Yfirlýsing Netanayahu: Gerum allt sem til þarf

Spennustigið hækkar dag frá degi við landa­mæri Ísraels og Líbanon. Einn helsti leið­togi Hezbollah féll fyrir helgi í árás Ísraela en hann hafði áður særst þegar sím­boði sprakk. For­sæt­is­ráð­herra Ísraels gaf út harð­orða­yf­ir­lýs­ingu í dag sem birt var á sam­fé­lags­miðl­inum X.

Yfirlýsing Netanayahu: Gerum allt sem til þarf
Frá Beirút þar sem loft­árásir Ísraela áttu sér stað í gær. Árásum fer fjölg­andi dag frá degi við landa­mæri Ísraels og Líbanon þar sem Ísra­els­her og Hezbollah takast á. Spennan á svæð­inu jóst til muna fyrir helgi þegar þús­undir sím­boða í eigu liðs­manna Hezbollah sprungu. Mynd: AFP

Loft­árásir Ísra­els­hers á yfir­ráða­svæði Hezbollah í Líbanon hafa haldið áfram í dag en ríf­lega hund­rað eld­flaugum var áður skotið í átt að íbúa­byggð í Norður-Ísrael. 

Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísrael, segir að Ísraelar muni grípa til hverra þeirra aðgerða sem nauð­syn­legar þykja til að tryggja öryggi borg­ara sinna og að þeir sem búa við landa­mæri Ísrael og Líbanon, í Norður-Ísrael, geti snúið aftur heim til sín. 

Net­anyahu gaf fyrr í dag út yfir­lýs­ingu í mynd­bandi á sam­fé­lags­miðl­inum X þar sem hann sagði að Hezbollah, stutt af yfir­völdum í Íran, hafi linnu­laust ráð­ist á Ísrael síðan 6. októ­ber, að engin þjóð geti sætt sig við slíkt og það geri Ísraelar sann­ar­lega ekki.

Liðsmenn Hezbollah báru í gær til grafar einn æðasta liðs­mann sinn sem var drep­inn í árásum Ísraela, Ibrahim Aqil. Hann var sér­stakt skot­mark Ísraela þegar loft­árásir voru gerðar á fjöl­býl­is­hús í úthverfi Beirút á föstu­dag. Aqil hafði lengi verið eft­ir­lýstur í Banda­ríkj­unum vegna aðkomu að árás á sendi­ráð Banda­ríkj­anna í Beirút árið 1983, sem og sprengju­árás á banda­ríska land­göngu­liða í Beirút sama ár. 

Mikil við­höfn var við útför Ibrahim Aqil, leið­toga Hezbollah.

Spennan á landa­mær­unum eykst stöðugt en það var á mið­viku­dag sem fregnir bár­ust af því að hund­ruðir sím­boða og tal­stöðva liðs­manna Hezbollah hafi sprungið með þeim afleið­ingum að minnst níu lét­ust og á þriðja þús­und særð­ust. Hezbollah segir Ísra­els­her hafa staðið á bak við árás­ina en því hefur stað­fast­lega verið neitað.

Mynd af tal­stöð sem sprakk í Líbanon. Ísraelar sverja af sér árás­ina.

Aqil særð­ist þegar sím­boð­arnir sprungu og hafði verið útskrif­aður af sjúkra­húsi þegar hann var drep­inn af Ísraelum á föstu­dag. Meðlimir Hezbollah hafa lýst honum sem einum helsta leið­toga heilags stríðs. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár