Kennarar við MR samþykkja verkfall

Verk­falls­að­gerðir hafa verið sam­þykktar í tíu skólum sem hefj­ast, ef ekki verður sami áður, í lok mán­aðar og byrjun næsta mán­aðar

Kennarar við MR samþykkja verkfall

Yfir­gnæf­andi meiri­hluti kenn­ara í Mennta­skól­anum í Reykja­vík hefur sam­þykkt að boða verk­fall 11. nóv­em­ber næst­kom­andi, hafi samn­ingar ekki náðst. MR er annar fram­halds­skól­inn sem boðar til verk­falls en Fjöl­brauta­skóli Suð­ur­lands sam­þykkti verk­falls­boðun í síð­ustu viku. Atkvæða­greiðsla hófst í MR klukkan 11 í fyrra­dag og lauk klukkan 11 í dag. Kjörsókn var 93 pró­sent, já sagði 81 pró­sent. 

Þar með hafa félags­menn Kenn­ara­sam­bands­ins í tíu skólum sam­þykkt verk­falls­að­gerðir í lok mán­aðar og byrjun næsta mán­aðar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Kenn­ara­sam­bandi Íslands. 

Kjara­deilan er á borði rík­is­sátta­semj­ara. 

Boðuð eru tíma­bundin verk­föll í tveimur fram­halds­skólum, í FSu, frá 29. októ­ber til 20. des­em­ber og í MR, frá 11. nóv­em­ber til 20. des­em­ber. 

Boðað er tíma­bundið verk­fall í Tón­list­ar­skóla Ísa­fjarðar, frá 29. októ­ber til 20. des­em­ber.

Boðuð eru tíma­bundin verk­föll í þremur grunn­skólum, Áslands­skóla, Lauga­lækj­ar­skóla og Lund­ar­skóla, frá 29. októ­ber til 22. nóv­em­ber. 

Boðuð eru ótíma­bundin verk­föll í fjórum leik­skólum frá 29. októ­ber. Þetta eru Leik­skóli Sel­tjarn­ar­ness, Holt í Reykja­nesbæ, Drafn­ar­steinn í Reykja­vík og Ársalir á Sauð­ár­króki. 

Öll aðild­ar­fé­lög Kenn­ara­sam­bands­ins eru án kjara­samn­ings; fram­halds­skóla­fé­lögin tvö, FF og FS, hafa verið án samn­ings síðan 31. mars síð­ast­lið­inn. Grunn­skóla­fé­lögin tvö, FG og SÍ, leik­skóla­fé­lögin tvö, FL og FSL, og Félag kenn­ara og stjórn­enda í tón­list­ar­skólum hafa verið án samn­ings síðan 31. maí síð­ast­lið­inn. 

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár