Forsetinn veitti Rimu viðurkenningu en grípur ekki inn í brottvísun

Embætti for­seta segir að for­set­inn hafi ekki tök á að grípa inn í mál ein­stak­linga sem séu til með­ferðar í kerf­inu, líkt og Rimu Charaf Eddine Nasr. For­set­inn veitti Rimu nýlega við­ur­kenn­ingu fyrir að hafa verið til­nefnd til fram­úr­skar­andi ungs Íslend­ings árið 2024, en henni verður bráð­lega vísað úr landi.

Forsetinn veitti Rimu viðurkenningu en grípur ekki inn í brottvísun
Hlaut við­ur­kenn­ingu Rima segir Höllu for­seta hafi verið mjög indæla við sig á verð­launa­at­höfn­inni. Mynd: Golli

„Sem kunn­ugt er hefur for­seti ekki tök á því að grípa inn í mál ein­stak­linga sem eru til með­ferðar í kerf­inu. Forseti á hins­vegar í virku sam­tali við full­trúa stjórn­valda og beitir sér leynt og ljóst fyrir því að mennska og kær­leikur séu ávallt höfð að leið­ar­ljósi í okkar sam­fé­lagi.“

Þetta kemur fram í svari for­seta­emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar um hvað for­set­anum fynd­ist um yfir­vof­andi brott­vísun Rimu Charaf Eddine Nasr til Venes­ú­ela.

Halla Tóm­as­dóttir for­seti Íslands veitti Rimu við­ur­kenn­ingu fyrr í mán­uð­inum fyrir að hafa verið til­nefnd til verð­laun­anna Fram­úr­skar­andi ungur Íslend­ingur 2024.

For­set­inn er vernd­ari verð­laun­anna, sem eru á vegum Íslands­deildar alþjóð­legu ung­menna­hreyf­ing­ar­innar JCI. Rima var til­nefnd fyrir sjálf­boða­liða­störf sín fyrir Rauða kross­inn og félaga­sam­tökin Læti!/Stelpur rokka!

Valnefnd sér um val á einstaklingunum 

Nú stendur til að senda Rimu og systur hennar, sem eru upp­haf­lega frá …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Hvernig gat Forseti Íslands veitt einhverjum verðlaun fyrir að vera "framúrskarandi ungur Íslendingur" sem er það ekki? Þarf maður ekki að vera Íslendingur til að geta fengið verðlaun fyrir að vera (framúrskarandi) Íslendingur?
    0
  • ÞÁ
    Þröstur Ásmundsson skrifaði
    Mikið óskaplega eru okkur mislagðar hendur í þessum málum. Maður hefur á tilfinningunni að þetta sé allt ákveðið af einhverskonar gervigreindarapparati. Það hlýtur að vera hægt að að leiðrétta heimskulegustu mistökin. Það verður að gera alvarlega úttekt á þessum "afgreiðslum". Ég er sannfærður um að "venjulegt fólk" í landinu fyrirlítur svona vinnubrögð.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár