Harris lagði gildrur og Trump gekk í þær

Í kapp­ræð­unum milli banda­rísku for­seta­fram­bjóð­end­anna í gær­kvöldi tókst Kamölu Harris, fram­bjóð­anda Demókrata, að slá Repúblikan­ann Donald Trump út af lag­inu, oft með því að gera grín að honum. Frétta­mið­ill­inn CNN skrifar að Harris hafi ögrað Trump næstum allar kapp­ræð­urnar og að Trump hafi tekið beit­unni í hvert skipti

Harris lagði gildrur og Trump gekk í þær
Þrátt fyrir að eftir kapp­ræð­urnar hafi Trump strax lýst því yfir að hann hafi staðið sig frá­bær­lega virð­ist álit flestra vera að Harris hafi náð að snúa kapp­ræð­unum sér í vil. Mynd: AFP

Í gær­kvöldi fóru fram fyrstu, og mögu­lega einu, kapp­ræð­urnar milli banda­rísku for­seta­fram­bjóð­end­anna fram. Þar tók­ust á Kamala Harris, fram­bjóð­andi Demókrata og vara­for­seti lands­ins, og Donald Trump, fram­bjóð­andi Repúblik­ana og fyrr­ver­andi for­seti.

Kapp­ræðn­anna, sem fóru fram á frétta­stöð­inni ABC, hefur verið beðið með mik­illi eft­ir­vænt­ingu. Þetta var í fyrsta skiptið sem Harris og Trump hitt­ust til augliti til auglitis.

Stuttu eftir að útsend­ingu lauk kall­aði fram­boð Harris strax eftir öðrum kapp­ræðum milli keppi­naut­anna. Trump hefur sagst ætla að hugsa málið. Ef til vill er það lýsandi fyrir það hvernig fram­bjóð­end­unum tveimur fannst þau standa sig hvort um sig.

Þrátt fyrir að eftir kapp­ræð­urnar hafi Trump strax lýst því yfir að hann hafi staðið sig frá­bær­lega virð­ist álit flestra vera að Harris hafi náð að snúa kapp­ræð­unum sér í vil. En hvernig fór hún að því að mála Trump út í horn?

Sagði fólki leiðast á kosningafundum Trumps

Blaða­menn hjá New York Times halda því fram að her­kænska Harris í kapp­ræðum gær­kvölds­ins hafi falist í mjög árang­urs­ríkri árás hennar á sjálfs­á­lit hans. Í stað þess að hjóla í saka­skrá Trumps, stefnu­mál eða eld­fim ummæli ákvað hún að gera grín að honum. 

Hún vakti til máls að fólki leidd­ist á illa sóttum kosn­inga­fundum hans. Hún sagði að þjóð­ar­leið­togar köll­uðu hann skammar­legan. Þá hélt hún því fram að við­skipta­veldi Trumps væri föður hans að þakka. Trump brást ókvæða við eyddi stórum hluta kapp­ræðn­anna í vörn.

Í kapp­ræð­unum milli Biden og Trumps í júní hafði fyrr­ver­andi for­set­inn greini­lega yfir­hönd­ina yfir eft­ir­manni sínum. Biden var hrumur og gleymdi sér auð­veld­lega. Í gær var það þó Trump sem var eldri og þreytt­ari aðil­inn á svið­inu.

Frétta­mið­ill­inn CNN skrifar að Harris hafi ögrað Trump næstum allar kapp­ræð­urnar og að Trump hafi tekið beit­unni í hvert skipti. Næstum hvert til­svar Harris var skreytt með ummælum sem voru til þess gerð að reita Trump til reiði og koma honum úr jafn­vægi. Hún sagði meðal ann­ars að aðrir þjóð­ar­leið­togar væru að hlæja að honum og að Pútín Rúss­lands­for­seti myndi borða hann í hádeg­is­mat.

Harris hélt því einnig fram að 81 milljón Banda­ríkja­manna hefði „rekið hann.“ En það er fjöld­inn sem kaus Joe Biden í for­seta­kosn­ing­unum 2020. Hún minnt­ist á Rebúblik­ana og fyrrum sam­starfs­menn Trumps sem vildu að hún yrði næsti for­seti, ekki hann. 

Þá hvatti hún fólk til að fara á kosn­inga­fundi Trumps til að sjá að þeir væru svo lang­dregnir og leið­in­legir að fólk færi snemma. Þetta lagð­ist gríð­ar­lega illa í Trump sem fór, blind­aður af eigin hégóma, að þver­taka fyrir að fólk yfir­gæfi kosn­inga­fundi hans snemma, í stað þess að svara spurn­ingu þátt­ar­stjórn­enda um útlend­inga­mál.

Á þennan hátt tókst Harris að fá Trump til að hætta að tala um mál­efnin sem til umræðu voru. Í stað­inn eyddi for­set­inn fyrr­ver­andi tíma í langa útúr­dúra um eitt­hvað sem skipti litlu sem engu máli og lét hann líta illa út. Hann fór til dæmis mik­inn um það að inn­flytj­endur frá Haítí hefðu gerst upp­vísir að því að borða gælu­dýr í Spring­fi­eld í Ohio-fylki. Þátt­ar­stjórn­ene­dur leið­réttu hann og sögðu að ekk­ert benti til þess að þetta hefði átt sér stað.

Annað yfirvegað, hitt ekki

Trump varði sig og eyddi tíma í að útskýra fyrri ummæli og aðferðir sínar í stað þess að ræða mál­efnin sem fyrir hendi voru. Yfir­veg­unin fauk lönd og leið. Hann hækk­aði róm­inn og hristi haus­inn. 

Harris á hinn bóg­inn hélt sér yfir­veg­aðri. Meðan Trump tal­aði mátti sjá hana glotta eða hlæja að honum. Hún lyfti auga­brún­unum til að miðla undrun sinni á sumum ummæl­unum. Svip­brigðin voru oft yfir­læt­is­full. Það var slökkt á míkró­fóni hennar á meðan Trump tal­aði, en það hefði ekki þurft að vera kveikt á honum. Harris tókst vel að koma skila­boðum fram án hans. Trump var langt frá því að vera eins léttur í lund þegar mótherji hans tal­aði og yggldi sig.

Samkvæmt gögnum frá New York Times eyddi Harris tals­vert lengri tíma í að sækja að and­stæð­ingi sínum. Trump tal­aði í 43 mín­útur, þar af fóru tæpar 13 í að ráð­ast á Harris. Hún tal­aði skemur, í tæpar 38 mín­útur, en eyddi 17 og hálfri mín­útu í árásir. Þessar tölur voru allt öðru­vísi þegar Trump rök­ræddi við Joe Biden í júní. Þá eyddi Biden langtum minni tíma í að sækja að Trump en öfugt.

Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár