Meirihluti Airbnb-leigusala á Íslandi með fleiri en eina eign

Vís­bend­ingar eru um að aukið fram­boð skamm­tíma­leigu­í­búða hafi haldið fram­boði á leigu­mark­aði í skefjum, sem þrýstir leigu­verði upp. Hlutfall leigu­sala á Íslandi sem eru með fleiri en tíu eignir á Airbnb hefur næstum þre­fald­ast frá árinu 2015.

Meirihluti Airbnb-leigusala á Íslandi með fleiri en eina eign

Framboð á íbúðum til lang­tíma­leigu virð­ist hafa dreg­ist saman sam­hliða auknu umfangi skamm­tíma­leigu, sem að stærstu leyfi fer fram í gegn um Airbnb. Í upp­hafi var mark­mið Airbnb að miðla skamm­tíma­út­leigu heim­ila í anda deili­hag­kerf­is­ins. Í dag rekur hins vegar stór hluti þeirra leigu­sala sem bjóða fram leigu­hús­næði í gegnum Airbnb eða aðrar sam­bæri­legar leigu­miðl­anir fleiri en eina skamm­tíma­leigu­eign. Á Íslandi eru 65 pró­sent allra íbúða á Airbnb með leigu­sala sem sjá um tvær eða fleiri eignir á mark­aðnum. 

Meiri­hluti íbúða sem leigðar eru út á Airbnb á Íslandi, eða um 67% þeirra, eru í eigu leigu­sala sem leigja út fleiri en eina eign. Einungis 33% skráðra eigna á vegum leigu­sala með eina eign til útleigu. Frá árinu 2021 hefur hlut­deild leigu­sala sem eiga eina eign tæp­lega tvö­fald­ast, eða úr 17% í byrjun árs 2021 í 32% í lok árs 2024. Samhliða því hefur hlut­deild leigu­sala með fleiri en 10 eignir í leigu næstum þre­fald­ast, úr 10 pró­sentum árið 2015 í 28 pró­sent í des­em­ber 2024.

Hlutfall skráðra eigna á Airbnb eftir teg­und leigu­salasept. 2014-sept. 2024

Þetta kemur fram í nýjum veg­vísi leigu­mark­aðar sem HMS, Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun, gefur út. Veg­vísir­inn er liður í stefnu­mót­un­ar­verk­efni HMS um kort­lagn­ingu leigu­mark­aðar á Ísland en honum er honum að vera heild­stæð árleg sam­an­tekt á stöðu og þróun leigu­mark­aðar. Hann er einnig hugs­aður sem inn­legg í stefnu­mótun stjórn­valda í mála­flokknum. Ný rík­is­stjórn hyggst ráð­ast í bráða­að­gerðir í hús­næð­is­málum, meðal ann­ars til að fjölga íbúðum hratt og fara í kerf­is­breyt­ingar sem miða að jafn­vægi á hús­næð­is­mark­aði. Sérstök áhersla var lögð á grein­ingu skamm­tíma­leigu­mark­aðar og áhrifum hans á leigu­mark­að­inn að þessu sinni þar sem ónægar upp­lýs­ingar hafa legið fyrir um umfang hans og áhrif.

Ferða­þjón­usta hefur vaxið hratt á und­an­förnum árum og til­koma skamm­tíma­leigu­miðl­ana hefur gjör­breytt ferða­venjum fólks. Þessi þróun hefur haft veru­leg áhrif á hús­næðis- og leigu­markað hér­lendis sem og erlendis.

Fjöldi Airbnb-eigna í útleigu fleiri en 90 daga á ári

Í fyrra voru tæp­lega 4500 Airbnb-eignir í útleigu í fleiri en 90 daga á ári en fjöld­inn hefur vaxið ár frá ári síðan 2020 þegar hann var í lág­marki sem vænt­an­lega má rekja til áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á ferða­mennsku. Á árinu 2023 voru um 4.310 eignir leigðar út í fleiri en 90 daga á árinu og fjölg­aði þeim um 22 pró­sent milli ára, úr 3.536 eignum árið 2022 í 4.310 eignir árið 2023. Minni breyt­ing var á milli 2023 og 2024 en þá fjölg­aði Airbnb-eignum sem voru í stöðugri útleigu um 3,6 pró­sent. 

Í skýrslu sinni vísar HMS í grein Lúðvíks Elí­as­sonar og Önundar Páls Ragn­ars­sonar frá 2018 þar sem sýnt er fram á að skamm­tíma­leiga í gegnum Airbnb hafi hækkað raun­verð íbúða í Reykja­vík um 2 pró­sent á ári frá  2014 til 2017. Þetta jafn­gildir 15 pró­sent af allri raun­verðs­hækkun íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á tíma­bil­inu.

Ef rýnt er í hlut­fall Airbnb-eigna af heild­ar­fjölda íbúða eftir lands­hlutum og hverfum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sést að hlut­fall Airbnb-eigna af heild­ar­fjölda íbúða er áber­andi hæst í miðbæ Reykja­víkur og á Suð­ur­landi. 

Þurfi að sporna við skammtímaleigu

Í skýrslu HMS segir að vís­bend­ingar séu um að aukið fram­boð skamm­tíma­leigu­í­búða hafi haldið fram­boði á leigu­mark­aði í skefjum, sem þrýstir leigu­verði upp. Stjórn­völd víða um heim hafa brugð­ist við þess­ari þróun með því að setja skorður fyrir skamm­tíma­leigu. 

Ein af til­lögum HMS til úrbóta á leigu­mark­aðnum er að tryggja þurfi að nýt­ing íbúð­ar­hús­næðis sé til búsetu, bæði með því að sporna við skamm­tíma­út­leigu íbúð­ar­hús­næðis og með því að end­ur­nýta atvinnu­hús­næði í þeim til­gangi. 

Þrátt fyrir að stjórn­völd leggi áherslu á að fjölga þeim sem búa í eigin hús­næði í hús­næð­is­stefnu sinni er ljóst að þörfin á leigu­hús­næði er mikil og á eftir að aukast enn frekar næstu árin ef mann­fjölda­spá Hagstofu er skoðuð.

Nið­ur­stöður þeirra grein­inga sem HMS hefur fram­kvæmt á leigu­mark­að­inum gefa til kynna að auk­inn vandi sé aðsteðj­andi.

Tillögur HMS til úrbóta, eins og þær eru settar fram í veg­vís­inum:

  1. Auka þarf fram­boð íbúða veru­lega og líta til þess að upp­bygg­ing taki mið af þörfum hvað varðar eig­in­leika, verð og búsetu­form sem og að stuðla að aðkomu líf­eyr­is­sjóða á leigu­mark­að­inn.
  2. Hús­næð­is­stuðn­ingur þarf að vera mark­viss­ari og stuðla að upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis sem og að sam­eina þurfi kerfi hús­næð­is­bóta og sér­staks hús­næð­is­stuðn­ings sveit­ar­fé­laga. Komi til upp­bygg­ingar fær­an­legs hús­næðis og búsetu í atvinnu­hús­næði ætti að meta hvort hús­næð­is­stuðn­ingur næði til slíks hús­næðis.
  3. Tryggja þarf að nýt­ing íbúð­ar­hús­næðis sé til búsetu bæði með því að end­ur­nýta atvinnu­hús­næði í þeim til­gangi og með því að sporna við skamm­tíma­út­leigu íbúð­ar­hús­næðis.
  4. Innleiða þarf almenna skrán­ing­ar­skyldu húsa­leigu­samn­inga svo að aukin yfir­sýn fáist yfir leigu­mark­að­inn.
Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Vegvísir HMS um leigumarkaðinn sem kynntur var í gær er mjög áhugaverður. Gott framtak. Varðandi tillögur til stjórnvalda er varða húsnæðismarkaðinn, þá hefði ég einnig viljað nefna eftirspurnarhliðina, ekki bara framboðshliðina. Gríðarlega fólksfjölgun mörg undanfarin ár, þá mestu frá miðbiki átjándu aldar, allt að 10þús íbúa fjölgun á ári, er erfiðasti þáttur húsnæðisvandans. Að mestu er fjölgunin erlendir ríkisborgarar (98% fjölgunar í Rvík) sem að mestu má beint eða óbeint rekja til vaxtar ferðaþjónustunnar (starfsfólk ferðaþjónustu, starfsfólk við byggingu hótela og annars gistirýmis og margföldunaráhrif þar af). Ferðaþjónustan vex stjórnlaust, meir en fimmfalt hraðari vöxtur (fjöldi ferðamanna sem hlutfall af íbúafjölda) en í samanburðarlöndum okkar, t.d. löndum norðan Alpafjalla. Öll þessi lönd hafa mjög styrka stjórn á fjölgun ferðamanna til að koma í veg fyrir að ferðaþjónustan leggi innviði á hliðina, t.d. húsnæðismarkað, samgöngukerfi, skólakerfi o.s.frv. Skipulagsmál er snúa að hótelum og gistirými og Airbnb og afkastageta samgönguinnviða, t.d flugvalla, eru allsstaðar nema hér nýtt til að hafa stjórn á fjölda ferðamanna og þar með álagi á innviði. Regluverk sem snýr að Airbnb þarf vissulega að endurskoða til að draga úr áhrifum ferðaþjónustu á eftirspurn á íbúðamarkaði, en það er bara svo ótalmargt fleira sem þarf að huga að t.d. atvinnustefna - Er stefnan að breyta landinu hröðum skrefum í láglauna ferðamannaland sem leiðir óhjákvæmilega til lengdar til síhækkandi skatta eða á að setja markið hærra með eflingu hálauna þekkingarþjóðfélags þar sem menntakerfi t.d. raungreinar og grunnrannsóknir og sprotafyrirtæki eru í forgrunni?
    9
    • SHP
      Sigrún H. Pálsdóttir skrifaði
      Seðlabankastóri hefur einmitt bent á þörfina á atvinnustefnu til að sporna við því að Ísland verði láglaunaland.
      3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár