Ríkið lagði beingreiðslur beint inn á KS

Þrátt fyrir að lög hafi í tæp þrjá­tíu ár kveðið skýrt á um að bein­greiðslur til bænda skuli ein­ungis greiddar bændum var það fyrst fyrir ári sem ríkið hætti að leggja þær inn á þriðja aðila. Kaup­fé­lag Skag­firð­inga fékk í mörgum til­fellum slíkar greiðslur lagðar inn á sinn reikn­ing. KS lán­aði bónda á fimmta tug millj­óna króna fyrir kvóta­kaupum í fyrra, vaxta­laust og óverð­tryggt.

KS
KS Margir bændur innan starfs­svæðis KS eiga að stærstum eða öllum hluta til við­skipti sín við Kaup­fé­lagið.

Svo­kall­aðar bein­greiðslur eða stuðn­ings­greiðslur rík­is­ins við land­búnað eru hugs­aðar sem greiðslur til bænda fyrir að halda og ala skepnur í þeim til­gangi að nýta afurðir þeirra. Greiðsl­urnar eru þannig í beinu hlut­falli við umsvif hvers bónda, fjölda fjár og gripa eða fram­leiddra mjólk­ur­lítra auk umfangs rækt­an­legs lands.

Greiðslur eins og þessar skipta millj­örðum króna ár hvert og tíðkast víð­ast hvar sem liður í stuðn­ingi og vernd inn­lends land­bún­aðar og mat­væla­ör­yggis. Sem dæmi voru heild­ar­stuðn­ings­greiðslur vegna sauð­fjár­ræktar í fyrra 6,7 millj­arðar króna. Í naut­gripa­rækt (kjöt og mjólk) námu greiðsl­urnar níu millj­örðum og rúmur millj­arður króna rann til garð­yrkju­fram­leiðslu.

Lög um fyr­ir­komu­lag þess­ara greiðslna hafa frá því á miðjum tíunda ára­tugnum kveðið á um að stuðn­ings­greiðslur skuli greiða mán­að­ar­lega inn á reikn­ing fram­leið­and­ans, bónd­ans, rétt eins og er með laun launa­fólks til að mynda.

Heim­ildin óskaði eftir upp­lýs­ingum um það hjá mat­væla­ráðu­neyt­inu í sumar hvort borið hefði á því …

Kjósa
70
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Einokun og fákeppni hefur reynst einstaklega vel í sjávarútvegi, þar sem 8-fjölskyldur hafa yfirráð á 70% úthlutaðra aflaheimilda/nýtingarétts, að sjálfsögðu ætlar forstjórinn á skagfirska-efnahagssvæðinu að ná undir KS öllum kvótum í kjöti og mjólk á norðurlandi, það gengur sérlega vel að búa til einokun og fákeppni í landbúnaði, þökk sé matvælaráðherrum xV-flokksinns. Ps. sami forstjóri krafðist þess að fá allan úthlutaðann byggðakvóta skagfirska efnahagssvæðisins í sjávarútvegi = 140tonn svo það sé sagt.
    6
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Íslensk stjórnsýsla er í molum
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár