„Stórfurðulegt að lögreglan fari fram með þessum hætti“

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, fagnar því að ára­langri rann­sókn Lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra á sex fjöl­miðla­mönnum hafi loks­ins verið felld niður. Hún furðar sig á yfir­lýs­ingu sem lög­regla birti á sam­fé­lags­miðlum og segir hana ekki til þess fallna að auka traust almenn­ings á lög­reglu og vinnu­brögðum hennar í mál­inu.

„Stórfurðulegt að lögreglan fari fram með þessum hætti“
Furðar sig á vinnu­brögðum lög­reglu Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður BÍ, fagnar því að lög­regla hafi loks ákveðið að fella niður rann­sókn sína á blaðmönn­unum sex. Hún harmar að rann­sóknin hafi tekið svo langan tíma og segir eft­irá­skýr­ingar lög­reglu vera eins­dæmi í sög­unni. Mynd: Anton Brink/Blaðamannafélag Íslands

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, segir að það sé mikið gleði­efni að Lög­reglan á Norð­ur­landi eystra hafi tekið þá ákvörðun að hætta við rann­sókn í máli er varðar meinta byrlun, afritun á upp­lýs­ingum af síma ein­stak­lings og dreif­ingu á kyn­ferð­is­legu myndefni. 

Sex blaða­menn höfðu rétt­ar­stöðu sak­born­ings ásamt einni konu sem starfar ekki í fjöl­miðlum. Rann­sóknin hefur staðið yfir síðan í maí 2021 þegar málið var til­kynnt til lög­reglu. 

„Kallaðir til yfir­heyrslu og fengið stöðu sak­born­ings fyrir það eitt að vinna vinn­una sína“
Sigríður Dögg, for­maður BÍ, um blaða­menn­ina sem voru til rann­sóknar

„Að okkar áliti kom aldrei neitt annað til greina en þessi nið­ur­staða í þessu máli. Það var fárán­leg ákvörðun hjá lög­regl­unni að hefja rann­sókn eins og við höfum margoft bent á og allir fyrrum sak­born­ingar líka. Að hafa verið kall­aðir til yfi­heyrslu og fengið stöðu sak­born­ings fyrir það eitt að vinna vinn­una sína,“ segir Sigríður. 

„Þau gerðu ekk­ert annað heldur en að taka á móti gögnum, skoða þau og eftir atvikum vinna upp úr þeim fréttir. Fréttir sem eng­inn hefur gert athuga­semdir við og Samherji hefur í fram­hald­inu beðist afsök­unar á fram­ferði sínu sem var til umfjöll­unar í þessum fréttum.“

Íþyngjandi fyrir stéttina í heild 

Hún bætir við að málið hafi ekki ein­ungis verið íþyngj­andi fyrir blaða­menn­ina sem voru undir rann­sókn heldur hafi fram­ganga lög­reglu veið alvar­legt mál sem varði alla blaða­menn í land­inu.

„Ég tel að lög­reglan og íslenska ríkið þurfi að skoða hvað þarna gerð­ist“
Sigríður Dögg, for­maður BÍ

„Það að blaða­mönnum skuli vera haldið í þess­ari stöðu í allan þennan tíma án til­efnis finnst mér bara mjög alvar­legt. Ég tel að lög­reglan og íslenska ríkið þurfi að skoða hvað þarna gerð­ist og hvernig stendur á því að þetta fór svona.“ 

Hún segir að fyrir henni virð­ist ann­að­hvort svo sem að lög­regla beri ekki virð­ingu fyrir blaða­mönnum eða hafi ákveðið að túlka lögin sem kveða á um rétt­indi blaða­manna með sínum eigin hætti. Þvert á það sem dóm­stólar hér og víðar hafa túlkað.  

Yfirlýsing lögreglu einsdæmi 

Þá víkur Sigríður sér að langri og ítar­legri yfir­lýs­ingu sem Lög­reglan á Norð­ur­landi eystra birti á Facebook-síðu sinni skömmu eftir að sak­born­ingum hafði verið til­kynnt um að rann­sóknin hefði verið felld niður. 

„Við erum búin að láta lög­mann okkar skoða þetta og hann bara stað­festir það sem við álitum og teljum af okkar reynslu að þetta sé í raun­inni bara eins­dæmi. Að lög­reglan með þessum hætti sé að lýsa afstöðu sinni í mál­inu. Þar segja þeir að sak­born­ingar gætu hafa sýnt af sér atferli sem flokk­ast getur undir brot á fram­an­greindum ákvæðum.“

Þá veltir Sigríður fyrir sér hvað lög­reglu gangi til með að birta yfir­lýs­ing­una og hún kann­ist ekki við að lög­regla hafi tjáð sig með við­líka hætti um afstöðu sína til fyrr­ver­andi sak­born­inga eftir að málið hefur verið fellt niður.

„Það er bara stórfurðu­legt að lög­reglan fari fram með þessum hætti.  En mér finnst þetta bara í takt við vinnu­brögð lög­reglu í þessu öllu og alls ekki til þess að auka traust almenn­ings á lög­reglu og rann­sókn hennar á þessu máli.“

Mikilvægt að koma í veg fyrir að svona gerist aftur

Sigríður bætir við að Blaða­manna­fé­lagið muni funda með blaða­mönn­unum sem voru undir rann­sókn og ákveða næstu skref í mál­inu. Hún segir að félagið muni standa með blaða­mönn­unum og ákvörð­unum þeirra í mál­inu. 

„Mér finnst mik­il­vægt að við skoðum það vel hvort ekki sé rétt að leita leiða til þess að koma í veg fyrir að svona ger­ist aftur. Af því svona á ekki að ger­ast í rétt­ar­ríki á borð við Ísland.“

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár