Tók fimm daga að skera úr um hæfi en fimm mánuði að svara fyrir skipunina

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­formaður Pírata sem situr í stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd, fór hörðum orðum um utan­ríkis­ráðuneytið fyrir að hafa ekki enn orðið við beiðni nefndarinnar um að upplýsa um skipun sendi­herra Banda­ríkjanna. Fimm mánuðir eru síðan beiðnin var móttekin en samkvæmt lögum ber stjórn­völdum að svara beiðnum nefndarinnar eigi síðar en viku eftir að hún hefur verið móttekin.

Gagnrýnir utanríkisráðuneytið
Gagn­rýnir utan­rík­is­ráðu­neytið Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir vakti athygli á því að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd biði enn eftir upp­lýs­ingum frá ráðu­neyt­inu um skipan sendi­herra Íslands í Banda­ríkj­unum. Fimm mán­uðir eru síðan beiðnin var mót­tekin en sam­kvæmt lögum ber stjórn­völdum að svara slíkum erindum innan viku frá því þær ber­ast.

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­formaður Pírata, fór hörðum orðum um utan­ríkis­ráðuneytið á þingfundi Alþingis í dag. Í ræðu sinni á vakti Þórhildur Sunna athygli á því að utan­ríkis­ráðuneytið hafi enn ekki orðið við beiðni sem stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd Alþingis sendi ráðuneytinu í júní á þessu ári. Beiðnin snýr að skipun Svanhildar Hólm Vals­dóttur til embættis sendi­herra Íslands í Banda­ríkjunum. 

„Hvernig samræmist það lögum um utan­ríkis­þjónustu Íslands að skipa sendi­herra í Banda­ríkjunum sem hefur enga reynslu af utan­ríkismálum? Hvers vegna er starfs­ferilskrá sendi­herra Íslands í Banda­ríkjunum trúnaðarmál? Þetta eru mikil­vægar spurningar sem háttvirt stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd sendi á utan­ríkis­ráðuneytið þann 12. júní síðastliðinn í kjölfar þess að nefndin stofnaði til frumkvæðis­athugunar á skipan sendi­herra í Banda­ríkjunum og Ítalíu. Þetta er fyrir fimm mánuðum síðan,“ sagði Þórhildur Sunna og bætti við að samkvæmt lögum beri stjórn­völdum að svara slíkum beiðnum eigi síðar en sjö dögum eftir að þær hafa verið mótteknar.

…
Kjósa
75
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Siðferði þessa litla eyríkis og sannsögli er ekki allveg í samræmi við uppskrift þeirrar hjátrúar sem Ríkið verndar með lögum . Halelúja.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár