Nafn mannsins sem lést í Tungufljóti

„Það er mér afar þung­bært að þurfa að til­kynna um að góður félagi okkar, Sigurður Krist­ó­fer McQuillan Ósk­ars­son, for­maður björg­un­ar­sveit­ar­innar Kyndils í Mos­fellsbæ, lést í slysi sem varð á æfingu í straum­vatns­björgun í og við Tungufljót síð­degis á sunnu­dag,“ segir í til­kynn­ingu frá for­manni Slysa­varn­ar­fé­lags­ins Lands­bjargar.

Nafn mannsins sem lést í Tungufljóti

Maðurinn sem lést í slysi á björg­un­ar­sveita­ræf­ingu á sunnu­dag heitir Sigurður Krist­ó­fer McQuillan Ósk­ars­son og var for­maður björg­un­ar­sveit­ar­innar Kyndils í Mos­fellsbæ. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá Borg­hildi Fjólu Krist­jáns­dóttur, for­manni Slysa­varn­ar­fé­lags­ins Lands­bjargar. 

Hún segir að hugur sinn og allra félaga í Slysvarn­ar­fé­lag­inu sé með aðstand­endum hans og félögum.

Lög­reglan á Suð­ur­landi greindi frá því í gær að banaslys hafi orðið þegar karl­maður á fer­tugs­aldri hafi fallið í Tungufljót nálægt Geysi. Straum­vatns­björg­un­ar­menn náðu mann­inum upp úr ánni og voru strax hafnar end­ur­lífg­un­ar­til­raunir á honum, sem báru ekki árangur. Aðstæður á vett­vangi voru krefj­andi, rign­ing og mikið vatns­magn í ánni.

Til­kynn­ing frá Borg­hildi Fjólu í heild sinni:

„Það er mér afar þung­bært að þurfa að til­kynna um að góður félagi okkar,, lést í slysi sem varð á æfingu í straum­vatns­björgun í og við Tungufljót síð­degis á sunnu­dag.

Hugur minn og allra félaga í Slysa­varna­fé­lag­inu Lands­björg er með aðstand­endum hans og félögum og okkar verk­efni núna er fyrst og fremst að taka utan um þann hóp með allri þeirri sál­rænu aðstoð sem við getum veitt, og þau vilja þiggja.

Rannsókn slyss­ins er í höndum lög­regl­unnar á Suð­ur­landi og félagið mun að sjálf­sögðu veita alla þá aðstoð við hana sem beðið er um.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár