Mynd: Golli

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins: Stuðningsmaður Áslaugar býst við mótframboði á næsta fundi

Blaða­maður Heim­ild­ar­innar var við­staddur 45. lands­fund Sjálf­stæð­is­flokks­ins um helg­ina. Þar komu við sögu hnífjafnar for­manns­kosn­ingar, land­vinn­ingar sjálf­stæð­is­manna í Kópavogi á fjöl­miðla­borð­inu og kampa­víns­bjalla.

Föstudagur 28. febrúar 2025

Ég stend í einni af mörgum bið­röðum fólks inni í Laug­ar­dals­höll og bíð þess að skrá mig inn á eina stærstu stjórn­mála­sam­komu á Íslandi, lands­fund Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

„Verið til­búin með skil­ríkin!“ stendur á töflum fyrir ofan afgreiðsl­una. Ég giska á að það séu svona sjö­tíu manns hérna sem bíða þess að skrá sig inn. Þetta minnir dálítið á inn­rit­un­ar­sal í flug­stöð.

Það er föstu­dagur og klukkan er að verða fjögur. Þetta er fyrsti dagur fund­ar­ins af þremur. 

Guðrún Haf­steins­dóttir, sem er í fram­boði til for­manns, kemur inn þegar ég hef staðið í röð­inni í örstutta stund. Hún er bros­andi og faðmar strax einn flokks­mann að sér. Hún gengur að röð­inni við hlið­ina á þeirri sem ég stend í og heilsar fólk­inu þar. Guðrún biður þó fljót­lega mann, sem virð­ist á hennar vegum, að standa í stað­inn fyrir hana í röð­inni á meðan hún heilsar fleirum. Röðin …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Það er aldeilis að það er lagt í myndasýningu af landsfundi xD mafíunnar! Þessi flokkur er með < 20 % fylgi í dag. Var svona flott umfjöllun af landsfundi Samfylkingar, Viðreisn og Flokki fólksins? Í dag fáið þið uppsagnarbréf mitt, ég vil ekki sjá Heimildina meira.
    -4
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Óþarfi að vera með svona slettur í garð Áslaugar, þó henni hafi orðið á að tala eins og forréttinda stelpa þarna um árið. Hún er ábyggilega hörkudugleg, þó ég voni að hun verði málefnaleg í ríkisstjórn og stjórnarandstöðu. Vona að þinginu lánist að vera duglegt að afgreiða mál en ekki eyða dýrmætum tíma í karp og skítkast.
    1
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Nú getur Áslaug Arna einbeitt sér að humrinum og kampavínssötrinu :-)
    0
  • GGJ
    Guðl. Gauti Jónsson skrifaði
    Góð grein en eins og svo oft fer GOLLI með sigur af hólmi.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár