Mynd: Golli

Ár Katrínar

Katrín Jak­obs­dóttir gerði margt á þessu ári. Hún hóf árið sem for­sæt­is­ráð­herra og for­maður stjórn­mála­flokks, bauð sig svo fram til for­seta en tap­aði þrátt fyrir að fá fjórð­ungs­fylgi. Hún horfði svo upp á flokk­inn sem hún hafði leitt í rúman ára­tug þurrkast út af þingi. Hér er ár Katrínar Jak­obs­dóttur í myndum.

Í upp­hafi árs­ins 2024 var Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, for­maður Vinstri grænna og einnig sá ráð­herra sem flestir sögð­ust bera traust til af ráð­herrum rík­is­stjórnar hennar, sem þó var orðin nokkuð óvin­sæl og inn­byrðis ósam­mála um mörg mál.

Nú í lok árs er Katrín hins vegar hætt afskiptum af stjórn­málum og búin að setja for­sæt­is­ráð­herra­tíð sína, hrun Vinstri grænna og til­raun til þess að verða for­seti Íslands í sumar í bak­sýn­is­speg­ill­inn, miðað við þau orð sem hún lét falla í tveimur við­tölum við ljós­vaka­miðla lands­ins sama dag­inn um miðjan des­em­ber. 

Nú er hún orðin full­trúi Hring­borðs Norð­ur­slóða, Arctic Circle og mun einnig verða for­maður evr­ópskrar nefndar um lofts­lags­breyt­ingar og heil­brigð­is­mál sem til stendur að koma á fót hjá Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni (WHO). Til við­bótar við þetta var hún kjörin í háskóla­ráð Háskóla Íslands til tveggja ára í sumar. 

Golli, ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar, náði ýmsum eft­ir­minni­legum myndum af Katrínu, í hlut­verki …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SFG
    Sveinn Flóki Guðmundsson skrifaði
    Þann 25. nóvember 2021 staðfestu mikill meirihluti nýkjörinna þingmanna eigin kjörbréf þar sem stuðst var við umdeilda endurtalningu í Norðvesturkjördæmi.

    Þar hafði framkvæmdin meðal annars innihaldið eftirfarandi:

    * Óviðunandi frágangur kjörgagna eftir að yfirlýstar lokatölur höfðu verið tilkynntar frá Norðvesturkjördæmi.
    * Óviðunandi og losaralegar aðgengistakmarkanir að því marki að tilvik voru um að fólk færi þar inn í engra viðurvist frá nótt/morgni og fram á hádegi daginn eftir kosningar.
    * Formaður yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis mætti kringum hádegið hálftíma á undan öðrum meðlimum yfirkjörstjórnar í rýmið sem geymdi óinnsiglaða atkvæðaseðla kjördæmisins.
    * Formaður yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis var einsamall í rýminu að handleika atkvæðaseðla þegar næsti meðlimur yfirkjörstjórnar mætti á svæðið.
    * Formaður yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis kallaði til endurtalningar sem hafði áhrif á uppröðun jöfnunarþingsæta og riðlaði þar með hvaða einstaklingar hlutu þingsæti, þar sem 5 duttu út og aðrir 5 komust inn.
    * Fækkun atkvæða til Viðreisnar um 9 kom jöfnunarþingsætatilfærslunni af stað, en milli fyrri lokatalna og endurtalningar fækkaði m.a. auðum atkvæðaseðlum um 12 og ógildum seðlum fjölgaði um 11.
    * Með staðfestingu þingmanna á kjörbréfum sínum þar sem á bak við lá þessi framkvæmd lögleysuendurtalningar settu þingmenn ákveðið fordæmi.

    Sett var fordæmi að svona framkvæmd þyki góð og gild hér á Íslandi.

    Framkvæmd þyki góð og gild þar sem ein manneskja undir engu eftirliti ver hálftíma með óinnsigluðum kjörgögnum heils kjördæmis vitandi allar lokatölur kosninganna, handleikur þar kjörseðla, kallar svo upp á sitt einsdæmi til endurtalningar sem breytir hvaða frambjóðendur hljóti kjörgengi.

    Meðal þeirra sem settu þetta fordæmi er Katrín Jakobsdóttir.

    Henni þyki þessi framkvæmd góð og gild.

    Það hefur hún aldrei sagt og mun vafalaust aldrei segja.

    En það sýndi hún með sinni afstöðu og sínum verkum í Alþingishúsinu þann 25. nóvember 2021 þegar hún og meirihluti nýkjörinna þingmanna lögðu þennan smánarblett á sögu íslensks lýðræðis.
    3
  • PK
    Páll Kristinsson skrifaði
    Ég held að Sagan eigi eftir að mæra þessa hæfu og góðu manneskju.
    -3
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Farið hefur fé betra.
    3
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Óskaplega er Heimildin hrifin af Katrínu, þið getið bara ekki hætt að skrifa um hana!
    0
    • Hulda Ólafsdóttir skrifaði
      Þá er ég líklega ekki að lesa sama blað og þú, eða hef misst af einhverju!
      5
    • Jón M Ívarsson skrifaði
      Það er nú ekkert skrítið að skrifað sé um konu sem var forsætisráðherra í sjö ár.
      2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Uppgjör ársins 2024

Erlendur annáll: Kosningar og ófriður lituðu árið
ErlentUppgjör ársins 2024

Erlendur ann­áll: Kosn­ingar og ófriður lit­uðu árið

Pia Hansson, for­stöðu­maður Alþjóða­mála­stofn­unar Háskóla Íslands, segir að árið 2024 hafi verið óvenju við­burð­ar­ríkt ár. Árið ein­kennd­ist af kosn­ingum þar sem sitj­andi vald­höfum var refsað og blóð­ugum stríðs­á­tökum sem stig­mögn­uð­ust á árinu. Pia seg­ist miðað við það sem undan hefur gengið í heims­mál­unum fari hún því miður ekki full bjart­sýni inn í nýja árið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár