Mynd: Heimildin

Hvort, hvar og hver á að byggja vindorkuver?

Á að reisa vind­orku­ver á Íslandi? Af hverju? Af hverju ekki? Hvar á að byggja þau, hver á að gera það og til hvers? Augljós skoð­ana­munur er milli stjórn­mála­flokka í vind­orku­málum en sam­eig­in­leg stef eru þó til staðar. Flestir vilja til dæmis að farið verði var­lega í slíka upp­bygg­ingu, meðal ann­ars í ljósi sér­stöðu íslenskrar nátt­úru.

Sam­fylk­ingin segir mik­il­vægt að vind­orku­kostir verði á hendi opin­berra fyr­ir­tækja í eigu almenn­ings, á meðan ekki hefur verið mótuð stefna og lag­ara­mmi um nýt­ing­una. Þá vill flokk­ur­inn að meg­in­hluti raf­orku­fram­leiðslu á Íslandi verði áfram á hendi ríkis og sveit­ar­fé­laga og að vind­orku­ver verði byggð í grennd við vatns­afls­virkj­anir. 

Viðreisn styður nýt­ingu vind­orku og að hæf orku­fyr­ir­tæki, í opin­berri eða einka­eigu, fái að reisa vind­orku­ver. Tryggja þurfi sann­gjörn auð­linda­gjöld af nýt­ingu vind­orku og að gjald­takan renni að hluta til nær­sam­fé­lags­ins.

Sós­í­alista­flokki Íslands þykja þau stór­felldu vind­myllu­á­form sem nú eru í kort­unum fara langt fram úr allri skyn­semi. Flokk­ur­inn vill leyfa nátt­úru lands­ins og almenn­ingi að njóta vafans á meðan enn hafi ekki verið fundin lausn á því hvernig nýta megi vind­orku á þann máta að ekki þurfi að koma til nátt­úru­spjöll og yfir­gangur stór­fyr­ir­tækja.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vill að farið verði hægt í upp­bygg­ingu vind­orku­vera og að lögð verði áhersla á vönduð skref á afar afmörk­uðum stöðum. Áhrif vind­orku­vera á nátt­úr­una séu tölu­vert frá­brugðin þeim áhrifum ann­arra virkj­ana. Því sé það mik­il­vægt nátt­úru­vernd­ar­mál að upp­bygg­ing slíkra orku­vera fari fram af var­færni.

Píratar tala sömu­leiðis fyrir var­færnum skrefum þannig að nýir orku­kostir séu ekki þró­aðir á kostnað umhverfis og nátt­úru. Þá seg­ist flokk­ur­inn hafa efa­semdir um þær for­sendur sem liggja fyrir í áætl­unum um að byggja upp vind­orku­ver hér á landi eins og staðan sé núna. 

Vinstri græn telja að rann­saka þurfi nánar afleið­ingar orku­öfl­unar með vindi og kynna fyrir almenn­ingi áður en teknar verði óaft­ur­kræfar ákvarð­anir. Þá hugn­ast flokknum ekki að erlendir aðilar fái að nýta vind til raf­orku­fram­leiðslu í hagn­að­ar­skyni.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn styður hvers konar græna orku­öflun, hvort sem það er virkjun fall­vatna, jarð­hita, vinds, birtu, sjáv­ar­falla eða annað svo lengi sem gætt sé jafn­vægis milli nýt­ingar og verndar nátt­úr­unnar. Flokk­ur­inn styður að æski­legt sé að vind­orku­ver bygg­ist upp á afmörk­uðum svæðum nærri tengi­virkjum og flutn­ings­línum.

Flokkur fólks­ins vill helst engin vind­orku­ver og að tryggt verði að erlendir fjár­festar geti aldrei eign­ast ork­una okkar. 

Heim­ildin spurði flokka sem bjóða fram til Alþingis um stefnu þeirra í vind­orku­málum. Spurt var:

Á að byggja vind­orku­ver á Íslandi?

Ef já, hvar á að byggja þau og hver á að byggja þau?

Ef nei, af hverju ekki?

Telur flokk­ur­inn að setja þurfi stefnu um í hvað orkan eigi að fara?

Hér að neðan fara svör hvers flokks fyrir sig. Mið­flokk­ur­inn skil­aði ekki svörum.

Flokkur fólksins

Á að byggja vind­orku­ver á Íslandi?

Nei.

„Við viljum fyrst og fremst tryggja orku til heim­il­anna“

Það er hins vegar þegar búið að gefa leyfi fyrir bygg­ingu eins vind­orku­vers á Íslandi, Búr­fellslundi. Flokkur fólks­ins vill fá 100 pró­sent reynslu á það orku­ver, ef og þegar af því verður, áður en farið verður að líta lengra. Þá vill flokk­ur­inn tryggja að erlendir fjár­festar geti aldrei komið hingað og eign­ast ork­una okkar.

Flokkur fólks­ins vill fyrst og fremst tryggja orku til heim­il­anna. 

Framsóknarflokkurinn

Á að byggja vind­orku­ver á Íslandi?

Vindorka er ný auð­lind sem Ísland getur nýtt bæði á hafi og landi. Um þessar mundir eru tugir vind­orku­vera af ýmsum stærðum og gerðum í und­ir­bún­ingi, og fjöldi þeirra gæti auk­ist veru­lega víðs vegar um landið sam­kvæmt núver­andi reglu­verki. Eins og staðan er þá er er svo mik­ill fjöldi vind­orku­vera til skoð­unar í kerf­inu og er sam­an­lagt upp­sett afl þeirra meira en núver­andi stærð íslenska orku­kerf­is­ins.

„Það er mik­il­vægt að ábati af vind­orku­nýt­ingu sé skýr og skili sér beint til sam­fé­lags­ins, í sam­ræmi við stefnu okkar um sjálf­bæra nýt­ingu auð­linda“

Framsókn vill snúa frá þeirri þróun og að farið verði hægar í upp­bygg­ingu vind­orku og að lögð verði áhersla á vönduð skref á afar afmörk­uðum stöðum. Með þessu viljum við draga úr ágrein­ingi, tryggja vernd nátt­úr­unnar og hámarka hag­kvæmni verk­efna í sam­ræmi við mark­mið stjórn­valda. Nú þegar hafa tvö vind­orku­ver verið sam­þykkt – Búr­fellslundur og Blöndu­lundur – og mik­il­væg lær­dóms­rík reynsla mun fást af þessum verk­efnum sem hægt er að byggja á við frek­ari upp­bygg­ingu. Þessi reynsla getur verið grunnur að frek­ari þróun, í anda þess sem gert var í fyrri upp­bygg­ingu raf­orku­kerf­is­ins, sem gert var í skrefum og þekk­ing efldist um leið. Mögulega er einnig hægt að meta fá hag­kvæm verk­efni til við­bótar sem hafa lág­marks­á­hrif á umhverfið en stuðla að auknu orku­ör­yggi á mis­mun­andi svæðum lands­ins. Það er mik­il­vægt að ábati af vind­orku­nýt­ingu sé skýr og skili sér beint til sam­fé­lags­ins, í sam­ræmi við stefnu okkar um sjálf­bæra nýt­ingu auð­linda.

Auk þess er mikil þörf á heild­stæðu reglu­verki fyrir vind­orku á hafi. Þar þarf að móta fram­tíð­ar­sýn og skil­greina mögu­leg haf­svæði fyrir útboð og nýt­ingu, í stað þess að bregð­ast ein­ungis við ein­staka beiðnum frá einka­að­ilum sem þegar hafa lýst yfir áhuga á nýt­ingu haf­svæða. Vind­orku­ver hafa áhrif á nátt­úr­una sem eru tölu­vert frá­brugðin þeim áhrifum sem vatns­afl og jarð­hiti hafa. Því er það mik­il­vægt nátt­úru­vernd­ar­mál að upp­bygg­ing vind­orku­vera fari fram af var­færni og með vand­aðri útfærslu til að tryggja að þessi nýja auð­lind verði nýtt á sjálf­bæran og ábyrgan hátt í þágu sam­fé­lags­ins.

Ef já, hvar á að byggja þau og hver á að byggja þau?

Framsókn telur mik­il­vægt að upp­bygg­ing vind­orku á Íslandi fari fram með yfir­veg­uðum og var­færnum hætti, þar sem tekið er eitt skref í einu og svæðin afmörkuð vand­lega. Upp­hafs­skrefin ætti að miða við þau verk­efni sem þegar hafa verið sam­þykkt í ramma­á­ætlun. Framsókn telur að opin­bert eign­ar­hald sé almennt fýsi­legri leið í þessum efnum þar sem slíkt eign­ar­hald tryggir að ábati verk­efna renni til sam­fé­lags­ins. Mik­il­vægt er að bæði nær­sam­fé­lagið og ríkið njóti góðs af nýt­ingu þess­arar auð­lindar, enda styður slíkt við lang­tíma mark­mið um sjálf­bæra þróun og aukið orku­ör­yggi.

Telur flokk­ur­inn að setja þurfi stefnu um í hvað orkan eigi að fara?

Framsókn leggur mikla áherslu á að skýr stefna verði mótuð um nýt­ingu orku­auð­linda, þar sem mark­miðið er að orkan verði fyrst og fremst nýtt til að mæta inn­lendri orku­þörf. Það er for­gangs­mál að styðja orku­skipti inn­an­lands og skapa fjöl­breytt­ari atvinnu­starf­semi um allt land sem skilar sam­fé­lags­legum ávinn­ingi. Með þessu tryggjum við að orkan stuðli að sjálf­bærum hag­vexti og lífs­gæðum fyrir lands­menn, ásamt því að styrkja inn­viði sem stuðla að auk­inni sjálf­bærni og orku­ör­yggi á Íslandi. Í allri vinnu skal gæta að lág­marka umhverf­is­á­hrif og hlú að nátt­úru lands­ins sem einnig er verð­mæt auð­lind.

Píratar

Á að byggja vind­orku­ver á Íslandi?

Píratar hafa sett spurn­ing­ar­merki við þann mikla þrýst­ing sem rík­is­stjórnin hefur sett á aukna orku­vinnslu, sem virð­ist oft not­aður til að breiða yfir það aðgerða­leysi sem ríkt hefur í lofts­lags­málum á kjör­tíma­bil­inu. Við tölum fyrir var­færnum skrefum þannig að nýir orku­kostir séu ekki þró­aðir á kostnað umhverfis og nátt­úru. Það hefur verið kostu­legt að fylgj­ast með umræðu um orku­mál á und­an­förnum árum, þar sem rík­is­stjórnin hefur verið leið­andi í áróðri um mein­tan orku­skort í landi sem fram­leiðir meiri raf­orku miðað við höfða­tölu en nokk­urt annað ríki. Á sama tíma hefur skort reglu­verk til að tryggja að ný orka fari í orku­skipti og standa vörð um stöðu almenn­ings á raf­orku­mark­aði.

„Þarna er um að ræða fjár­festa með stórar hug­myndir um vind­orku­ver sem tengj­ast síðan enn stærri hug­myndum um raf­elds­neyt­is­fram­leiðslu til útflutn­ings“

Áður en orku­skipti eru notuð sem rétt­læt­ing fyrir nýrri orku­vinnslu þarf að gera skýra áætlun um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, sem rík­is­stjórnin hefur ekki gert. Þá þarf raun­hæfa áætlun um orku­þörf til fram­tíðar, þar sem meðal ann­ars er horft til þess að draga úr vægi stór­iðj­unnar sem í dag notar bróð­ur­hluta þeirrar raf­orku sem er fram­leidd. Ef nið­ur­staðan af þessu verður að auka þurfi orku­fram­leiðslu þá þarf að gæta þess við þróun vind­orku að settur sé skýr lag­ara­mmi þar sem tryggt sé að saman fari hags­munir almenn­ings, nátt­úru og nær­sam­fé­lags. 

Ef nei, af hverju ekki?

Píratar hafa efa­semdir um þær for­sendur sem liggja fyrir í áætl­unum um að byggja upp vind­orku­ver hér á landi eins og staðan er núna. Vind­orkan hefur farið fram á öðrum for­sendum en orku­vinnsla fyrri tíma, þar sem einka­að­ilar eru drif­kraft­ur­inn í fram­kvæmdum. Þarna er um að ræða fjár­festa með stórar hug­myndir um vind­orku­ver sem tengj­ast síðan enn stærri hug­myndum um raf­elds­neyt­is­fram­leiðslu til útflutn­ings. Þær áætl­anir virð­ast hins vegar almennt gera ráð fyrir því að hið opin­bera sé í raun bak­hjarl, hvort sem er með því að Lands­virkjun sé skikkuð til að tryggja jöfn­un­ar­afl, eins og lagt er til í stjórn­ar­frum­varpi um vind­ork­una, eða með því að byggðir séu upp inn­viðir sem eru nauð­syn­legir til að koma verk­efn­unum á kopp­inn, eins og með því að styrkja þjóð­vegi til að bera gríð­ar­stóra flutn­inga­bíla á fram­kvæmda­tíma eða flutn­ings­kerfi til að hægt sé að koma orkunni á kerfið.

Ef já, hvar á að byggja þau og hver á að byggja þau?

Píratar vilja tryggja var­úð­ar­sjón­ar­mið svo nýir orku­kostir séu ekki þró­aðir á kostnað umhverfis og nátt­úru. Vindorka krefst þess að settur sé skýr lag­ara­mmi þar sem tryggt sé að saman fari hags­munir almenn­ings, nátt­úru og nær­sam­fé­lags. 

Telur flokk­ur­inn að setja þurfi stefnu um í hvað orkan eigi að fara?

Pírötum þykir mik­il­vægt að gera raun­hæfa áætlun um orku­þörf til fram­tíðar, þar sem meðal ann­ars er horft til að draga úr vægi meng­andi stór­iðju í raf­orku­kerf­inu. Það þarf að tryggja að orku­vinnsla gangi til orku­skipta og að orka sé nýtt til upp­bygg­ingar grænnar nýsköp­unar – en frum­for­senda fyrir slíkri for­gangs­röðun er að setja skýra stefnu um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Við viljum standa með almenn­ingi og smærri not­endum þannig að þeim sé tryggt aðgengi að áreið­an­legri end­ur­nýj­an­legri orku á við­ráð­an­legu verði og að fólk sitji við sama borð hvar sem er á land­inu.

Samfylkingin

Á að byggja vind­orku­ver á Íslandi? 

Sjón­ar­mið nátt­úru­verndar og kröfur um aðra land­nýt­ingu en til hefð­bund­innar orku­vinnslu gera að verkum að eðli­legt er horfa til nýrra orku­gjafa við mótun stefnu um orku­öflun næstu ára­tugi. Þar er um að ræða vind­orku, sól­ar­orku og sjáv­ar­falla­orku. Sam­fylk­ingin er reiðu­búin til sam­starfs um nýt­ingu allra þess­ara orku­gjafa, að því gefnu að starf­semin lúti reglum um umgengni við nátt­úru, skipu­lag og fram­lag auð­lind­arentu til þjóð­ar­innar. Sólar- og sjáv­ar­orka eru spenn­andi orku­kostir sem nú þegar þarf að kanna hvort og hvernig henta hér­lendis. Vindorka er á hinn bóg­inn þegar orð­inn raun­hæfur kostur sem þarf að leggja grunn að með laga­setn­ingu og skipu­lags­vinnu.

„Það er rétt­læt­is­mál að orku­fyr­ir­tæki greiði fyrir aðgang að auð­lindum og að hluti af tekjum renni til nær­sam­fé­lags“

Ef já, hvar á að byggja þau og hver á að byggja þau?

Hvers kyns ákvarð­anir um orku­vinnslu, þar með talið hvar byggja eigi vind­orku­ver, eiga að byggj­ast á heild­stæðu hags­muna­mati þar sem tekið er til­lit til vernd­ar­gildis nátt­úru og menn­ing­ar­sögu­legra minja og til hag­kvæmni ólíkra nýt­ing­ar­kosta með sjálf­bæra þróun að leið­ar­ljósi. Með ramma­á­ætlun, sem lög­fest var í stjórn­ar­tíð Sam­fylk­ing­ar­innar, voru skap­aðar leik­reglur um þetta. Þau lög og annað reglu­verk þarf að bæta með lang­tíma­sjón­ar­mið og rétt kom­andi kyn­slóða í huga.

Sam­fylk­ingin tók þátt í afgreiðslu 3. áfanga ramma­á­ætl­unar vorið 2022 á Alþingi. Flokk­ur­inn studdi tvo vind­orku­kosti í þeirri áætlun, við Búrfell og Blöndu. For­sendur þess voru þrenns konar. Í fyrsta lagi er mik­il­vægt að vind­orku­kostir séu á hendi opin­berra fyr­ir­tækja í eigu almenn­ings, á meðan ekki hefur verið mótuð stefna og lag­ara­mmi um nýt­ingu vind­orku, í þessu til­viki Lands­virkj­unar, þannig að þróun verk­efn­anna sé á hendi stærstu og reynslu­mestu fyr­ir­tækj­anna. Í öðru lagi er mjög mik­il­vægt að við þróun nýt­ingar vind­orku sé hugað að því að vind­orku­ver séu stað­sett nálægt vatns­afls­virkj­unum. Þannig nýt­ist orkan lang­best og mestar líkur til þess að vind­orku­ver sé sett niður þar sem þegar hefur verið fram­kvæmt vegna virkj­ana, þ.e. ekki á órösk­uðu landi. Í þriðja lagi  þá styður Sam­fylk­ingin ein­dregið að allir orku­kostir hér á landi fari til fag­legrar skoð­unar og röð­unar á vett­vangi ramma­á­ætl­unar. Sam­fylk­ingin vill að meg­in­hluti raf­orku­fram­leiðslu á Íslandi verði áfram á hendi ríkis og sveit­ar­fé­laga og leggst gegn hvers kyns hug­myndum um einka­væð­ingu eða upp­skipt­ingu Lands­virkj­unar.

Telur flokk­ur­inn að setja þurfi stefnu um í hvað orkan eigi að fara?

Já, Sam­fylk­ingin telur nauð­syn­legt að setja í lög ákvæði um að almenn­ingur og almenn fyr­ir­tæki hafi aðgang að for­gangsorku frá orku­veitum. Einnig er eðli­legt að sett verði þak á arð­semi raf­orku­sölu til heim­ila, á sama hátt og um sölu heits og kalds vatns. Það er rétt­læt­is­mál að orku­fyr­ir­tæki greiði fyrir aðgang að auð­lindum og að hluti af tekjum renni til nær­sam­fé­lags vegna stað­bund­inna áhrifa af nýt­ing­unni, óháð eign­ar­haldi og hvort sem orku­vinnslan nýtir vatns­afl, jarð­varma, vind eða aðra orku­gjafa.

Sjálfstæðisflokkurinn

Á að byggja vind­orku­ver á Íslandi?

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leggur áherslu á að Ísland stefni að fullum orku­skiptum og orku­sjálf­stæði. Það verður aðeins gert með því að hætta notkun inn­flutts jarð­efna­elds­neytis og nýta í stað­inn inn­lenda græna orku sem unnin er með sjálf­bærum og ábyrgum hætti. Tryggja þarf að þau orku­skipti dragi ekki úr sam­keppn­is­hæfni íslenskra fyr­ir­tækja og að lágt orku­verð til heim­ila verði áfram tryggt. 

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn styður atvinnu­frelsi og dæmir því ekki um hverjir mega eða mega ekki byggja upp virkj­un­ar­kosti á Íslandi“

Hlutverk stjórn­valda er að skapa það umhverfi að hægt sé að ná settum mark­miðum m.a. varð­andi orku­skipti. Í því sam­hengi er ljóst að afla þarf grænnar orku svo hægt sé að skipta út jarð­efna­elds­neyti fyrir græna orku­gjafa. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn styður hvers konar græna orku­öflun, hvort sem það er virkjun fall­vatna, jarð­hita, vinds, birtu, sjáv­ar­falla eða annað svo lengi sem gætt er að jafn­vægis milli nýt­ingar og verndar nátt­úr­unnar.

Ef já, hvar á að byggja þau og hver á að byggja þau?

Ramma­á­ætlun er það fyr­ir­komu­lag sem notað er til að ákveða hvar má byggja orku­ver og á það einnig við um vind­orku. Það fyr­ir­komu­lag er í end­ur­skoðun og nið­ur­staða þeirrar vinnu er vænt­an­leg. Ráðherra Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur lagt fram til­lögu til þings­á­lykt­unar um stefnu um upp­bygg­ingu vind­orku á Íslandi sem og laga­frum­varp þar sem settar eru fram meg­in­for­sendur upp­bygg­ingar virkj­un­ar­kosta í vind­orku. Frum­varpið gerir ráð fyrir því að virkj­ana­kostir sem upp­fylla skil­yrði þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar geti farið í flýti­með­ferð en þó þannig að sveit­ar­fé­lög ákveði hvort við­kom­andi kostur verði sam­þykktur.

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni er lagt til að upp­bygg­ing vind­orku­kosta verði óheimil á frið­lýstum svæðum á A-hluta nátt­úru­minja­skrár, svæðum á B-hluta nátt­úru­minja­skrár, svæðum innan marka frið­helg­unar menn­ing­arminja, á svæðum á heimsminja­skrá UNESCO, Ramsar-svæðum, á við­kvæmum fugla­svæðum og svæðum innan marka mið­há­lend­is­línu. Þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins sam­þykkti að til­lagan gengi með þessum hætti til Alþingis.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn styður að æski­legt sé að vind­orku­ver bygg­ist upp á afmörk­uðum svæðum nærri tengi­virkjum og flutn­ings­línum þar sem unnt verði að tryggja afhend­ingar­ör­yggi og lág­marka umhverf­is­á­hrif.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn styður atvinnu­frelsi og dæmir því ekki um hverjir mega eða mega ekki byggja upp virkj­un­ar­kosti á Íslandi enda vand­séð hvernig það sam­rým­ist stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins að banna ein­hverjum að taka þátt í virkj­un­ar­fram­kvæmdum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur ekki í hyggju að selja Lands­virkjun hvorki að hluta né að fullu.

Telur flokk­ur­inn að setja þurfi stefnu um í hvað orkan eigi að fara?

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn telur nauð­syn­legt að ríkið setji skýra eig­enda­stefnu gagn­vart orku­fyr­ir­tækjum og raf­orku­flutn­ings­fyr­ir­tækjum í eigu rík­is­ins sem tryggi m.a. að þau styðji stjórn­völd í að ná mark­miðum sínum í lofts­lags­málum. Stjórn­völd þurfa að skil­greina ábyrgð á því að tryggja full­nægj­andi fram­boð raf­orku til heim­ila og ann­arra almennra not­enda og tryggja jafn­framt orku­ör­yggi lands­ins. Jafn­framt er hags­munum Íslands best borgið með því að byggja upp grænt atvinnu­líf í tengslum við orku­skipti hér á landi og tengj­ast ekki raf­orku­kerfi ann­arra ríkja. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stendur heils­hugar á bak við hug­myndir um atvinnu­upp­bygg­ingu inn­an­lands á grunni hag­kvæmrar nýt­ingar orku­auð­linda.

Sósíalistaflokkur Íslands

Vind­myllur eru hluti af tækni­lausnum til orku­öfl­unar í heims­byggð­inni til að losna undan ofur­valdi jarð­efna­elds­neyta. Sós­í­alistar eru umhverf­is­sinnar og eru sem slíkir jákvæðir gagn­vart öllum lausnum sem leiða til lækk­unar los­unar koltví­sýr­ings út í and­rúms­loftið. Sós­í­alistar gera hins vegar kröfu um að allar slíkar fram­kvæmdir á Íslandi séu á vegum Lands­virkj­unar og í eigu almenn­ings og að Lands­virkjun leit­ist eftir því að virða vilja almenn­ings. Þau stór­felldu vind­myllu-áform sem nú eru í kort­unum fara langt fram úr allri skyn­semi og taka ekk­ert mið af lang­tíma­á­hrifum á sam­fé­lag og nátt­úru. Vind­myllur geta í fyrstu virst vera góð lausn til orku­öfl­unar, umhverf­is­væn lausn í átt að minnk­andi neyslu til að upp­fylla lofts­lags­mark­mið og samn­inga. En hættan er að fram­kvæmdin feli í sér óaft­ur­kræft inn­grip í nátt­úru lands­ins.  

„Við megum ekki afsala okkur ábyrgð á nátt­úr­unni í hendur auð­hringja og verðum að vera upp­lýst um óaft­ur­kræf áhrif á nátt­úru okkar“

Und­ir­bún­ingur orku­skipta hefur því miður verið helst til ólýð­ræð­is­legur og ógagn­sær þar sem hags­muna­að­ilar hafa frítt spil en ekki nóg­sam­lega hlustað á íbúa umræddra svæða og sér­fræð­inga sem hafa athugað aðgerð­irnar í sam­hengi. Spurn­ingar hafa vaknað um óeðli­lega íhlutun einka­fyr­ir­tækja í við­kvæm byggða- og vist­kerfi. Sós­í­alista­flokk­ur­inn krefst þess að slíkir virkj­ana­kostir séu ræddir og rann­sak­aðir frá öllum sjón­ar­hornum áður en tekin er ákvörðun um fram­kvæmd­ina, sér­stak­lega þegar rík and­staða íbúa á svæð­unum er fyrir hendi. Sú and­staða er í sjálfu sér ástæða til að efast um virkj­ana­kost­inn. Afar ólík­legt er að sú gríð­ar­lega orku­þörf sem verið er að mæta sé til staðar og yfir­gengi­leg áform um vind­orku­ver um allt land séu rétt­læt­an­leg. 

Sós­í­alista­flokk­ur­inn vill leyfa nátt­úru lands­ins og almenn­ingi á Íslandi að njóta vafans á meðan enn er ekki fundin lausn á því hvernig nýta megi vind­orku á þann máta að ekki þurfi að koma til nátt­úru­spjöll og yfir­gangur stór­fyr­ir­tækja sem áforma stór­fellda vind­myllu­garða, stundum í takt við sveita­stjórnir en yfir­leitt – í trássi við nær­sam­fé­lögin, reynslu­þekk­ingu og stað­reyndir byggðar á vís­inda­legum próf­unum sem lúta að líf­fræði­legum fjöl­breyti­leika og sam­teng­ingu lofts­lags­sjón­ar­miða, dýra- og nátt­úru­verndar. Öll orku­virkj­un­ar­upp­bygg­ing þarf öllu heldur að und­ir­gang­ast ströng skil­yrði um raun­veru­lega sjálf­bæra þróun, þ.e. hvort til­tek­inn virkj­ana­kostur stuðli frekar að eða hamli grósku sam­fé­lag­anna með almanna­hag að leið­ar­ljósi, bæði félags­lega og efna­hags­lega, og sé liður í vernd nátt­úr­unnar þar sem hringrásir hennar séu virtar í ljósi raun­veru­legs end­ur­nýj­an­leika. 

Við megum ekki afsala okkur ábyrgð á nátt­úr­unni í hendur auð­hringja og verðum að vera upp­lýst um óaft­ur­kræf áhrif á nátt­úru okkar og sam­fé­lög á lands­byggð­inni og um allt land, og einnig um hugs­an­lega sam­trygg­ingu hags­muna­að­ila þar sem almenn­ingur er yfir­leitt úr mynd­inni. Nátt­úru­auð­lindir skulu sam­kvæmt Sós­í­alista­flokknum vera í almanna­eigu og ábyrgð­inni gagn­vart sam­fé­lag­inu og nátt­úr­unni má aldrei afsala eða útvista fyrir skamm­tíma­sjón­ar­mið gróða og orku­stefnu sem slítur úr sam­bandi ein­stök lofts­lags­mark­mið og heild­ar­mynd nátt­úru­verndar og almanna­heilla. Vind­myllu­á­form stór­fyr­ir­tækja, erlendra og/eða inn­lendra einka­fyr­ir­tækja og hluta­fé­laga í þeim stór­felldu áformum sem liggja nú fyrir geta því ekki sam­rýmst stefnu Sós­í­alista­flokks Íslands. 

Vind­orku­ver hafa í för með sér gríð­ar­legt og oft­ast óaft­ur­kræft inn­grip í nátt­úru lands­ins og raska einnig hag­fræði­lega ákjós­an­legum jarð­vegi fyrir lítil sam­fé­lög og blóm­legt atvinnu­líf almenn­ings. Upp­bygg­ing vind­myllu­garða hér á landi hefur hingað til í flestum til­fellum ef ekki öllum verið á for­sendum stór­fyr­ir­tækja sem sjá sér leik á borði að ráð­ast í aðgerðir á svæðum sem þau telja ómerki­leg og með lit­inn fórn­ar­kostnað. Í tengslum við þau áform og íhlut­anir hafa and­mæli almenn­ings og íbúa á svæð­unum, fag­fólks á sviði orku­nýt­ingar, nátt­úru­verndar og lofts­lags­mála ítrekað verið hunsuð. Sós­í­alista­flokkur Íslands getur ekki afgreitt öll vind­orku­á­form í eitt skipti fyrir öll, enda á sér stað ör þróun á sviði iðn­að­ar­ins sem von­andi verður að æ ákjós­an­legri kostum, en krefst þess að tekið verði mið af nýj­ustu rann­sóknum í geir­anum og hlustað á raddir íbúa og almenn­ings sem og raddir fag­fólks sem tekur heild­ar­sam­hengi íhlut­unar inn í mynd­ina og leyfir almenn­ingi og nátt­úru lands­ins að njóta vafans. Því þar sem orku­skortur er ekki aðkallandi eins og látið er að liggja í aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda þarf að ganga úr skugga um að heild­ar­mynd upp­bygg­ing­ar­innar hvað varðar eign­ar­hald, ábyrgð og áhrif sé til staðar, skýr og opin fyrir áfram­hald­andi umræðu. 

Viðreisn

„Hafa skal í huga að tak­marka nei­kvæð áhrif á fugla­líf og nær­sam­fé­lög eins vel og unnt er þegar valið er hvar skal reisa vind­orku­ver“

Viðreisn styður nýt­ingu vind­orku. Vind­orku­ver ætti að stað­setja utan þjóð­garða og beina upp­bygg­ingu þeirra þangað þar sem við­eig­andi inn­viðir eru til staðar (t.d. sterkt flutn­ings­kerfi og aðgengi að sveigj­an­legri raf­orku­vinnslu). Hafa skal í huga að tak­marka nei­kvæð áhrif á fugla­líf og nær­sam­fé­lög eins vel og unnt er þegar valið er hvar skal reisa vind­orku­ver. Hæf orku­fyr­ir­tæki, í opin­berri eða einka­eigu, eiga að fá að reisa vind­orku­ver og tryggja þarf sann­gjörn auð­linda­gjöld af nýt­ingu vind­orku og tryggja að gjald­takan renni að hluta til nær­sam­fé­lags­ins. Viðreisn styður að mótuð verði atvinnu- og iðn­að­ar­stefna fyrir Ísland þar sem stjórn­völd for­gangs­raða orku í þágu orku­skipta og grænnar atvinnu­upp­bygg­ingar auk þess að tryggja for­gang heim­ila og minni fyr­ir­tækja ef til orku­skorts kemur.

Vinstri hreyfingin – grænt framboð

Afleið­ingar orku­öfl­unar með vindi þarf að rann­saka nánar á Íslandi og kynna fyrir almenn­ingi áður en teknar eru óaft­ur­kræfar ákvarð­anir. Gera skal ríka kröfu til þess að sýnt sé fram á hvort vind­orku­ver sam­ræm­ist og falli að íslenskum aðstæðum, nátt­úru, líf­ríki, víð­ernum, sam­fé­lagi og orku­innviðum.

„Ef vind­orku­ver verða að veru­leika hér­lendis þá eiga opin­berir aðilar að sjá um upp­bygg­ing­una og á landi eiga þau aðeins heima á þegar rösk­uðum svæðum“

Að mati okkar í VG þarf að marka stefnu hið fyrsta um nýt­ingu vind­orku á landi og hafi í íslenskri lög­sögu og setja þarf skýrar reglur um inn­heimtu auð­linda­gjalds af vind­orku­virkj­unum sem renna á til sam­fé­lags­ins alls. Ef vind­orku­ver verða að veru­leika hér­lendis þá eiga opin­berir aðilar að sjá um upp­bygg­ing­una og á landi eiga þau aðeins heima á þegar rösk­uðum svæðum með teng­ingu við orku­inn­viði sem fyrir eru í almanna­eigu. Skýrar reglur þurfa að gilda um vind­orku­ver t.d. um stærð þeirra, efni, lit og annað eftir því hver áhrif þeirra eru á umhverfið. Vind­orku­ver skulu falla undir ramma­á­ætlun og lúta lögum og reglum um mat á umhverf­is­á­hrifum. Útgefin leyfi þurfa að kveða á um ábyrgð á nið­ur­rifi og förgun úrsér­geng­inna vind­orku­mann­virkja. Okkur í VG hugn­ast ekki að erlendir aðilar fái að nýta vind til raf­orku­fram­leiðslu í hagn­að­ar­skyni.

Meta þarf orku­þörf lands­ins til fram­tíðar af vís­inda­mönnum sem ekki hafa hags­muna að gæta. Það mat getur þá vísað veg­inn um hvort þörf sé á því að byggja vind­orku­ver hér­lendis. Við í VG viljum að orku­auð­lindir lands­ins verði nýttar til að byggja upp kolefn­is­hlut­laust sam­fé­lag. Eigi nýjar virkj­anir að ná mark­miðum Íslands um full orku­skipti fyrir árið 2040 verður að ríkja sátt um það hvernig og hvar orkunnar er aflað. Mestu skiptir að það verði gert af var­færni gagn­vart við­kvæmri nátt­úru lands­ins og í sátt við sam­fé­lagið. Kalla þarf eftir afstöðu almenn­ings og félaga­sam­taka m.t.t. nátt­úru- og umhverf­is­vernd­ar­sjón­ar­miða vegna þessa.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vindorkumál

Ný ógn við haförninn rís á Íslandi
Vindorkumál

Ný ógn við haf­örn­inn rís á Íslandi

Hafernir falla blóð­ugir og vængja­lausir til jarðar í vind­orku­verum Noregs sem mörg hver voru reist í og við búsvæði þeirra og helstu flug­leiðir. Hættan var þekkt áður en verin risu og nú súpa Norðmenn seyðið af því. Sagan gæti end­ur­tekið sig á Íslandi því mörg þeirra fjöru­tíu vind­orku­vera sem áformað er að reisa hér yrðu á slóðum hafarna. Þessara stór­vöxnu rán­fugla sem ómæld vinna hefur farið í að vernda í heila öld.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár