„Við mætum í vinnuna til þess að sigra“

„Við mætum í vinnuna til þess að sigra“

Kona sem situr á bið­stofu með fleira fólki er að grein­ast með heila­æxli og það þarf að til­kynna henni það. En það er eng­inn staður sem hægt er að fara með hana á, til að ræða við hana í næði. Í annan stað er rætt við aðstand­endur frammi, fyrir framan sjálfsal­ann en þá fer neyð­ar­bjallan af stað og hama­gang­ur­inn er mik­ill þegar starfs­fólkið hleypur af stað. Í fjóra mán­uði hefur blaða­maður verið á vett­vangi bráða­mót­tök­unnar á Land­spít­al­anum og fylgst með starf­inu þar.

Klukkan er 3:45 um nótt. „Halda áfram að hnoða – hlaða,“ kallar Jón Ragnar bráða­læknir. Frá hjarta­stuð­tæk­inu berst sker­andi hljóð sem hækkar. „Allir frá. Stuða,“ kallar Jón Ragnar og allir við­staddir halda að sér höndum á meðan raf­straum­ur­inn fer í gegnum lík­ama sjúk­lings­ins. „Ok, halda áfram að hnoða – tvær mín­útur,“ segir Jón Ragnar og Anna hjúkr­un­ar­fræð­ingur heldur hjarta­hnoði áfram. „Er ein­hver með tím­ann?“ spyr Jón Ragnar og Ívar hjúkr­un­ar­fræð­ingur fylgist með klukk­unni. „Við erum búin að hnoða í tvær mín­útur og það eru þrjá­tíu sek­úndur síðan við stuð­uðum síð­ast,“ segir Ívar. Anna hjúkr­un­ar­fræð­ingur er far­inn að þreyt­ast og spyr hvort ein­hver sé til­bú­inn að taka við hnoði. „Já,“ kallar ein­hver á neyð­ar­stæð­inu en á þessum tíma­punkti eru 13 tarfs­menn bráða­mót­tök­unnar við end­ur­lífg­un­ina. „Hann er að vakna. Tökum tékk á honum,“ segir Jón Ragnar og stígur niður af pall­inum og fer til sjúk­lings­ins. „Hann er með púls,“ kallar hann yfir …

Kjósa
69
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Fólkið sem vinnur á deildinni er hetjur. Ég þekki hvað það er mikil pressa að bæta við á deildunum fyrir ofan, vinn á þeim sumum sem sjúkraliði. Vantar meira pláss, fleiri hjúkrunarehimili, betri lausnir. Já það þyrfti líka að hefja vegferð í að kenna fólki hollari lífsstíl svo það fari ekki svona illa löngu fyrir aldur fram og lendi í svona stöðu allt of snemma. Ég get vottað um þetta orðin nærri 75 og enn að taka vaktir, vegna þess að ég elska starfið mitt. Megi Guð blessa Landspítlann og gefa ráðamönnum vit og kjark til að bæta úr.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi

Vont að senda varnarlausar konur aftur í sömu stöðu
Á vettvangi

Vont að senda varn­ar­lausar konur aftur í sömu stöðu

Jóhanna Erla Guð­jóns­dóttir er félags­ráð­gjafi á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Þar tekst hún á við myrk­ustu hliðar mann­lífs­ins, en seg­ist helst reið­ast yfir því að rekast á sömu vegg­ina aftur og aftur, þegar úrræðin eru engin. Til dæmis varð­andi konur sem búa á göt­unni, verða fyrir ofbeldi og eiga sér hvergi skjól. Þrátt fyrir áskor­anir segir hún starfið það besta í heimi.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár