Sjálfstæðisflokkurinn kominn undir nítján prósent

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn held­ur áfram að dala og er kom­inn und­ir nítj­án pró­sent í fylgi. Þeir missa einn þing­mann yf­ir til Sam­fylk­ing­ar­inn­ar.

Sjálfstæðisflokkurinn kominn undir nítján prósent
Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson fyrr í nótt. Mynd: Golli

Sjálfstæðisflokkurinn missir einn þingmann þegar lokatölur úr Norðausturkjördæmi eru ljósar og fylgið heldur áfram að síga. Flokkurinn fer úr fjórtán þingmönnum niður í þrettán og mælist nú undir nítján prósentum. Samfylkingin hagnast hins vegar á niðurstöðunum og græðir þingmann til viðbótar og er því með 16 þingmenn eins og sakir standa á landinu öllu.

Sjálfstæðisflokkurinn horfir fram á verstu kosninganiðurstöðu flokksins í sögunni. Hann hefur aldrei farið undir tuttugu prósent og er að auki annar stærsti flokkurinn á Íslandi sem er nýr veruleiki í íslenskum stjórnmálum.

Framsóknarflokkurinn fær tvo þingmenn úr kjördæminu og má segja að það sé þokkalegur varnarsigur flokksins í Norðausturkjördæmi, þau missa þó einn þingmann. Fylgishrun Framsóknar er sögulegt líkt og Sjálfstæðisflokksins, en flokkurinn mælist í 7,9 prósentum samkvæmt kosningaspá Heimildarinnar.

Enn er beðið eftir lokaniðurstöðum úr tveimur kjördæmum. Búist er við lokatölum úr Suðvesturkjördæmi sem ættu að koma innan skamms.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Umdeilt hótel á Laugarvatni reist af útgerðarfjölskyldu úr Vestmannaeyjum
5
Viðskipti

Um­deilt hót­el á Laug­ar­vatni reist af út­gerð­ar­fjöl­skyldu úr Vest­manna­eyj­um

Mörg hundruð und­ir­skrifta hafa safn­ast gegn áform­um um 160 her­bergja hót­el við Laug­ar­vatn sem íbú­ar segja ógna lífs­gæð­um og líf­ríki á svæð­inu. Magnús Krist­ins­son, fyrr­um út­gerð­ar­mað­ur í Eyj­um, og fjöl­skylda hans eru stærstu fjár­fest­arn­ir bak við hót­el­ið og fast­eigna­veld­ið Ber­gey sem er í ör­um vexti.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Vinstri byltingin sem varð ekki: Af hverju sameinaðist vinstrið ekki í borginni?
6
Greining

Vinstri bylt­ing­in sem varð ekki: Af hverju sam­ein­að­ist vinstr­ið ekki í borg­inni?

Vinstri græn, Sósí­al­ist­ar og Pírat­ar eru sam­an­lagt með fimmtán pró­senta fylgi í borg­inni. Hvor í sínu lagi gætu þeir hins veg­ar ver­ið í fall­bar­áttu. Til­raun­ir voru gerð­ar til að ná sam­an um sam­eig­in­legt fram­boð fyr­ir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar, und­ir for­ystu sósí­al­ist­ans Sönnu Magda­lenu Mörtu­dótt­ur. Van­traust og skort­ur á mál­efna­legri sam­leið kom í veg fyr­ir það.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár