„Furðulegt að sjá þingmann fara með slík fleipur“

Jóhannes Þór Skúlason, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og stjórn­ar­maður í Sam­tök­unum '78, gagn­rýnir Snorra Másson, þing­mann Mið­flokks­ins, fyrir grein þar sem Snorri tekur upp hansk­ann fyrir mann sem Samtökin '78 hafa kært fyrir hat­urs­orð­ræðu gegn trans fólki.

„Furðulegt að sjá þingmann fara með slík fleipur“
Jóhannes Þór segir það koma sér á óvart að þing­menn, hvort sem þeir eru í Mið­flokknum eða öðrum flokki, skuli hoppa á þennan vagn. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Orð þing­manns hafa meiri vigt heldur en orð rit­stjóra á eigin fjöl­miðli úti í bæ. Þess vegna er það veru­legt áhyggju­efni þegar þing­menn eru farnir að taka undir mál­flutn­ing sem er bein­línis til þess fall­inn að auka jað­ar­setn­ingu trans fólks í sam­fé­lag­inu. Það er alveg klárt, að mínu mati, að þessi grein hún gerir það.“

Þetta segir Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar og stjórn­ar­maður í Sam­tök­unum '78, í sam­tali við Heim­ild­ina. Hann tjáir sig þar um grein sem Snorri Másson, nýkjör­inn þing­maður Mið­flokks­ins, skrif­aði í Morg­un­blaðið í dag. Í henni gerir Snorri kæru Sam­tak­anna '78 á hendur Eldi Smára Krist­ins­syni að umfjöll­un­ar­efni sínu. En sam­tökin hafa kært Eld til lög­reglu fyrir hat­urs­orð­ræðu í garð trans fólks.

Segir Snorra fara með rangt mál

Snorri segir í grein sinni að Samtökin '78 njóti veru­legs fjár­stuðn­ings rík­is­ins og beiti sér gegn Eldi, sem bauð sig fram fyrir Lýð­ræð­is­flokk­inn í nýaf­stöðnum alþing­is­kosn­ingum. „Vita­skuld er það frétt­næmt þegar sam­tök, sem Alþingi fjár­magnar, ein­setja sér að sækja fram­bjóð­anda til saka sem gagn­rýnir hug­mynda­fræði sam­tak­anna og gagn­rýnir þingið um leið,“ skrifar Snorri.

Jóhannes Þór segir að Snorri fari þarna rangt með. Það sé „furðu­legt að sjá þing­mann fara með slík fleipur“ og komi fram í grein­inni.

„Hann setur þetta í sam­hengi við kosn­ing­arnar, að kæran hafi komið fram í nóv­em­ber. Það er ekki rétt, kæran er lögð fram síð­ast­liðið sumar. Það er síðan algjör­lega í höndum lög­reglu hvenær hún er tekin fyrir og Samtökin '78 hafa ekk­ert með það að gera.“

Hann tekur einnig fram að Samtökin '78 hafi aldrei ýtt undir umræðu um Eld Smára. „Hann opin­ber­aði þessa kæru algjör­lega sjálfur og það voru ekki Samtökin '78 sem vöktu athygli á henni sér­stak­lega.“

Fleiri ummæli en þessi í kærunni

Jóhannes Þór segir enn fremur að honum þyki áhuga­vert að Snorri skyldi velja einmitt þessi ummæli Elds til að vísa í í grein­inni:

„Alþingi heldur að karl­menn geti fætt börn. Þessi lög eru í bága við bæði barna­sátt­mála SÞ og í bága við úrskurð Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu er varðar rétt barns til þess að þekkja líf­fræði­legan upp­runa sinn. Mann­eskjur sem fæða börn kall­ast konur. Konur sem fæða börn eru alltaf líf­fræði­legar mæður barna sinna. Alveg óháð hvað van­stillt Alþingi segir,“ skrif­aði Eldur Smári á Facebook í apríl.

Jóhannes Þór segir að í kærunni komi fram fleira en þetta. „Það eru þó nokkur og fleiri ummæli sem eru talin upp í kærunni. Sjö eða átta, minnir mig.“ 

Kom honum á óvart

Jóhannes Þór er ekki Mið­flokknum ókunn­ugur en hann var um langt skeið aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, bæði í ráð­herra­tíð hans og eftir að Mið­flokk­ur­inn var stofn­aður. 

Jóhannes Þór segir að það valdi honum veru­legum áhyggjum að þing­maður taki upp hansk­ann fyrir Eld í þessu máli. Aðspurður segir hann afstöðu Snorra koma sér á óvart. „Að þing­menn, hvort sem þeir eru í þessum flokki eða öðrum, skuli hoppa á þennan vagn. Að mínu mati þá lýsir það ákveðnu skiln­ings­leysi á mál­efnum trans fólks í íslensku sam­fé­lagi.“

„Það er löngu þekkt stað­reynd að ummæli sem eru við­höfð um sér­stak­lega jað­ar­setta minni­hluta­hópa í sam­fé­lag­inu – þau geta haft veru­leg áhrif. Bæði á skoð­anir fólks, á stöðu þess­ara hópa og þau geta jafn­vel – séu þau látin óáreitt – leitt til ofbeldis. “

Jóhannes Þór segir að Samtökin '78 telji sér skylt að sporna gegn þeirri þróun sem slík orð­ræða geti leitt til. „Eitt af því sem við teljum að sé rétt að gera er að láta fólk bera ábyrgð á því sem það segir þegar við teljum og metum það sem svo  að það séu ummæli sem geta haft áhrif af þessum toga.“

Hryggir hann meira en orð fá lýst

Jóhannes Þór nefnir að þing­menn séu full­trúar alls almenn­ings í land­inu, líka trans fólks. „Þess vegna ber þing­mönnum að taka þessa skyldu alvar­lega – að íhuga orð sín og afleið­ingar þeirra og áhrif. Áður en þau birta þau.“

 Á Facebook skrifar Jóhannes að það hryggi hann meira en orð fái lýst ef þing­menn Mið­flokks­ins ætli að taka sér opin­bera stöðu við hlið Elds Smára og skoð­ana­bræðra hans. En greinin gefi það einmitt til kynna.

„Samtökin '78 eru ekki hluti rík­is­valds­ins, né hafa þau neins konar valda­stöðu í sam­fé­lag­inu. Þau eru þvert á móti sam­tök fólks sem hefur aldrei verið í valda­stöðu í sam­fé­lag­inu og hefur þurft að berj­ast fyrir laga­legum rétt­indum og sam­fé­lags­legu sam­þykki til jafns við aðra í sam­fé­lag­inu með kjafti og klóm í tugi ára. Sú stað­reynd að þú sem alþing­is­maður birtir þessa grein sýnir svart á hvítu að sú bar­átta stendur enn yfir,“ skrifar Jóhannes Þór Skúlason. 

Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VK
    Víðir Kristjánsson skrifaði
    Efnilegur þingmaður. Greinin gæti verið skrifuð af foringjanum SDG miðað við innihaldið.
    0
  • Ingibjörg Stefánsdóttir skrifaði
    Kemur það Jóhannesi í alvöru á óvart að þingmaður Miðflokksins ýti undir fordóma?
    6
    • HR
      Hildigunnur Rúnarsdóttir skrifaði
      varla, en það er samt um að gera að svara fullum hálsi. Skoðanir þessa Snorra eru algjör skelfing, ekkert bara hvað varðar þetta.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár