Páll Vilhjálmsson sýknaður í Landsrétti

Lands­réttur hefur sýknað Pál Vil­hjálms­son í meið­yrða­máli tveggja blaða­manna Heim­ild­ar­innar gegn honum. Páll sak­aði Arnar Þór Ing­ólfs­son og Þórð Snæ Júl­í­us­son um að hafa byrlað Páli Stein­gríms­syni skip­stjóra. Ummæli Páls höfðu verið dæmd ómerk í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í fyrra.

Páll Vilhjálmsson sýknaður í Landsrétti
Páll Vil­hjálms­son

Lands­réttur hefur snúið við úrskurði Hér­aðs­dóms Reykja­víkur sem dæmdi ummæli Páls Vil­hjálms­sonar, fram­halds­skóla­kenn­ara og blogg­ara, um Arnar Þór Ing­ólfs­son og Þórð Snæ Júl­í­us­son, blaða­menn Heim­ild­ar­innar, dauð og ómerk. Ummælin voru tvenn – bæði birt á blogg­síðu Páls á mbl.is.

Þórður Snær hyggst vísa úrskurð­inum til Hæsta­réttar. „Til þessa hafa ásak­anir um refsi­verða hátt­semi sem ekki eru sann­leik­anum sam­kvæmt talist vera æru­meið­ingar. Hér er því um stefnu­breyt­ingu að ræða hjá íslenskum dóm­stólum. Á það verður látið reyna í Hæsta­rétti,” segir hann.

Ásakaði blaðamennina um byrlun og þjófnað

Með ummælum sínum hélt Páll því fram að Arnar Þór, sem þá var blaða­maður á Kjarn­anum, og Þórður Snær, rit­stjóri sama mið­ils, hefðu átt þátt í því að hafa byrlað Páli Stein­gríms­syni skip­stjóra og stolið síma hans. Þá vildi hann meina að sak­sókn­ari væri í þann mund að fara að gefa út ákæru á hendur blaða­mönn­unum.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GEJ
    Gudmundur Eyjólfur Jóelsson skrifaði
    Ég spyr eru ekki sömu lög sem gilda í héraðsdómi og landsrétti?
    1
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Þetta þarf að fara í Hæstarétt.
    2
  • Kári Jónsson skrifaði
    Núna er Landsréttur Sjálfstæðisflokksinns búinn að sýkna sinn mann, ávallt svona hefur réttarríki Sjálfstæðisflokksinns bjargað sínu fólki í gegnum alla tíð það er sýknað og mál felld niður.
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár