Tímamót hjá Sameinuðu þjóðunum þegar Bandaríkin studdu Rússa í dag

Ásamt Norður-Kóreu, Rúss­landi og 16 öðrum ríkjum tóku Banda­ríkin afstöðu gegn ályktun um að for­dæma „alls­herj­ar­inn­rás Rússa“. Þau vildu milda orða­lagið.

Tímamót hjá Sameinuðu þjóðunum þegar Bandaríkin studdu Rússa í dag
Banda­ríkin með Rússum Dorothy Shea, sendi­herra Banda­ríkj­anna gagn­vart Sam­ein­uðu þjóð­unum, færir rök fyrir máli sínu fyrir Alls­herj­ar­þingi SÞ í dag. Tillaga Banda­ríkj­anna gekk út á að nefna ekki yfir­ráð Úkraínu innan eigin landamæra og nefna ekki ábyrgð Rússa á inn­rás þeirra í Úkraínu sem hefur staðið yfir í þrjú ár í yfir­stand­andi lotu. Mynd: AFP

Þau tíma­mót urðu fyrir alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna í dag að Banda­ríkin tóku afstöðu með Rúss­landi, Norður-Kóreu og 16 öðrum ríkjum gegn því að for­dæma „alls­herj­ar­inn­rás Rúss­lands í Úkraínu“.

Banda­ríkin höfðu lagt til ályktun með mild­ara orða­lagi í þágu Rússa, með þeim hætti að lýsa „deilu Rúss­lands og Úkraínu“. Það er í sam­ræmi við lýs­ingar Kínverja í gegnum tíð­ina, en Kína sat hjá í atkvæða­greiðsl­unni.

Alls­herj­ar­þingið sam­þykkti álykt­un­ina, sem Evr­ópu­sam­bands­ríki og Úkraína lögðu fram, um að for­dæma inn­rás Rússa með atkvæðum 93 ríkja, meðal ann­ars Íslands. 65 ríki sátu hjá og 18 greiddu atkvæði gegn henni, en ásamt Banda­ríkj­unum voru það Ung­verja­land, Ísrael, Hvíta Rússland, Ník­aragúa, Haítí og til við­bótar fyrst og fremst Afr­íku­ríki.

Þetta er sam­kvæmt sam­an­tekt Upp­lýs­inga­skrif­stofu Sam­ein­uðu þjóð­anna mikil breyt­ing frá ályktun um inn­rás­ar­stríðið þegar það hófst fyrir þremur árum. Þá greiddu 141 ríki atkvæði með for­dæm­ingu inn­rás­ar­innar, en 35 sátu hjá og aðeins fimm voru á móti.

Með þessu form­ger­ist að Banda­ríkin hafa breytt áherslu sinni og styðja nú mál­stað Rúss­lands fremur en mál­stað Úkraínu og Evrópu. Speglast það sömu­leiðis í orð­ræðu Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta, sem hefur í bland við ýmis önnur ósann­indi kennt Úkraínu um stríðið og sagt að Volody­myr Zelensky Úkra­ínu­for­seti sé ein­ræð­is­herra. Í umfjöllun New York Times um atkvæða­greiðsl­una kemur fram að evr­ópskir diplómatar hafi reiðst Banda­ríkja­mönnum vegna afstöðu þeirra gegn banda­mönnum sínum. Ekki hafi orðið við­líka klofn­ingur milli vest­rænna lýð­ræð­is­ríkja hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum frá tímum Íraks­stríðs­ins. Þá hefur því verið lýst að diplómatar Evr­ópu­ríkja og Banda­ríkj­anna keppt­ust í dag við að afla fylgis við sínar útfærslur meðal ríkja í Afríku, Asíu og Suður-Ameríku á alls­herj­ar­þing­inu.

Nið­ur­staða atkvæða­greiðsluVestræn lýð­ræð­is­ríki, utan Banda­ríkj­anna og Ung­verja­lands, studdu ályktun gegn inn­rás Rússa.

Í með­förum Banda­ríkj­anna hljóð­aði þings­á­lykt­un­ar­til­lagan sem svo að „hvetja til taf­ar­lausra enda­loka deil­unnar og var­an­legs friðar milli Úkraínu og Rúss­lands.“

Í breyt­ing­ar­til­lögu var orða­lagi um „deilu“ breytt í „alls­herj­ar­inn­rás Rúss­lands“ og setn­ingu um „var­an­legan frið milli Úkraínu og Rúss­lands“ skipt út fyrir „rétt­látan, var­an­legan og altækan frið milli Úkraínu og Rúss­lands, í sam­ræmi við sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna og meg­in­reglur um jafn­ræði full­valda ríkja og land­helgi þeirra“.

Sömu­leiðis var bætt við efn­is­grein um rétt­indi Úkraínu, með þeim hætti að „stað­festa skuld­bind­ingu við full­veldi, sjálf­stæði, ein­ingu og yfir­ráð Úkraínu innan alþjóð­lega við­ur­kenndra landamæra hennar, þar með talið land­helgi.“

Sem fyrr segir voru Banda­ríkin and­víg breyt­ing­unum og skáru sig þar úr hópi helstu lýð­ræð­is­ríkja heims­ins. Í máli Dorothy Shea, sendi­herra Banda­ríkj­anna gagn­vart Sam­ein­uðu þjóð­unum, kom fram að fyrri álykt­anir, sem for­dæmdu Rússa, hefðu ekki náð að stöðva stríðið.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Hvernig ætli kanasleikjunum í Sjálfstæðisflokknum lítist á stjórnmálaástandið í Washington ?
    3
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Why doesn't the article mention that the UN General Assembly resolutions are non binding? And why doesn't the article mention that the US/Russia draft resolution was adopted in the UN Security Council and that this resolution is binding?
    2
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Það kemur varla neinum á óvart að Öfga Hægrimenn með völdin í ríkisstjórnum finnist best að standa saman gegn lýðræðinu í frjálslyndum ríkjum. Ofbeldismenn skipta þá öllu máli og Pútín er einn af þeim.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár