Kolbeinn sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gegn stúlku

Hér­aðs­dómur Reykja­ness sýkn­aði í dag knatt­spyrnu­mann­inn Kolbein Sig­þórs­son af ákæru um kyn­ferð­is­brot gegn barni. Honum hafði verið gefið að sök að hafa strokið kyn­færi stúlku og nýtt sér yfir­burði sína yfir henni.

Landsliðsmaður
Lands­liðs­maður Kolbeinn Sig­þórs­son var hluti af gull­ald­ar­liði íslenska lands­liðs­ins í knatt­spyrnu. Mynd: EPA

Kolbeinn Sig­þórs­son, fyrr­ver­andi lands­liðs­maður og atvinnu­maður í knatt­spyrnu, var sýkn­aður af ákæru fyrir kyn­ferð­is­brot gegn barn­ungri stúlku í Hér­aðs­dómi Reykja­ness í dag. 

RÚV greinir frá en dóm­ur­inn verður birtur síð­degis í dag. 

Kolbeini hafði verið gefið að sök að hafa brotið kyn­ferð­is­lega gegn barn­ungri stúlku í sum­ar­húsi í júní­mán­uði árið 2022  og nýtt sér yfir­burði sína yfir henni. Kolbeinn neitar sök. 

Móðir stúlkunnar kærði Kolbein fyrir hönd hennar og krafð­ist þess að Kolbeinn greiddi stúlkunni miska­bætur upp á þrjár millj­ónir króna auk vaxta. 

Fréttin hefur verið upp­færð

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár