­unin að rjúfa fylgn­ina milli hag­vaxtar í efna­hags­lífi og los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda,“ segir hann. „Við viljum að fyr­ir­tæki geti stækkað og aukið umsvif sín og að meira verði til skipt­anna án þess að útblástur auk­ist og kolefn­is­sporið stækki.“

Í umfjöllun Heim­ild­ar­innar á föstu­dag kom fram að var­fær­ið mat á kostn­aði við beina los­un gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í starf­semi Icelanda­ir nemi níu millj­örð­um króna, sam­kvæmt sömu mæli­kvörðum og not­aður var til að meta kostnað og ábata lofts­lags­að­gerða stjórn­valda í des­em­ber. Sam­fé­lags­leg­ur kostn­að­ur, áætl­að­ur kostn­að­ur …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • IB
    Ingimundur Bergmann skrifaði
    Að stækka án þess að taka meira pláss er snúið og efamál að nokkrir aðrir geti fundið út hvernig hægt sé að ná því fram en svokallaðir ,,umhverfisæðingar".
    Að niðurstaða þeirra myndi standast skoðun er hreint ekki líklegt!
    0
  • Birgit Braun skrifaði
    Mh...ég á erfitt með að skilja þetta: Ísland byggir efnahagslíf sitt á ferðaþjónustu...sem þyðir: farþegar og vörur af öllu tagi eru í vaxandi mæli flutt til landsins=> flutningur þyðir losun og mengun. Fleiri rafbilar => fleiri orkuver => náttúrueyðilegging (þar sem við höldum fast í stóriðnaðinn sem étur rúmlega 80% af framleiddri orku landsins) ...Hvernig væri að skipta um gír? Hágæða túrísmi í staðinn fyrir fjöldatúrísma?
    Hugmyndin um endalausan einhlíða hagvöxt gengur bara ekki upp...
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár