Segir fólk úr herbúðum Katrínar hafa þrýst á sig að draga framboðið til baka

Baldur Þór­halls­son fékk þau skila­boð úr her­búðum Katrínar Jak­obs­dóttur nálægt páskum að draga fram­boð sitt til baka vegna vænt­an­legs fram­boðs hennar. Þetta kom fram í kapp­ræðum Heim­ild­ar­innar í kvöld.

Baldur á kappræðunum í kvöld.

Baldur Þór­halls­son for­seta­fram­bjóð­andi segir að á þeim tíma sem hann var við það að bjóða sig fram til for­seta hafi hann orðið fyrir þrýst­ingi að draga sig í hlé vegna mögu­legs fram­boðs Katrínar Jak­obs­dóttur, sem þá var enn for­sæt­is­ráð­herra.

Þetta sagði Baldur, sem ásamt fimm öðrum for­seta­fram­bjóð­endum, tók þátt í kapp­ræðum Heim­ild­ar­innar fyrr í kvöld.

„Nokkrum dögum áður en ég til­kynnti fram­boð [...] þá voru nokkuð skýr skila­boð úr her­búðum fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra hvort ég ætl­aði virki­lega að fara fram. Hvort ég vildi ekki láta þar við sitja því hún væri jafn­vel að fara að bjóða sig fram.

Og ef ég ætl­aði virk­lega að vera svo vit­laus að bjóða mig fram núna – þarna fyrir pásk­ana – þá hlyti ég að hafa vit á því að draga fram­boðið til baka því hún kæmi fram eftir páska,“ segir Baldur.

Hann segir að hann hafi þá átt að hafa vit á því að draga fram­boð sitt til baka. „Því hún kæmi fram eftir páska. Þannig var talað við okkur.“ Baldur seg­ist þó ekk­ert hafa velt fyrir sér hverjir mót­fram­bjóð­end­urnir væru. „Ég vil ein­fald­lega halda fram mínum málum, koma fram á mínum for­sendum.“

Ekki með vitund eða vilja Katrínar

Katrín Jak­obs­dóttir var þá beðin um við­brögð. Hún vildi gjarnan fá að vita hvaða sam­starfs­fólk hennar hafi átt að hafa haldið þessum boð­skap að Baldri. „Ég er að heyra þetta í fyrsta sinn hér,“ sagði hún. 

Baldur vildi hins vegar ekki svara hverjir hefðu rætt við hann úr her­búðum Katrínar.

Katrín tók þá fram að ekk­ert slíkt hefði verið gert með hennar vit­und eða vilja. „Ég ítreka það sem ég hef sagt. Þetta eru bara kosn­ingar, við búum í frjálsu landi, það má hver gefa kost á sér sem vill og ég hef ekki reynt að beita mér gegn neinum fram­bjóð­endum hér.“ 

Arnar hvattur til að draga sig í hlé

Arnar Þór Jónsson við­ur­kenndi þá að hafa fengið svipuð skila­boð og Baldur. „Það kom mér á óvart að inn­an­búð­ar­menn, að minnsta kosti sem ég man svona í svip­inn, í fremur rót­grónum stjórn­mála­flokkum höfðu sam­band við mig og hvöttu mig af vel­vilja og vin­semd í minn garð að draga mig í hlé því Katrín væri að koma fram.“

Hann sagð­ist hafa svarað því að litlu liðin ynnu oft stóru liðin. „Og það er skemmti­legt að vera í litla lið­inu að berj­ast við stóru liðin. Ég ætla ekki að gefa leik­inn þó ég lendi kannski 2-0 eftir 20 mín­útur.“ 

Jón Gnarr ítrekað hvattur til að hætta

Jón Gnarr sagði að strax eftir að Katrín til­kynnti um fram­boð sitt hefði hann verið spurður hvort hann vildi ekki draga sitt til baka. „Eins og ég sé eitt­hvað hræddur við Katrínu. Nei, bara ekki neitt.“ Hann seg­ist hafa fengið mjög vina­legar send­ingar þar sem hann er hvattur til að draga sig til baka. Hann dró þá upp sím­ann og las eina slíka við mik­inn fögnuð áhorf­enda í salnum.

„Sæll Jón, 

mig langar að skora á þig að draga fram­boð þitt til baka og lýsa yfir stuðn­ingi við Höllu Tóm­as­dóttur eða Baldri, á móti Katrínu. Þú ert með spil í hend­inni og getur með þessu tryggt að Katrín Jak­obs­dóttir verði ekki kosin for­seti Íslands. Þú myndir koma mjög vel út ef þú myndir taka þessa ákvörðun fyrir þjóð­ina.

Gangi þér vel. Bestu kveðjur.“

Jón sagð­ist þó aldrei hafa komið til greina að draga sig til baka. „Ég er að fara að vinna þessar kosn­ingar. Mér myndi aldrei detta í hug að draga til baka eitt­hvað svona. Ég er bara ekki þannig maður.“

Hér má horfa á kapp­ræð­urnar þar sem for­seta­fram­bjóð­end­urnir sex sem mæl­ast með mest fyrir sam­kvæmt kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar mæt­ast. Fyrstu 30 mín­útur streym­is­ins eru öllum aðgengi­legar en áskrif­endur geta horft á kapp­ræð­urnar í heild sinni:

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Brynja Kjartansdóttir skrifaði
    Þetta var frábær þáttur og takk fyrir það.
    3
  • FSK
    Fríða S. Kristinsdóttir skrifaði
    Þetta voru góðar umræður og fróðlegar.
    Takk fyrir ánægjulega kvöldstund Heimildin. 🌷
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár