Kappræður Heimildarinnar og lýðræðishátíð

Kapp­ræður Heim­ild­ar­innar fara fram í Tjarn­ar­bíó þriðju­dag­inn 26. nóv­em­ber. Miðasala hefst í dag. Fyrir kapp­ræð­urnar verður lýð­ræð­is­há­tíð slegið upp í fremri sal.

Kappræður Heimildarinnar og lýðræðishátíð
Ragn­hildur Þrast­ar­dóttir og Aðal­steinn Kjart­ans­son verða spyrlar á kapp­ræðum Heim­ild­ar­innar sem fara fram á þriðju­dag í Tjarn­ar­bíói. Mynd: Golli

Kapp­ræður Heim­ild­ar­innar fara fram þriðju­dag­inn 26. nóv­em­ber og hefj­ast klukkan 20. Fyrir svörum sitja leið­togar flokka sem eru í fram­boði til Alþingis og mæl­ast með 2,5 pró­sent fylgi eða meira í kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar. Spyrlar eru Aðal­steinn Kjart­ans­son og Ragn­hildur Þrast­ar­dóttir. 

Áhorf­endur verða í sal. Miðasala á kapp­ræð­urnar fer fram á TIX og hefst klukkan 10 í dag, fimmtu­dag. Bein útsend­ing verður frá kapp­ræð­unum á vef Heim­ild­ar­innar.

Þá verður slegið upp lýð­ræð­is­há­tíð sem fer fram í fremri sal Tjarn­ar­bíó og hefst klukkan 18. Aðgangur að lýð­ræð­is­há­tíð­inni er ókeypis og er hún öllum opin. 

Húsið opnar klukkan 18 og verður opið fram á kvöld. Framboð til Alþingis sem mæl­ast með 2,5 pró­senta fylgi eða meira í kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar munu þar fá úthlut­uðu borði og geta sett upp varn­ing, kynn­ing­ar­efni og verið með full­trúa á staðnum sem ræða við gesti og gang­andi. 

Formenn flokka sem bjóða fram til Alþingis og mæl­ast með 2,5 pró­senta fylgi eða meira hafa allir fengið boð um við­tal í Heim­ild­inni til að kynna sín áherslu­mál, og þegar hafa fjögur þeirra verið birt. Sami rammi er um öll við­tölin og dregið var um dag­setn­ingar. For­manna­við­tölin birt­ast bæði í blöðum og á vef­síðu Heim­ild­ar­innar og hægt er að nálg­ast hljóð­út­gáfu af við­töl­unum. 

Í blað­inu hefur einnig fjallað um helstu áherslu­málin í kom­andi kosn­ingum undir liðnum: Um hvað er kosið? Þegar hefur verið fjallað um hús­næð­is­mál, utan­rík­is­mál, geð­heil­brigði og verð­hækk­anir á mat­ar­körf­unni. 

Pressa, þjóð­mála­þáttur Heim­ild­ar­innar, er í beinni útsend­ingu á föstu­dögum klukkan tólf á hádegi og er aðgengi­legur áskrif­endum á vefnum. Alþing­is­menn og fram­bjóð­endur sitja fyrir svörum í Pressu fram að kosn­ingum.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár