Ellý Katrín er látin: „Kveðjustundin var jafn falleg og allt hennar líf“

„Hún Ellý mín hefur kvatt þennan heim,“ skrifar Magnús Karl Magn­ús­son í minn­ingu eig­in­konu sinnar heit­innar, Ellýjar Katrínar Guð­munds­dóttur. Hún veitti mörgum hug­rekki og inn­blástur þegar hún ræddi opin­skátt um reynslu sína af því að grein­ast með Alzheimer aðeins 51s árs gömul.

Ellý Katrín er látin: „Kveðjustundin var jafn falleg og allt hennar líf“
Magnús og Ellý heitin ræddu opin­skátt um Alzheimer eftir að hún fékk grein­ing­una og veitti það öðrum hug­rekki og inn­blástur. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ellý Katrín Guð­munds­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­rit­ari Reykja­vík­ur­borgar, lést á fimmtu­dag, 59 ára að aldri.  Eig­in­maður hennar, Magnús Karl Magn­ús­son, minn­ist hennar hjá hjart­næman hátt þar sem hann greinir frá and­láti hennar á Facebook:

„Hún Ellý mín hefur kvatt þennan heim. Hún var ein­stök. Hennar fal­legu eig­in­leikar lýstu í gegnum bæði skin og skúri í líf­inu. Fyrir átta árum mætti óvæntur gestur inn í líf okkar, erf­iður sjúk­dómur. Ellý tók þeirri heim­sókn af ótrú­legu æðru­leysi og reisn. Við fjöl­skyldan höfum lært svo margt af Ellý okkar, enda var hún sönn fyr­ir­mynd í öllu. Mín mesta huggun er að horfa á hæfi­leika hennar, per­sónu og útlit lifa áfram í börn­unum. Þau eru ein­stök og hafa stutt mig í gegnum allt eins og fjöl­margir ætt­ingjar og vinir. “

Magnús segir þar enn­fremur: „Kveðju­stundin var jafn fal­leg og allt hennar líf. Allir hennar nán­ustu kvöddu hana, þar á meðal Pétur bróðir hennar sem kom í gær frá Banda­ríkj­unum og litli Almar Elí, tveggja vikna ömmu- og afa­barnið okkar sem fékk að hvíla í fangi hennar.“

Ellý fædd­ist í Reykja­vík 15. sept­em­ber árið 1964. Hún var lög­fræð­ingur að mennt, með meist­ara­próf í umhverfis- og alþjóða­rétti frá Uni­versity of Wisconsin. Ellý gegndi ýmsum stjórn­un­ar­stöðum hjá Reykja­vík­ur­borg áður en hún var ráðin borg­ar­rit­ari árið 2011. 

Gaf öðrum hugrekki með sögu sinni

Mörgum er sú stund minn­is­stæð þegar Ellý Katrín steig í pontu á fræðslu­fundi Íslenskrar erfða­grein­ingar í byrjun árs 2017 og lýsti þar reynslu sinni af því að grein­ast með Alzheimer. Sér­fræð­ingar í mál­efnum fólks með heila­bilun segja að for­dæmi Ellýjar hafi verið afar mik­il­vægt, því það hafi gefið mörgum öðrum hug­rekki til að hætta felu­leiknum og við­ur­kenna að þeir hafi verið greindir með heila­bilun. 

„Ellý tal­aði um Alzheimer og hún hélt áfram að lifa með sjúk­dóm­inn með gleði í hjarta“

Í lok færsl­unnar um Ellý skrifar Magnús: „Ellý tal­aði um Alzheimer og hún hélt áfram að lifa með sjúk­dóm­inn með gleði í hjarta. Við megum aldrei gleyma að þeir sem fá slíkt í fangið eiga skilið stuðn­ing og ást okkar allra. Það skynj­uðum við fjöl­skyldan frá fjöld­skyldu og vinum en einnig frá fjöl­mörgu sam­ferða­fólki sem við þekkjum ekki. Fyrir það þakka ég ykkur öllum frá dýpstu hjartarótum.“

Lýsti aðdraganda þess að hún greindist

Ellý og Magnús komu saman í við­tal hjá Stund­inni, ann­ars for­vera Heim­ild­ar­innar, árið 2020. Þar lýsti hún aðdrag­anda þess að hún greind­ist með Alzheimer. „Ég var orðin svo þreytt eitt­hvað og var ekki nógu ham­ingju­söm. Það var eitt­hvað sem lá á mér. Svo ákvað ég að fara í rann­sókn og þá kom í ljós að ég væri komin með Alzheimer. Ég hélt kannski að þetta væru tíða­hvörf eða kulnun. Ég var ein­hvern veg­inn ekki alveg með sjálfri mér.“

Magnús sagði í við­tal­inu að sjúk­dóm­ur­inn hefði læðst aftan að þeim en þegar grein­ing­ar­ferlið hófst var hann far­inn að gruna að nið­ur­staðan yrði alvar­leg. „Grein­ing­ar­ferlið hjá okkur var svo sem ekki langt miðað við hjá mörgum, eða svona hálft ár. Mig grun­aði strax að þetta væri eitt­hvað alvar­legt en hélt alltaf í von­ina. Nið­ur­staðan varð svo auð­vitað mikið sjokk en Ellý hefur sýnt þessu ótrú­legt æðru­leysi.”

„Mig grun­aði strax að þetta væri eitt­hvað alvar­legt en hélt alltaf í von­ina“

Hann sagði það hafa verið þeim báðum afar mik­il­vægt hversu opin hún var með veik­indi sín. „Það var svo mikil skömm sem fylgdi þessum sjúk­dómi, þannig að það var mjög gott að geta farið með það út,“ segir hún og hann bætir við: „Þegar hún tal­aði um þetta opin­ber­lega fann ég hvað þetta var mik­il­vægt fyrir marga. Fljót­lega fór fólk í svip­aðri stöðu að hafa sam­band við okkur. Umræðan um sjúk­dóm­inn var á þessum tíma ágæt­lega mikil en and­lit hans hafði alltaf verið mjög fjarri, aðstand­endur kannski komið fram en sjaldan sjúk­lingar. Ellý kom fram með and­lit hins venju­lega borg­ara.“

Kjósa
80
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Mennskan í sinni fallegustu mynd 😇 Kærleikur, tryggð og staðfesta❤ Ég dáist að Magnúsi um leið og ég votta honum mína dýpstu samúð❤
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár