Athugasemdir Carbfix: Leiðréttingar takmarkast við trúnað

Carbfix hefur gert fjöl­margar athuga­semdir við umfjöllun Heim­ild­ar­innar og er því komið á fram­færi hér. Fyr­ir­tækið ber við trúnað tví­vegis þegar kemur að leið­rétt­ingum. Þá úti­lokar fyr­ir­tækið ekki stækkun, en ber fyrir sig að slíkt yrði nýtt verk­efni.

Athugasemdir Carbfix: Leiðréttingar takmarkast við trúnað
Fram­kvæmda­stjóri Carbfix, Edda Sif Ara­dóttir.

Í prentút­gáfu Heim­ild­ar­innar er fjallað um fjár­fest­inga­kynn­ingu Carbfix frá árinu 2023. Í nóv­em­ber síð­ast­liðnum sam­þykkti bæj­ar­stjórn í Hafn­ar­firði íbúa­kosn­ingu um Coda Terminal-verk­efni Carbfix, þar sem til stendur að dæla 3 millj­ónum tonna af koldí­oxíði frá erlendum fyr­ir­tækjum í jörð. Í umfjöllun Heim­ild­ar­innar kemur fram að for­svars­fólk Carbfix hefur ekki veitt Hafn­firð­ingum sömu upp­lýs­ingar um fram­tíð­ar­á­form sín og kynntar voru fyrir fjár­festum. 

Umfjöllun Heim­ild­ar­innar byggir á gögnum frá Carbfix, sem sýna að fjár­festar hafa fengið kynn­ingar þar sem miðað er við að nið­ur­dæl­ing koldí­oxíðs verði mun umfangs meiri en áður hefur komið fram gagn­vart íbúum í Hafn­ar­firði. 

Í kjöl­far umfjöll­unar Heim­ild­ar­innar sendi Carbfix frá sér yfir­lýs­ingu, sem birt var á vef­síðum Orku­veit­unnar og Carbfix á föstu­dag, þar sem segir að áformin hafi birst í drögum að fjár­festa­kynn­ingu en ekki kynn­ingu sem lögð var fyrir fjár­festa. Það sam­ræm­ist ekki þeim gögnum sem Heim­ildin hefur undir höndum. 

Fjár­fest­inga­kynn­ingin var unnin af Morgan Stanley í júlí árið 2023 og byggir ein­göngu á upp­lýs­ingum sem fengnar eru frá fyr­ir­tæk­inu sjálfu. Gögnin voru merkt fjár­fest­inga­sjóðnum og eru 120 blað­síður á lengd. Morgan Stanley leiðir við­ræður við fjár­festa sam­kvæmt for­stjóra Orku­veitu Reykja­víkur. Gögnin eru ekki merkt sem vinnu­gögn, ólíkt ýmsum öðrum gögnum sem Heim­ildin hefur undir höndum tengdum Carbfix. 

Í fjár­fest­inga­kynn­ing­unni kemur skýrt fram að um sé að ræða trún­að­ar­gagn og í laga­legum fyr­ir­vara skjals­ins segir ítrekað að um sé að ræða kynn­ingu fyrir fjár­festa, nánar til­tekið EIG fjár­fest­ing­ar­sjóð.

Útiloka ekki stækkun

Fyr­ir­tækið neitar því ekki að mögu­lega yrði sótt um nýtt umhverf­is­mat til auk­innar nið­ur­dæl­ingar, eins og stefnt var að sam­kvæmt fjár­fest­inga­kynn­ing­unni og Heim­ildin greindi frá.  

Í yfir­lýs­ingu Carbfix segir að engin áform séu um frek­ari nið­ur­dæl­ingu að svo stöddu. Hins vegar er ekk­ert úti­lokað í þeim efnum: „Ef áhugi yrði á slíku,“ eins og það er orðað.

Fullyrt hefur verið bæj­ar­búa í Hafn­ar­firði að stefnt sé á að dæla niður 3 millj­ónum tonna af koldí­oxíði árið 2032. Fjöl­miðlar fjöll­uðu um málið sum­arið 2023 og út árið, en fyr­ir­tækið tók aldrei fram að mögu­leiki væri á stækkun. 

Í umfjöllun Heim­ild­ar­innar kemur fram að Carbfix kynnti fyrir fjár­festum fyr­ir­ætl­anir um að sækja um nýtt umhverf­is­mat árið 2026 fyrir auk­inni nið­ur­dæl­ingu, eða 4,8 millj­ónum tonna af CO2. Samkvæmt fjár­fest­inga­kynn­ing­unni áætlar fyr­ir­tækið að heim­ild til þess að dæla meiru niður verði komin árið 2028. 

Skriflegum svörum komið á framfæri 

Á föstu­dag birti Vísir yfir­lýs­ingu Carbfix og við­tal við fram­kvæmda­stjóra Carbfix, undir fyr­ir­sögn­inni „Furðar sig á blekk­ing­ar­brigslum Heim­ild­ar­innar“. Vísir birti ásak­anir Carbfix á hendur rit­stjórn Heim­ild­ar­innar fyr­ir­vara­laust, án þess að vísað væri í umfjöllun Heim­ild­ar­innar eða við­kom­andi veitt veitt færi á að svara fyrir miðlinn. 

Hvorki for­stjóri né stjórn­ar­for­maður Orku­veit­unnar vildu veita blaða­mönnum Heim­ild­ar­innar við­tal á meðan vinnslu grein­ar­innar stóð. 

Í yfir­lýs­ingu Carbfix segir að for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins séu til­búnir til að veita við­töl og frek­ari upp­lýs­ingar sé eftir því leitað. Í því sam­hengi ber að nefna að blaða­manni Heim­ild­ar­innar bauðst við­tal við vís­inda­menn Carbfix. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins mætti þangað en neit­aði að veita blaða­manni ítar­legt við­tal um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins síðar, þótt þess væri óskað.  

Skrif­legum svörum frá upp­lýs­inga­full­trúa Carbfix var hins vegar komið á fram­færi í umfjöll­un­inni.

Eftir birt­ingu grein­ar­innar bár­ust frek­ari athuga­semdir frá Carbfix. Þeim er komið á fram­færi hér að neðan, ásamt skýr­ingum Heim­ild­ar­innar. Ólafur Elín­ar­son, upp­lýs­inga­full­trúi Carbfix er skráður fyrir athuga­semd­unum. Athuga­semdir fyr­ir­tæk­is­ins eru merktar með nafni þess, Carbfix.

CARBFIX:

1. Það er ekki verið að blekkja Hafn­firð­inga 

Dæmi um full­yrð­ingar þess efnis í umfjöll­un­inni: 

Bls. 18: Fyr­ir­ætl­anir Carbfix eru mun umfangs­meiri en fram hefur komið. Stefnt er að því að  dæla niður allt að 4,8 millj­ónum tonna af koldí­oxíði (CO2) og fyr­ir­tækið von­ast til þess að  velta hátt í þrjú hund­ruð millj­örðum á fullum afköstum. 

Carbfix, fyr­ir­tæki Orku­veit­unnar sem fargar kolefnum með því að dæla þeim ofan í  jörð­ina, stefnir að mun meiri nið­ur­dæl­ingu á koldí­oxíði í Hafn­ar­firði en íbúum hefur verið  sagt frá.  

Í við­skipta­á­ætlun fyr­ir­tæk­is­ins segir að sótt verði um auknar heim­ildir til  nið­ur­dæl­ingar, í fyrsta árs­fjórð­ungi árið 2026. 

Í við­skipta­á­ætlun fyr­ir­tæk­is­ins kemur hins vegar fram að sækja eigi um annað  umhverf­is­mat á næsta ári og óska eftir að dæla mun meira magni en það ofan í jörð­ina. 

Bls. 19: en mark­miðið sé að nýta getu hafn­ar­innar til þess að flytja inn allt að 10 millj­ónir  tonna af koldí­oxíði á ári og sótt verði um auknar heim­ildir. 

Bls 21: Árið 2026 áætlar Carbfix að sækja um umhverf­is­mat (EIA) hjá Umhverf­is­stofnun til  þess að auka nið­ur­dæl­ingu um 60% og dæla þá niður alls 4,8 millj­ónum tonna af CO2 á ári.  Fyr­ir­tækið telur að máls­með­ferðin taki um 18–24 mán­uði. 

Fyr­ir­tækið áætlar að nið­ur­dæl­ing á 4,8 millj­ónum tonna af CO2 hefj­ist árið 2028.

Ofan­greint er rangt. Heim­ildin vitnar sjálf í orð fram­kvæmda­stýru Carbfix á opnum  íbúa­fundi þar sem hún segir "Við sjáum ekki fyrir okkur á þessu stigi frek­ari stækkun. Ef vel  gengur, það er mögu­legt, við þurfum bara að sjá til, við ætlum fyrst að byggja þetta".  Jafn­framt er mynd­band af því birt á vef Heim­ild­ar­innar. Þá er þetta enn fremur stað­fest í  skrif­legum svörum til Heim­ild­ar­innar sem birt­ist í umfjöll­un­inni. 

Það sem nefnt er í gögnum frá júní 2023 sem Heim­ildin hefur undir höndum sem Heim­ildin  full­yrðir að séu áform Carbfix eru sviðs­myndir og mögu­leikar: Farið er yfir  stækk­un­ar­mögu­leika þeirra verk­efna sem Carbfix vinnur nú þegar að, stækk­un­ar­mögu­leika  í nýjum verk­efnum hér­lendis og stækk­un­ar­mögu­leika í verk­efnum erlendis. Aldrei hefur átt  sér stað blekk­ing varð­andi magn CO2 sem áætlað er að dæla niður í Coda Terminal í  Straums­vík. Verk­efnið í Straums­vík verður full­byggt allt að 3 millj­ónir tonna á ári og frek­ari  umsvif myndu falla undir nýtt verk­efni og krefj­ast nýs leyf­is­fer­ils. Hins­vegar er mark­mið  Carbfix að hafa jákvæð áhrif á lofts­lag með skölun tækn­innar, bæði hér­lendis og erlendis.  

Athuga­semdir rit­stjórnar: 

  1. Orða­lagið að „blekkja íbúa“ er hvergi notað í umfjöllun Heim­ild­ar­innar, heldur er talað um að fyr­ir­tækið hafi falið áform sín fyrir bæj­ar­búum og vísað til þess að íbúar í Hafn­ar­firði fengu aðrar upp­lýs­ingar um fram­tíð­ar­á­form Carbfix en birt­ust í fjár­fest­inga­kynn­ingu Carbfix. Í kynn­ing­unni kemur skýrt fram að fyr­ir­tækið stefni á að óska eftir nýju umhverf­is­mati árið 2026, en þær tíma­setn­ingar hafa riðl­ast vegna umhverf­is­mats og íbúa­kosn­inga. 

  2. Hér má sjá áætl­anir Carbfix þegar kemur að því að sækja um nýtt umhverf­is­mat árið 2026. Þessum áætl­unum hefur aug­ljós­lega seinkað en litu engu að síður út með þessum hætti sum­arið 2023.
  3. Misræmi birt­ist í upp­lýs­ingum frá Carbfix varð­andi fram­tíð­ar­á­form um aukin umsvif Coda Terminal-verk­efn­is­ins í Hafn­ar­firði. Því er haldið fram að það sé rangt að það standi til að auka umsvifin, en á sama tíma sagt að „[...] frek­ari umsvif myndu falla undir nýtt verk­efni og krefj­ast nýs leyf­is­fer­ils,“ sem er sam­hljóma umfjöllun Heim­ild­ar­innar. Tekið er til orða með sams­konar hætti í öðrum yfir­lýs­ingum Carbfix. 

  4. Rit­stjórn Heim­ild­ar­innar hafnar því að um rang­færslu sé að ræða, þar sem umfjöllun fjallar um fjár­fest­inga­kynn­ingu Carbfix sem unnin var af Morgan Stanley í júlí 2023 út frá upp­lýs­ingum frá fyr­ir­tæk­inu, þar sem þessar fyr­ir­ætl­anir er að finna. Hins vegar væri æski­legt að Carbfix myndi upp­lýsa almenn­ing um áætl­anir sínar um hið „nýja verk­efni“ sem vísað er í. 

CARBFIX:

2. Það er ekki rétt að áformað sé að umrædd fyr­ir­tæki verði við­skipta­vinir 

Bls. 18: Heim­ildin er með lista yfir fyr­ir­tæki sem hafa gert vilja­yf­ir­lýs­ingu um förgun á  koldí­oxíði í gegnum Carbfix. 

Bls. 18: Á meðal við­skipta­vina er fyr­ir­tæki sem framdi glæp gegn mann­kyni og vill dæla  niður CO2 á Íslandi. 

Bls. 18: Á meðal þeirra eru alræmd fyr­ir­tæki sem hafa ítrekað brotið gegn umhverf­is­lögum  um allan heim, auk fyr­ir­tækis sem fyrir ári síðan var dæmt fyrir frönskum dóm­stólum fyrir  glæpi gegn mann­kyni. 

Bls. 20: Fá fyr­ir­tæki eru hins vegar með jafns­lándi sögu og fransk-sviss­neska  sem­ents­fyr­ir­tækið Lafarge/Holcim. 

Bls. 21: Dótt­ur­fé­lagið Carbfix hyggst engu að síður taka við 2,3 millj­ónum tonna af koldí­oxíði  frá tveimur verk­smiðjum Lafarge/Holcim árið 2029, sam­kvæmt við­skipta­á­ætlun þess, og  dæla ofan í jörðu hér á landi. Hafa fyr­ir­tækin und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu þess eðlis. Magnið er  um 77 pró­sent af heild­ar­magni CO2 sem Carbfix hefur sagt Hafn­firð­ingum að verði dælt  niður. Í ljósi fyr­ir­hug­aðra umsvifa má ætla að magn­inu verði dreift á þær þrjár stöðvar sem  Carbfix hyggst opna hér á landi, í það minnsta til að byrja með. 

Þetta er rangt. Carbfix hefur ekki skrifað undir vilja­yf­ir­lýs­ingu við þessi fyr­ir­tæki og á ekki í  við­ræðum við þau um að taka á móti CO2 til nið­ur­dæl­ingar í Straums­vík. Gögnin sem  Heim­ildin hefur undir höndum árinu 2023 inni­heldur fjölda fyr­ir­tækja sem eru innan þess  geira sem Carbfix starfar. Eðli máls­ins sam­kvæmt ríkir trún­aður um þau fyr­ir­tæki sem við­ræður eru í gangi við, en Carbfix hefur þó aðeins gert vilja­yf­ir­lýs­ingar við örfá fyr­ir­tæki á  þessum lista öfugt við það sem haldið er fram í umfjöllun Heim­ild­ar­innar. Verða þau  fyr­ir­tæki kynnt þegar samn­ingar nást og trún­aði léttir. 

Bls. 21: Annar stærsti stálfram­leið­andi ver­aldar, ArcelorMittal, er eitt fyr­ir­tækj­anna sem  Carbfix hefur und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu við: 

Rangt, engin vilja­yf­ir­lýs­ing hefur verið und­ir­rituð við ArcelorMittal. 

Bls. 19: 2.569% Áætlaður vöxtur Carbfix. Á einum ára­tug áætla stjórn­endur Carbfix að  fyr­ir­tækið velti mest 275 millj­arða. 

Þetta eru úreltar tölur. Mark­miðið eftir sem áður er að stækka og að tæknin nýt­ist á  heims­vísu. 

Bls. 19: Ákvörðun um íbúa­kosn­ingu í Hafn­ar­firði hefur seinkað þessum áformum um að  minnsta kosti eitt ár. Upp­haf­lega var von­ast til þess að hefja fram­kvæmdir í ágúst 2024 og  að full starf­semi hæf­ist í Hafn­ar­firði árið 2032. 

Þetta er vill­andi. Það eru önnur atriði sem hafa haft áhrif á seinkun fram­kvæmda eins og  umfang og máls­með­ferð umhverf­is­mats vegna Coda Terminal. 

Athuga­semdir rit­stjórnar: 

  1. Fyr­ir­tækin sem nefnd eru í umfjöllun Heim­ild­ar­innar hafa átt í sam­skiptum við Carbfix á ein­hverjum tíma­punkti varð­andi nið­ur­dæl­ingu á CO2, sam­kvæmt fjár­fest­inga­kynn­ing­unni. Carbfix er und­an­skilið upp­lýs­inga­lögum, ber fyrir sig trún­aði og veitir ekki upp­lýs­ingar um hver staða við­ræðna er í dag. 

  2. Carbfix hafnar því að hafa und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu við ArcelorMittal og seg­ist ekki eiga í við­ræðum við Lafarge/Holcim. Hver sem staða við­ræðna er að svo stöddu, þá voru þessi fyr­ir­tæki fyr­ir­ferð­ar­mikil í fjár­fest­inga­kynn­ingu Carbfix sem unnin var í júlí 2023, eins og sjá má á með­fylgj­andi myndum.

  3. Flest fyr­ir­tækj­anna sem nefnd eru í fjár­fest­inga­kynn­ing­unni eru sögð ætla að leggja til koldí­oxíð til nið­ur­dæl­ingar yfir ákveðið tíma­bil, líkt og greint er frá í umfjöllun Heim­ild­ar­innar. 

Hér má sjá Nafn Lafarge/Holcim ásamt fleiri fyr­ir­tækjum. LOI þýðir vilja­yf­ir­lýs­ing eða letter of intent á ensku.
Hér má sjá lista yfir þau fyr­ir­tæki sem Carbfix á í sam­ræðum við. Aftur kemur fyrir LOI í þess­ari glæru auk þess sem finna má nöfn fyr­ir­tækja eins og AcelorMittal, sem Carfbix seg­ist ekki hafa und­ir­rtað vilja­yf­ir­lýs­ingu við. Þó virð­ist fyr­ir­tækið hafa hug á að flytja inn CO2 til lands­ins og nýta þjón­ustu carbfix.
Hér má finna aðra blað­síðu með fyr­ir­tækjum sem Carbfix virð­ist eiga í sam­tali við um inn­flutn­ing á CO2. Þar má meðal ann­ars finna Lafarge/Holcim eins og fram kom í upp­haf­legri umfjöllun blaðs­ins. Til hliðar má sjá hversu mörg tonn af CO2 fyr­ir­tækin geta hugsað sér að flytja til lands­ins og dæla ofan í íslenskt berg.
Í text­anum fyrir ofan fyr­ir­tækja­list­ann kemur fram að þetta séu fyr­ir­tæki sem Carbfix eigi í sam­bandi við eða sam­tali. Þar má finna bæði Lafarge/Holcim og stálfyr­ir­tækið ArcelorMittal.

CARBFIX: 

3. Mis­færslur um mögu­lega fjár­festa 

Bls. 19: Banda­ríski fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn EIG Global Partners er eini fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn  sem er í við­ræðum við Carbfix um fjár­fest­ingu í Coda Terminal en samn­ingar hafa ekki tek­ist  enn, einu og hálfu ári síðar. 

Hér er rangt farið með stöðu við­ræðna í fjár­mögn­un­ar­ferli og við­skipta­sam­bönd. Carbfix er bundið trún­aði varð­andi mögu­lega fjár­festa eins og gefur að skilja og mun birta hver verður  fjár­festir/ar þegar sam­komu­lagi er náð.  

Bls. 20: Þrátt fyrir stór­huga áætl­anir hefur gengið erf­ið­lega að laða að einka­fjár­festa að  verk­efn­inu og hefur það verið fjár­magnað að öllu leyti fyrir almannafé hingað til. 

Hér er rangt farið með stöðu við­ræðna í fjár­mögn­un­ar­ferli. Samræður við fjár­festa ganga  eðli­lega fyrir sig og hefur Orku­veitan getað valið úr þeim sem sækj­ast eftir að verða  minni­hluta­eig­andi. Varðandi fjár­mögnun af almannafé þá hefur rekstur Carbfix haft jákvæð  áhrif á rekstur Orku­veit­unnar. Í við­tali Morg­un­blaðs­ins við for­stjóra Orku­veit­unnar þann  23.10.2024 kemur fram að notkun tækni Carbfix við Hell­is­heið­ar­virkjun hafi sparað  Orku­veit­unni miklar fjár­hæðir. „Þegar við stóðum frammi fyrir því að þurfa að upp­fylla  kröfur í reglu­gerð um styrk brenni­steins­vetnis í and­rúms­lofti var hægt að kaupa aðrar iðn­að­ar­lausnir. Orku­veitan átti þá í sam­starfi við verk­fræði­stofur til að finna leiðir til að  leysa þetta verk­efni. Þær lausnir voru alls ekki jafn umhverf­is­vænar. Til dæmis hefðu mynd­ast heilu brenni­steins­fjöllin við það að fanga brenni­steins­vetni og þá hefði þurft að  finna leiðir til að losna við þau með öðrum hætti, en því fylgir líka ýmis kostn­aður. Lausn  okkar felur í sér að brenni­steins­vetni er dælt í jörð­ina og verður þar hluti af bergi. Sé  rekstr­ar­kostn­að­ur­inn og fjár­fest­ingin að baki þess­ari aðferð borin saman við aðrar aðferðir  reyn­ist sparn­að­ur­inn vera 14 millj­arðar króna,“ segir Sævar Freyr. Til sam­an­burðar hafi öll  þróun og fjár­fest­ing í Carbfix, sem og upp­bygg­ing inn­viða sem teng­ist föngun og  nið­ur­dæl­ingu koldí­oxíðs og brenni­steins­vetnis við Hell­is­heið­ar­virkjun, numið 6,7  millj­örðum en 2,7 millj­arðar komið í styrki á móti. 

Ekki gengur erf­ið­lega að finna fjár­festi: Í við­tali þann 23.10.2024 segir Sævar Freyr í  Morg­un­blað­inu:” Við fengum banda­ríska fjár­fest­ing­ar­bank­ann Morgan Stanley til að halda  utan um hluta af ferl­inu með okkur og hafa sér­fræð­ingar hans leitt við­ræð­urnar fyrir hönd  Orku­veit­unnar. Þær við­ræður hafa gengið vel. Þær hófust með því að haft var sam­band við  138 erlenda fjár­festa í upp­hafi sem og við inn­lenda fjár­festa. Síðan skrif­uðu 58 fjár­festar  undir trún­að­ar­samn­ing og komust áfram í ferl­inu. Níu voru virkir í við­ræð­unum og sex  skil­uðu inn óskuld­bind­andi til­boði. Þrír skil­uðu inn loka­til­boði og nú erum við í  einka­við­ræðum við einn aðila. Meira get ég ekki sagt á þessu stigi.“ Hvers vegna hafið þið  valið inn einn aðila? „Við erum að leita að aðila til að vinna með okkur að upp­bygg­ingu  fyrsta verk­efn­is­ins af þessu tagi. Það er lyk­il­at­riði að velja sam­starfs­að­il­ann vand­lega og  hefur raunar verið mik­il­vægur þáttur í því hvernig við höfum unnið þetta ferli áfram.“ 

Bls. 22: Orku­veitan varð að end­ur­skoða fjár­hags­spá sína til næstu fimm ára fyrir ára­mót.  Vonir stóðu til að fjár­fest­ingar í verk­efn­inu skil­uðu Orku­veit­unni í kringum 60 millj­örðum í  gegnum fjár­fest­ingar fyrir 2029. Það mat var svo lækkað niður í um 40 millj­arða í upp­færðri  fjár­hags­spá, sem þurfti að breyta aðeins ári eftir að hún var sam­þykkt. 

Ferli end­ur­skoð­unar og gerð spár er eins og vera ber. Fjár­hags­spá félaga í sam­stæðu  Orku­veit­unnar er end­ur­skoðuð oft á ári. Samkvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum gerir Orku­veitan,  sem hluti sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar, opin­bera fjár­hags­spá einu sinni á ári. Hún er til  fimm ára í senn. Fjár­hagspá Orku­veit­unnar fyrir árin 2025-2029 var afgreidd í lok októ­ber  síð­ast­lið­ins. Engar sér­stakar breyt­ingar hafa verið gerðar á útgefnum spám en tafir á  verk­efnum end­ur­spegl­ast í spám hvers árs. 

Ekki finn­ast efn­is­legar umræður á vett­vangi borg­ar­stjórnar um þá áætlun að breyta  kjarna­starf­semi Orku­veit­unnar. Þvert á móti virð­ist lítil sem engin efn­is­leg umræða hafa  farið fram um áætl­anir Carbfix á opin­berum vett­vangi. 

Kjarna­starf­semi Orku­veit­unnar var ekki breytt, heldur var með breyt­ingu á lögum um  fyr­ir­tækið tekin af öll tví­mæli um laga­heim­ild fyrir geymslu koldí­oxíðs og ann­arra vatns­leys­an­legra gas­teg­unda í jörðu, sem er og hefur verið hluti af kjarna­starf­semi  fyr­ir­tæk­is­ins um ára­bil og tekið við útblæstri frá virkj­unum þess og bundið í jörðu. 

Þá er ekki rétt að lítil sem engin efn­is­leg umræða hafi farið fram um áætl­anir Carbfix á  opin­berum vett­vangi. Við vand­legan og ítar­legan und­ir­bún­ing sveit­ar­fé­lag­anna sem eiga  Orku­veit­una, þ.m.t. Reykja­vík­ur­borgar, benti borg­ar­lög­maður á, að vegna ákvæða  sveit­ar­stjórn­ar­laga þyrfti að taka af öll tví­mæli um að borgin mætti eiga í fyr­ir­tæki sem  stund­aði starf­semi eins og þá sem Carbfix stundar. Því lagði umhverfis-, orku- og  lofts­lags­ráð­herra fram frum­varp fyrir Alþingi, þar sem kemur skýrt fram í grein­ar­gerð að  „þróun aðferða­fræði Carbfix hefur verið álitin tengj­ast kjarna­starf­semi Orku­veitu  Reykja­víkur enda dregur hún úr mengun sem stafar frá virkj­unum. Að auki var við þróun aðferð­ar­innar byggt á þekk­ingu og rann­sóknum Orku­veitu Reykja­víkur. Aðferðin hefur því  verið talin rúm­ast innan starfs­heim­ilda Orku­veit­unnar og dótt­ur­fé­laga sam­kvæmt  núgild­andi lögum nr. 136/2013, en með skýru laga­á­kvæði þess efnis eins og frum­varp þetta  gerir ráð fyrir eru tekin af öll tví­mæli.“ 

Full­trúar Orku­veit­unnar og Carbfix sóttu fjóra fundi borg­ar­ráðs um málið og þrjá fundi  rýni­hóps, sem borg­ar­ráð skip­aði til að und­ir­búa ákvörðun sem best, auk funda með  starfs­fólki fjár­mála- og áhættu­stýr­ing­ar­sviðs borg­ar­innar og emb­ættis borg­ar­lög­manns.  Einnig fóru full­trúar fyr­ir­tækj­anna á fundi bæj­ar­ráðs Akraness og byggða­ráðs Borg­ar­byggðar  áður en ákvarð­anir voru teknar. Þetta sýnir hversu ítar­legur og vand­aður und­ir­bún­ingur  eig­enda­sveit­ar­fé­lag­anna var.  

Það er einnig rangt að ekki hafi farið fram umræður á opin­berum vett­vangi, þó að það hafi  verið afgreitt í borgar-, bæjar- og byggða­ráðum en ekki farið fyrir sveit­ar­stjórnir eig­enda, því  málið hlaut lög­bundna máls­með­ferð á Alþingi, þ.m.t. þrjár umræður í þing­inu og umfjöllun  atvinnu­vega­nefndar, auk þess sem það var kynnt í sam­ráðs­gátt.  

Carbfix hefur unnið náið með starfs­hópi borg­ar­innar og mætt ítrekað á fundi borg­ar­ráðs  vegna áforma um upp­bygg­ingu og fjár­mögnun fyr­ir­tæk­is­ins. Trúnaður hefur gilt um til­tekna hluta þeirrar vinnu. 

Því er ljóst að um gíf­ur­lega áhættu er að ræða fyrir sveit­ar­fé­lagið, á meðan  Orku­veitan hefur þegar varið sig bæði með belti og axla­böndum í ljósi sér­stæðs  við­skipta­forms þar sem aðeins hlutafé í einka­hluta­fé­lag­inu myndi tap­ast ef illa færi.  

Það er ekk­ert „sér­stætt“ við hluta­fé­lög sem rekstr­ar­form enda er meiri­hluti allrar þjón­ustu  Orku­veit­unnar veittur af hluta­fé­lögum. Áður­nefnd máls­með­ferð Reykja­vík­ur­borgar er til  marks um að áhætta og áhættu­stýr­ing verk­efn­is­ins er metin með fag­legum hætti. Þar sem  Hafn­ar­fjarð­ar­bær hefur ekki geng­ist undir neinar skuld­bind­ingar vegna fyr­ir­hug­aðrar  kolefn­is­bind­ingar við Straums­vík er engri áhættu sveit­ar­fé­lags­ins þar til að dreifa. Hvernig Hafn­ar­fjarð­ar­bær stýrir hugs­an­legri fram­tíð­ar­á­hættu birt­ist vænt­an­lega í hugs­an­legum  samn­ingum við Carbfix og áætl­unum Hafn­ar­fjarð­ar­hafnar varð­andi mögu­legrar  upp­bygg­ingu hafnar í Straums­vík. 

Athuga­semd rit­stjórnar: 

  1. Engin efn­is­leg leið­rétt­ing er í svörum Carbfix varð­andi stöðu fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart fjár­festum. Því er aðeins haldið fram að rangt sé farið með stöðu við­ræðna í fjár­mögn­un­ar­ferli og við­skipta­sam­bönd, án þess að ljóst sé í hverju leið­rétt­ingin felst. Í því sam­hengi ber fyr­ir­tækið fyrir sig trún­aði. 

  2. Í athuga­semdum Carbfix er vísað í við­tal við for­stjóra Orku­veitu Reykja­víkur, sem segir að aðeins sé verið að ræða við einn fjár­festi, líkt og fram kom í umfjöllun Heim­ild­ar­innar. 

  3. Þar sem við­ræður hafa dreg­ist á lang­inn hefur Orku­veitan opnað 2,8 millj­arða lána­línu fyrir Carbfix á meðan beðið er eftir nið­ur­stöðum. Snemma á síð­asta ári var sú upp­hæð hækkuð upp í sjö millj­arða, þar sem enn var beðið eftir nið­ur­stöðum. Um almannafé er að ræða. 

  4. Engin efn­is­leg umræða um breyt­ingar á lögum um Orku­veit­una hefur farið fram í borg­ar­stjórn Reykja­víkur. Umræðan á Alþingi var sömu­leiðis lítil sem engin, og lauk um tíu mín­útum eftir að hún hófst, líkt og greint er frá í umfjöllun Heim­ild­ar­innar. Að öðru leyti var málið ekki rætt á opin­berum vett­vangi. Fund­ar­gerðir borg­ar­ráðs veita tak­mark­aðar upp­lýs­ingar sökum trún­aðar, og er við­ur­kennt í aðfinnslum Carbfix. Sá trún­aður hefur gert almenn­ingi erfitt um vik að fylgj­ast með þróun máls­ins.  

  5. Hlut­verki Orku­veit­unnar var breytt með laga­breyt­ingu á Alþingi til að fella starf­semi Carbfix undir rekstur Orku­veitu Reykja­víkur. Meðal ann­ars vegna umsagnar borg­ar­lög­manns um laga­lega óvissu um starf­semi Carbfix. Að halda því fram að með því hafi ekki verið ráð­ist í breyt­ingar varð­andi kjarna­starf­semi Orku­veit­unnar er útúr­snún­ingur.  

  6. Full­yrð­ing upp­lýs­inga­full­trúa Carbfix um að ekk­ert sé „sér­stætt“ við hluta­fé­laga­formið stenst ekki skoðun. Ekkert annað dótt­ur­fé­lag innan sam­stæðu Orku­veit­unnar er rekið með sams­konar hætti á sam­keppn­is­mark­aði; sem opin­bert hluta­fé­lag, sem stofnar hluta­fé­lag, sem stofnar svo annað hluta­fé­lag um sér­stakt fjár­fest­inga­verk­efni af þess­ari stærð­argráðu, eins og í til­felli Coda Terminal. 

CARBFIX:

4. Það er rangt að starf­semi Carbfix gangi gegn mark­miðum ETS kerf­is­ins. 

Bls. 22: Hvatinn er hugs­aður sem svo að fyr­ir­tæki leiti í end­ur­nýj­an­lega orku og þannig ná  þau kostn­aði niður þegar kemur að ETS kerf­inu. 

Þetta er einn hvati í ETS. Tenging Coda Terminal við ETS er þannig að með því að binda CO2 er komið í veg fyrir losun. 

Bls 22: Carbfix áætlar að kostn­að­ur­inn við nið­ur­dæl­ingu og flutn­ingar á CO2 frá höfn í  Evrópu til Íslands, verði á bil­inu 54 til 63 evrur á hvert tonn. Þá áætlar Carbfix að hægt sé að  ná þessum kostn­aði niður í allt að 45 til 52 evrur hvert tonn, að því gefnu að stærri skip verði  notað til flutn­inga. Þau skip eru hins vegar ekki til í dag, en þau eiga að geta tekið allt að  55.000 tonn af CO2 í vökva­formi. 

Úrelt sam­an­tekt úr sviðs­mynda­grein­ingu úr gögnum frá árinu 2023 sem Heim­ildin hefir  undir höndum. Mark­miðið Carbfix er eftir sem áður að stækka og að tæknin nýt­ist sem  best, bæði á Íslandi og á heims­vísu. 

Bls 22: Margir umhverf­is­vernd­ar­sinnar hafa bent á að sú aðferð að safna og dæla niður CO2  sé helst til þess fallin að leyfa stærstu meng­un­ar­völdum heims­ins að halda áfram að  menga and­rúms­loftið með hættu­legum efnum, en söfnun og nið­ur­dæl­ing á CO2 geri ekk­ert  til að minnka mengun frá stærstu meng­un­ar­völdum heims­ins. 

Starf­semi Carbfix snýr að því að draga úr eða koma í veg fyrir losun CO2 eins og svarað  hefur verið. Orku­skipti og orku­nýtni skipta eðli­lega mestu máli og hefur Carbfix lagt mikla  áherslu á það. Aftur á móti er skýrt af t.d. IPCC og IEA að föngun koldí­oxíðs þarf að vera  hluti af lausn­inni en alltaf sam­hliða orku­skiptum frá jarð­efna­elds­neyti. 

Bls 22: Eingöngu 28 þannig vélar hafa verið seldar frá árinu 2012 og eru að mestu not­aðar af  olíu- og gas­iðn­aði til að safna koldí­oxíði sem er svo dælt niður í gamlar olíu­lindir til að  end­ur­heimta meiri olíu. 

Hér er lýst tækni sem er eðl­is­ó­lík Carbfix tækn­inni. Tækni Carbfix virkar ekki við slíkar  aðstæður og tækni Carbfix er á mun lægri þrýst­ingi og dýpi og stein­rennir CO2 ólíkt  aðferðum olíu­geirans sem geymir CO2 á gas eða súperkrítísku formi. 

Bls 22: Það sem er þó umhugs­un­ar­vert er að Carbfix og Climeworks telja sig hluta af  lausn­inni þegar kemur að lofts­lags­vand­anum, á sama tíma ætla fyr­ir­tækin í beina sam­keppni við við­skipta­kerfi ESB, sem gengur út á að hvetja fyr­ir­tæki til þess að leita í  end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa, sem er yfir­lýst mark­mið kerf­is­ins og helsta lausnin við  lofts­lags­vand­anum sam­kvæmt lofts­lags­ráði Sam­ein­uðu Þjóðanna. 

Þetta er rangt. Eitt hlut­verk ETS er að skipta út jarð­efna­elds­neyti með end­ur­nýj­an­legum  orku­gjöfum. Hlutverk ETS kerf­is­ins er einnig að draga úr losun frá iðn­að­ar­ferlum. Styrkur  ESB til Carbfix vegna Coda Terminal er bein­línis fjár­magn­aður með tekjum úr ETS kerf­inu  enda föngun og nið­ur­dæl­ing koldí­oxíðs(e. Carbon Capture and Storage) nauð­syn­legur hluti  af aðgerðum sam­kvæmt ESB og IPCC.  

Bls 22: Það sem und­ir­byggir þessi rök, ofan á allt annað, er að lang­flest kolefn­is­föng­unar og förg­un­ar­fyr­ir­tæki sem eru í bígerð, eða hafa kom­ist á lagg­irnar, eru í eigu olíu- og  gas­fyr­ir­tækja sem eru allt um kring í þessum iðn­aði. 

Óljóst sam­hengi. Carbfix hefur engin áform um að dæla niður CO2 í tengslum við olíu- og  gas­fram­leiðslu, og líkt og fram hefur komið, m.a. í við­tali við Heim­ild­ina, er hvorki áhersla  Carbfix eða Orku­veit­unnar að taka þátt í slíkum verk­efnum. 

Slíkt kæmi aðeins til greina í und­an­tekn­ing­ar­til­vikum, t.d. í þró­un­ar­löndum þar sem ljóst er  að ekki sé raun­hæft að horfa til orku­skipta til að draga úr losun. 

Athuga­semdir rit­stjórnar: 

  1. Heim­ildin greinir frá gagn­rýni umhverf­is­vernd­ar­sinna um að umhugs­un­ar­vert sé að fyr­ir­tækið bjóði upp á þjón­ustu fyrir meng­un­ar­valda. Sú umræða hefur átt sér stað á meðal umhverf­is­vernd­ar­sinna og sér­fræð­inga um allan heim, en hefur ekki verið tekin hér á landi varð­andi starf­semi Carbfix. 

  2. Í umfjöllun Heim­ild­ar­inn er hvergi haldið fram að Carbfix gangi gegn mark­miðum ETS heldur að starf­semi fyr­ir­tækja í þessum rekstri sé í sam­keppni við ETS kerfið. 

  3. Carbfix dregur fram setn­ingu úr umfjöllun Heim­ild­ar­innar þar sem segir CCS tæknin sé aðal­lega nýtt af olíu- og gas­fyr­ir­tækjum. Um leið er gagn­rýnt að þetta sé sett fram í óljósu sam­hengi í umfjöllun Heim­ild­ar­innar. Carbfix slítur text­ann hins vegar úr sam­hengi. Í umfjöllun Heim­ild­ar­innar kemur fram að Carbfix notar ekki tækn­ina til þess að end­ur­heimta jarð­efna­elds­neyti. Er það sér­stak­lega tekið fram í sama kafla og setn­ingin sem um ræðir. 

  4. Annað sem fram kemur í athuga­semdum Carbfix varðar ekki efni Heim­ild­ar­innar.

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HH
    Helgi Helgason skrifaði
    Áfram
    0
  • ML
    Maja Loebell skrifaði
    Takk fyrir frábæra og málefnalega umfjöllun!
    1
  • Vönduð fjölmiðlun
    2
  • Elín Sigríður Óladóttir skrifaði
    Takk blaðamenn Heimildarinnar fyrir upphaflegu greinina og síðan að fletta svo rækilega ofan innistæðulausum "leiðréttingum" sem Carbofix í kjölfar greinarinnar. Áfram Heimildin
    14
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár