Landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður haldinn dagana 28. febrúar - 2. mars í Laugardalshöll. Þetta ákvað miðstjórn flokksins á fundi sínum fyrr í dag, en síðustu vikur hefur verið tekist á það um hvort fresta ætti fundinum vegna árstíma og veðurs.
Landsfundur er stærsta stjórnmálasamkoma á Íslandi og hann fer með æðsta vald í málefnum flokksins. Þar verður meðal annars kosinn nýr formaður Sjálfstæðisflokksins, en Bjarni Benediktsson kynnti fyrr í mánuðinum að hann hygðist ekki sækjast eftir endurkjöri.
Enginn hefur enn tillkynnt um framboð sitt til formanns en Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður flokksins, Guðlaugur Þór Þórðarson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hafa helst verið nefnd sem hugsanlegir arftakar Bjarna.
Á vegum flokksins starfa málefnanefndir sem skila álitsgerðum og tillögum til landsfundar auk drög að ályktunum fyrir fundinn. Nýjar málefnanefndir verða kosnar á fundinum í næsta mánuði.
Fólk víða að í málefnanefndum
Athyglisvert er að skoða hverjir hafa verið að sinna málefnastarfinu í hinum ýmsu nefndum. Til dæmis er Jens Garðar Helgason, nýkjörinn þingmaður og fyrrverandi formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), formaður atvinnuveganefndar flokksins. En framkvæmdastjóri SFS, Heiðrún Lind Marteinsdóttir er meðal nefndarmanna í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Þá er Andrea Sigurðardóttir, annar fréttastjóri á viðskiptaritstjórn Morgunblaðsins, formaður í utanríkismálanefnd. Í þeirri nefnd sitja einnig starfandi og fyrrverandi þingmenn flokksins svo sem Diljá Mist Einarsdóttir, Jón Gunnarsson og Birgir Þórarinsson.
Meðal nefndarmanna umhverfis- og samgöngunefndar er Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, sem var framkvæmdastjóri loftslagsfyrirtækisins Running Tide á Íslandi.
Í velferðarnefnd er Hannes Þórður Hafstein Þorvaldsson, landsliðsmaður í karókí, meðal nefndarmanna ásamt Ásmundi Friðrikssyni, Bryndísi Haraldsdóttur og Óla Birni Kárasyni.
Aðeins færri sitja í upplýsinga- og fræðslunefnd en hinum málefnanefndunum en í henni eru meðal annars Magnús Sigurbjörnsson, forstöðumaður Rannsóknarseturs verslunarinnar, auk Védísar Hervarar Árnadóttur, miðlunarstjóra Samtaka atvinnulífsins.
Hér að neðan má sjá hvernig málefnanefndir Sjálfstæðisflokksins eru skipaðar:
Allsherjar- og menntamálanefnd
Formaður: Kristinn Hugason
Aðrir nefndarmenn: Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Birna Hafstein, Þorkell Sigurlaugsson, Viktor Ingi Lorange, Sigríður Hallgrímsdóttir, Margrét Sæmundsdóttir, Hafdís Gunnarsdóttir, Jóhann Gunnar Kristjánsson, Hafrún Olgeirsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir og Birgir Þórarinsson.
Atvinnuveganefnd
Formaður: Jens Garðar Helgason
Nefndarmenn: Birta Karen Tryggvadóttir, Kristín S. Þorsteinsdóttir Bachmann, Örvar Már Marteinsson, Svavar Svavars Halldórsson, Bjarni Theódór Bjarnason, Sigríður Ólafsdóttir, Margrét Rúnólfsdóttir, Heiðar Hrafn Eiríksson, Helga Jóhanna Oddsdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Ásmundur Friðriksson og Óli Björn Kárason.
Efnahags- og viðskiptanefnd
Formaður: Kristófer Már Maronsson
Aðrir nefndarmenn: Óttar Guðjónsson, Einar Þór Steindórsson, Þórður Ísberg Gunnarsson, Sigurður Ingi Sigurpálsson, Rósa Kristinsdóttir, Hildur Björnsdóttir, Teitur Björn Einarsson og Diljá Mist Einarsdóttir.
Fjárlaganefnd
Formaður: Sigríður Hallgrímsdóttir
Aðrir nefndarmenn: Guðmundur Árnason, Halldór Karl Högnason, Elín Engilbertsdóttir, Harpa Halldórsdóttir, Elías Pétursson, Már Másson, Emilía Ottesen, Gísli Freyr Valdórsson, Ásdís Kristjánsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Teitur Björn Einarsson og Vilhjálmur Árnason.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Formaður: Ingveldur Anna Sigurðardóttir
Aðrir nefndarmenn: Sólrún Ingunn Sverrisdóttir, Herdís Anna Þorvaldsdóttir, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir, Hilmar Vilberg Gylfason, Hilmar Gunnlaugsson, Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson, Regína Valdimarsdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Hildur Sverrisdóttir.
Umhverfis- og samgöngunefnd
Formaður: Helga Guðrún Jónasdóttir
Aðrir nefndarmenn: Herdís Anna Þorvaldsdóttir, Margrét Björnsdóttir, Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, Hilmar Ingimundarson, Kristinn Frímann Árnason, Snorri Ingimarsson, Guðbergur Reynisson, Vilhjálmur Árnason og Njáll Trausti Friðbertsson.
Utanríkismálanefnd
Formaður: Andrea Sigurðardóttir
Aðrir nefndarmenn: Sigurgeir Jónasson, Birna Hafstein, Bryndís Bjarnadóttir, Unnur Lilja Hermannsdóttir, Daníel Jakobsson, Orri Björnsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Birgir Þórarinsson og Jón Gunnarsson.
Velferðarnefnd
Kristín Traustadóttir, Hannes Þórður Hafstein Þorvaldsson, Sigrún Edda Jónsdóttir, Elínóra Inga Sigurðardóttir, Dýrunn Pála Skaftadóttir, Grazyna María Okuniewska, Helga Reynisdóttir, Hildur K. Sveinbjarnardóttir, Heimir Örn Árnason, Ásmundur Friðriksson Bryndís Haraldsdóttir og Óli Björn Kárason.
Upplýsinga- og fræðslunefnd
Formaður: Elsa B. Valsdóttir
Aðrir nefndarmenn: Magnús Sigurbjörnsson, Viggó Örn Jónsson, Davíð Ernir Kolbeins, Sandra Margrét Sigurjónsdóttir og Védís Hervör Árnadóttir.
Athugasemdir