Móðir Kolfinnu Eldeyjar: „Ég segi mína sögu því að samfélagið þarf að vakna“

Ingi­björg Dagný Inga­dóttir, móðir Kolfinnu Eldeyjar Sig­urð­ar­dóttur, opnar sig um and­lát dóttur sinnar. Hún segir kerfin hafa brugð­ist barns­föður sínum, sem hefur verið ákærður fyrir að hafa ráðið dóttur þeirra bana. „Ég vissi strax í hjarta mínu að hann hefði ekki tekið með­vit­aða ákvörðun um að gera svona lagað“.

Móðir Kolfinnu Eldeyjar: „Ég segi mína sögu því að samfélagið þarf að vakna“
Kolfinna Eldey

„Þegar svona lagað ger­ist er eins og maður sé sleg­inn í höf­uðið með sleggju. Hjartað springur og allt sem maður einu sinni hélt að skipti máli sér maður að skiptir ekki nokkru máli. Þegar það dýr­mætasta sem maður á er tekið frá manni þá finnst manni maður engu hafa að tapa lengur.“

Þetta skrifar Ingi­björg Dagný Inga­dóttir í færslu á Facebook-síðu sinni. Dóttir hennar – hin tíu ára gamla Kolfinna Eldey Sig­urð­ar­dóttir – fannst látin við Krýsu­vík­ur­veg í sept­em­ber. Faðir hennar, Sigurður Fannar Þórsson, hefur verið ákærður fyrir að hafa ráðið dóttur sinni bana. 

Vitnað er til færsl­unnar með góð­fús­legu leyfi frá Ingi­björgu Dagnýju.

Hún seg­ist frekar hafa átt von á að fá loft­stein í höf­uðið en því sem gerð­ist í sept­em­ber. „Í langan tíma beið ég bara eftir að vakna því þetta hlyti að vera martröð. En í stað þess hvern dag sem ég vakn­aði þá beið mín martröð. Einhver allt önnur ver­öld sem ég þekkti ekki en var fleygt harka­lega inn í.

Aldrei á ævinni hef ég verið jafn mikið til í að vakna ekki á morgn­ana. En ég hef neyðst til að vakna. Ekki bara í einu til­liti. Ég hef vaknað upp af þeim svefni sem við erum látin sofa sem sam­fé­lag,“ skrifar hún.

„Ég missti meira en dóttur mína þann 15. sept­em­ber“
Ingi­björg Dagný Inga­dóttir
-móðir Kolfinnu Eldeyjar

Sigurður hafi elskað dóttur sína og hún hann

Ingi­björg segir engan sem þekkti barns­föður hennar hafa ætlað að trúa því sem átti sér stað, þetta hafi komið flatt upp á alla.

„Því hann hefur ætíð verið kurt­eis, hjálp­samur, sam­visku­samur, örlátur og dug­legur. Hann hefur alltaf verið mín stoð og stytta og minn besti vinur. Hann elskaði dóttur sína og gerði allt fyrir hana. Hún elskaði hann og þau áttu ætíð gott sam­band. Upplifun mín hefur því verið að ég missti meira en dóttur mína þann 15. sept­em­ber.“

Síðasta vor týnd­ist Sigurður Fannar spor­laust heiman frá sér í Graf­ar­vogi, mætti ekki til vinnu og ekki var hægt að ná í hann. Ingi­björg Dagný lét því lýsa eftir honum. Þegar liðið var á þriðja sól­ar­hring fannst hann á gangi í Kópavogi.

„Hann var orð­inn upp­þorn­aður og með sár á fótum eftir að hafa labbað stans­laust. Hann hafði bara gengið um allan þann tíma í ein­hverju geð­rofi, maníu eða ein­hverju sem ég kann ekki betur að nefna. En það var ljóst að það var eitt­hvað að. Hann fékk aðhlynn­ingu í ein­hverjar klukku­stundir á bráða­mót­tök­unni áður en hann var útskrif­aður,“ skrifar Ingi­björg Dagný.

Hún segir að eftir þetta hafi hún hjálpað Sigurði að sækja um hjálp á geð­deild­inni. „Hann fær ein­hverjar pillur frá læknum eins og þeim er von og vísa og eftir ein­hverra daga bið fær hann höfnun frá áfallateym­inu. Ekkert við­tal, engar skýr­ingar, ekki neitt.“

Ætluðu að leika sér með nýtt leikfang

Sumarið segir Ingi­björg að hafi liðið áfalla­laust. Sigurður hafi þó drekkt sér í vinnu, líkt og fólk sem hafi gengið í gegnum áföll sé gjarnt á að gera. „En ég sé að það er alltaf eitt­hvað að plaga hann,“ skrifar hún.

Sunnu­dag­inn sem dóttir Ingi­bjargar lést fór Sigurður í Hafn­ar­fjörð til að útrétta og dytta að bílnum sínum. Ingi­björg segir hann hafa haft Kolfinnu Eldeyju með því að þau hafi ætlað að finna sér stað til að leika með leik­fang sem þær höfðu keypt nokkrum dögum áður – bolta til að kasta á milli tveggja fest­i­spjalda með frönskum rennilás.

„En þau skila sér ekki úr þeirri ferð. Ég var búin að hringja marg­sinnis og það var mjög óvenju­legt að hann skyldi ekki svara mér í síma. Upp úr níu um kvöldið fæ ég löggu og prest heim til mín og ver­öldin hrynur. Restin er sögð saga.

Ég veit ekki nákvæm­lega hvað gerð­ist þarna útfrá. Það veit eng­inn. Ég vissi strax í hjarta mínu að hann hefði ekki tekið með­vit­aða ákvörðun um að gera svona lagað. Hann man ekki sjálfur hvað gerð­ist. Hann var kom­inn lang­leið­ina með að taka eigið líf og er alveg eyði­lagður. Við syrgjum bæði dóttur okkar.“

„Samfélagið þarf að vakna“

Ingi­björg segir að hún sé að segja sögu sína vegna þess að sam­fé­lagið þurfi að vakna.

„Við þurfum að gera okkur grein fyrir því hvernig kerf­unum hefur verið leyft að koma fram við okkur. Hvernig orð­ræð­unni hefur lengi verið stýrt í þá átt­ina að láta okkur berj­ast inn­byrðis og valda sundr­ungu milli okkar. Hvernig fólk hefur verið stimplað klikkað, geð­veikt og ruglað.

Þannig var rétt­lætt að afskrifa það, loka inni og hlusta ekki á það. Á meðan þetta er ekk­ert annað en fólk sem hefur þurft að þola mis­mikið af mis­stórum áföllum. Og þau fá tak­mark­aða hjálp, ef ein­hverja. Það er eins og stefnan sé að hjálpin eigi að vera ein­hver lúx­usvara sem bara ríka fólkið á að eiga kost á. Af hverju ætli það sé.“

Ingi­björg segir að pillur séu ekki lausn frekar en hækjur og að rót vand­ans sé enn til staðar. Hana þurfi að finna og takast á við. „Hún liggur oftar en marga grunar í áföllum sem hefur aldrei verið unnið úr. Börn eiga ekki að þurfa að erfa áföll for­eldra sinna. Við erum öll á sömu skút­unni. Við þurfum að vinna saman.“

Ingi­björg veltir því fyrir sér af hverju það sé yfir­höfuð hægt að neita fólki sem vanti hjálp um hana.

„Hver gefur öðrum rétt til að ákveða hvort ég þurfi hjálp eða ekki? Eina hlut­verk stofn­ana á að vera að finna út úr því hvernig hjálp hentar í sam­ráði við sjúk­ling­inn, því hann er jú sér­fræð­ingur í sinni eigin líðan. Annað er bara ofbeldi. Viljum við ekki sam­fé­lag þar sem fólk fær hjálp? Viljum við búa í sam­fé­lagi þar sem sjálfs­vígs­tíðni, morð og ofbeld­is­glæpir eru algengir?“

„Það á ekki nokkur manneskja að þurfa að jarða barnið sitt“

Ingi­björg seg­ist vera lánsöm og þakk­lát fyrir þann tíma sem hún fékk með dóttur sinni. „Hún var alltaf sól­ar­geisli í mínu lífi. Og ég mun gera mitt besta á minni lífs­leið að fylgja hennar for­dæmiað dreifa gleði og ást. Því þegar minn tími loks kemur og ég fæ að yfir­gefa þetta jarð­svið þá vil ég að ég hafi lokið mínum verk­efnum með sóma svo bæði hún og ég geti verið stoltar af mér.“

Kolfinna Eldey hafi lýst upp her­bergið aðeins með því að vera til „Dóttir mín var góð, fyndin, vitur, skemmti­leg, full af orku og hug­myndum, skap­andi og frjáls. Hún var kær­leiks­rík, elsku­leg, sjálf­stæð, umhyggju- og hjálp­söm. Allir sem hana þekktu elsk­uðu hana.“

Ingi­björg segir Kolfinnu Eldeyju hafa kennt sér margt. „Dóttir mín var betri mann­eskja en ég hef nokkru sinni verið. Hún átti þetta ekki skilið.Hún gaf frá sér svo mikla ást. Hún kom til mín til að minna mig á það hver ég er. Hver við öll erum. Við erum fyrst og fremst kær­leiksverur. Við fæð­umst með eig­in­leik­ann til að elska, og það er það eina sem barn biður um þegar það kemur í heim­inn. Ást og umhyggja.“

Ingi­björg segir það eina sem nokkurn tíma muni skipta raun­veru­legu máli í líf­inu vera hvort fólk hafi hjálpað öðrum. „Ef þú getur verið sól­ar­geisli í lífi ein­hvers þá hef­urðu náð mark­miði lífs­ins. Þetta er ekki flókn­ara en það. Þegar þú skilur það þá skil­urðu lífið. Eitthvað sem gert er af ást og sam­kennd er ávallt rétta ákvörð­unin.“

Kjósa
58
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Bjart og fallegt ljós er slokknað. Megi allar góðar vættir halda utan um syrgjendur. Mikið dáist ég að þessari yndislegu móður. Og megi þau sjá að sér, sem hafa vald og ráða yfir fjármagni til að styðja við og styrkja geðheilbrigðiskerfið okkar, en kjósa að gera það ekki.
    2
  • MPH
    Marinó P Hafstein skrifaði
    Hryllilega sorglegt.
    0
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Megi Guð hjálpa þessum veslings manneskjum til að vinna úr þessum áföllum og sársauka.
    0
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Þau voru nokkur svona lítil ljós sem slokknuðu á síðasta ári. Það er vont að sjá og verða vitni að, en verra að vera aðstandandi. Við verðum að fara að girða okkur í brók og gera betur. Þetta er allt of dýrt fyrir okkur öll.
    2
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Faðirinn þarf samt töluvert meiri hjálp en nokkur annar í fjölskyldunni. Þetta drama hverfur ekki sama hvað manneskja vinnur í sjálfri sér eða tekur marga AA fundi.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár