Telur í mesta lagi tvö gos eftir í Sundhnúksgígaröðinni – í bili

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur telur að ekki sé mikið eftir af þeim eldsum­brotum sem hafa verið í Sund­hnúka­gíga­röð­inni á þessu ári. „Ég held að ef þessi umbrot stoppa á Sund­hnúkar­ein­inni þá fáum við pásu í dágóðan tíma. Allavega það langan að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því í okkar líf­tíma.“

Telur í mesta lagi tvö gos eftir í Sundhnúksgígaröðinni – í bili

Mín til­finn­ing er að við sjáum í besta falli kannski eitt til tvö gos í við­bót og þá er þetta búið,“ spáir Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur fyrir um fram­tíð eld­virkn­innar í Sund­hnúka­gíga­röð­inni.

Hann telur að sú mikla virkni sem hefur verið í Sund­hnúka­gíga­röð­inni það sem af er ári muni ekki halda áfram mikið lengur og finnst það vera „á næstu grösum“ að umbrotin stöðv­ist.

Þetta rök­styður Þor­valdur með því að flæði kvik­unnar upp úr dýpra geymslu­hólfi og í það sem er grynnra, sem hefur valdið land­ris­inu í Svarts­engi, virð­ist alltaf vera að minnka. 

„Það er eins og það dragi smátt og smátt úr inn­flæð­inu. Ef það heldur áfram þá endar með því að þú lokar fyrir þetta flæði úr dýpra hólf­inu inn í það grynnra. Þá ertu búinn að loka fyrir aðfærsl­una á kviku inn í þetta kerfi sem er að gjósa. Þá stöðvast þetta. Mín til­finn­ing er að við sjáum í besta falli kannski eitt til tvö gos í við­bót og þá er þetta búið.“

Gosið hefði ekki átt að koma á óvart

Eldgos hófst í Sund­hnúka­gíga­röð­inni á milli Sýl­inga­fells og Stóra Skóg­fells klukkan 23:14 þann 20. nóv­em­ber. Þetta er sjö­unda gosið sem verður á svæð­inu á árinu og það tíunda síðan tíma­bil eldsum­brota hófst á Reykja­nesskaga í mars 2021.

Þor­valdur segir eld­gosið svipað og gosin sem urðu á undan því. Aflið í því sé þó heldur minna en í þeim fyrri. „Að öðru leyti er þetta ósköp svipað munstur og hegðun og við höfum verið að sjá.“ 

„Mér finnst flest teikn hafa verið að benda í þá átt­ina að gos væri í vændum

Daginn áður en það fór að gjósa til­kynnti Veð­ur­stofan að gögn hennar bentu til þess að ólík­legt væri að eld­gos bryt­ist út á Reykja­nesskaga í nóv­em­ber­mán­uði. Þor­valdur segir það rétt að skjálfta­virknin hafi verið í dauf­ara lagi og fyr­ir­var­inn því stuttur ef aðeins er litið til jarð­skjálfta. „En ef við horfum á land­risið, það hafði eig­in­lega stöðvast og jafn­vel farið að síga. Við sjáum á gögn­unum að þessi við­snún­ingur hafi byrjað fyrir nokkuð mörgum dögum síðan,“ segir hann.

Þor­valdur segir að þetta hafi bent til þess að það væri lík­legt að flæða færi úr kviku­hólf­inu. „Þannig að kvikan hefur verið komin af stað fyrir nokkru. Það hefði ekki átt að koma okkur á óvart að það kæmi gos núna. Mér finnst flest teikn hafa verið að benda í þá átt­ina að gos væri í vændum.“

Virknin gæti færst annað

Sem fyrr segir heldur Þor­valdur að þessi mikla eld­virkni muni ekki halda áfram upp­teknum hætti mikið lengur. Hann telur að ef til vill gæti gosið á svip­uðum stað aftur í vetur og jafn­vel í vor líka. „Ef þetta gengur svo lengi.“ Hann segir að upp úr því ættu teikn um að virknin þarna sé að klár­ast að fara að koma í ljós. „En það er nóg kvika í þessu dýpra geymslu­hólfi þannig að ef þetta stoppar þarna þá tekur bara eitt­hvað annað við.“

Hann segir það þó óljóst hvenær það gæti gerst. „Það gæti færst í Eld­vörpin, Krýsu­vík­ina eða jafn­vel út á Reykja­nesið. Það þarf ekki að ger­ast um leið og þetta hættir. Það geta liðið ein­hverjir mán­uðir, ár eða ára­tugir þangað til við fáum næstu hrinu á Reykja­nesskag­anum.“

Þó sé betra en ella að vera und­ir­bú­inn undir næstu atburði, hvenær sem þeir koma.

Þor­valdur segir að þegar eld­virknin hættir í Sund­hnúka­gíga­röð­inni megi búast við hléi þar í dágóðan tíma. „Hvort pásan verður tugir ára eða hund­ruð ára – jafn­vel bara í 800 ár – er erfitt að segja til um. Ef við horfum á fyrri gos­tíma­bil hafa sumar gos­reinar tekið sig upp aftur seinna á gos­tíma­bil­inu, en þá eru kannski liðin svona 100–200 ár á milli. Ég held að ef þessi umbrot stoppa á Sund­hnúkar­ein­inni þá fáum við pásu í dágóðan tíma. Allavega það langan að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því í okkar líf­tíma.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár