Halla Tómasdóttir hefur bætt við sig því fylgi sem Halla Hrund hefur misst

Halla Tómasdóttir hefur bætt við sig því fylgi sem Halla Hrund hefur misst

Líkurnar á því að Katrín Jak­obs­dóttir setj­ist við borð­send­ann sem for­seti á rík­is­ráðs­fund­unum sem hún hefur setið síð­asta sex og hálfa árið sem for­sæt­is­ráð­herra hafa auk­ist og mæl­ast nú 49 pró­sent. Þrír fram­bjóð­endur er hnífjafnir í bar­átt­unni um að verða val­kost­ur­inn við hana á kjör­dag.

Líkur Katrínar Jak­obs­dóttur, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í for­seta­kosn­ing­unum sem fram fara eftir slétta viku halda áfram að aukast og mæl­ast nú 49 pró­sent. Þeir þrír fram­bjóð­endur sem raða sér í næstu sætin á eftir henni, og erum nán­ast með sama fylgið, eiga svo 15 pró­sent líkur á því hver að vinna kapp­hlaupið á Bessa­staði. Þau eru Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri, Baldur Þór­halls­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, og Halla Tóm­as­dóttir, for­stjóri B Team.

Líkur Jóns Gnarr, leik­ara og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra, halda áfram að drag­ast saman og mæl­ast nú ein­ungis fjögur pró­sent. Arnar Þór Jónsson, vara­þing­maður og fyrr­ver­andi dóm­ari, mælist svo með eins pró­sents sig­ur­líkur. 

Þetta er nið­ur­staða útreikn­inga Dr. Baldurs Héð­ins­sonar á líkum hvers fram­bjóð­anda á sigri. Hana fær Baldur út með því að miða við stöðu mála í kosn­inga­spá sem hann vinnur í sam­starfi við Heim­ild­ina og hversu mikið frá­vik hefur verið í fyrri skoð­ana­könn­unum tveimur vikum fyrir kosn­ingar.

Í kjöl­farið keyrði hann 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar til að reikna út hversu lík­legt er að hver og einn fram­bjóð­andi sigri. Þegar bæri dregur kosn­ingum minnkar frá­vikið sem fer inn í sýnd­ar­kosn­ing­arnar sem mun leiða til þess að þeir fram­bjóð­endur sem eru að mæl­ast með mest fylgi fá hærri líkur á sigri en aðrir minni. 

Forskot Katrinar eykst lítillega

Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni, sem vigtar allar kann­anir sem gerðar voru í síð­ustu viku, eykur Katrín for­skot sitt lít­il­lega milli vikna og mælist nú með 25,1 pró­sent fylgi. Það er í fyrsta sinn sem hún kemst yfir 25 pró­senta-múr­inn síðan í byrjun maí en Katrín hefur verið með fylgi á þessu róli nokkuð stöðugt síð­ustu vikur. 

Það fylgi sem er að flakka virð­ist helst vera að fara af Höllu Hrund og yfir til Höllu Tóm­as­dóttur. Sú fyrr­nefnda hefur tapað tæp­lega 13 pró­sentu­stigum frá því snemma í maí, og mælist nú með 18,2 pró­sent stuðn­ing, en sú síð­ar­nefnda, sem er nú með 17,5 pró­sent fylgi, hefur bætt við sig rúm­lega 13 pró­sentum á sama tíma. Fylgið flæðir því frá Höllu til Höllu.

Á milli þeirra er svo Baldur með 18,1 pró­sent og á eftir þessum þétta þriggja manna pakka sem situr nán­ast jafn í öðru til fjórða sæt­inu er Jón Gnarr með 11,2 pró­sent. Arnar Þór kemur þar á eftir með 6,2 pró­sent og hinir sex fram­bjóð­end­urnir eru svo sam­an­lagt með 3,7 pró­sent fylgi. 

Hver verður „frambjóðandi B“?

Mikil umræða er í sam­fé­lag­inu um hvort kjós­endur muni á end­anum kjósa taktískt, enda ljóst á könn­unum að þjóðin hefur líka mjög sterkar skoð­anir á þeim sem hún vill ekki sjá sem for­seta. Í könnun Maskínu sem gerð var í síð­ustu viku kom til að mynda fram að 42,4 pró­sent aðspurðra vildi síst að Katrín Jak­obs­dóttir yrði for­seta og kenn­ingin er þá sú að hluti þess mengis gæti flutt sig af sínum óskak­andídat yfir á þann sem er lík­leg­astur til að sigra Katrínu. Sem stendur blasir alls ekki við hver það er enda Höll­urnar tvær og Baldur hní­f­jöfn. Sé horft á fylg­is­hreyf­ingar síð­ustu daga og vikur getur það þó breyst hratt, enda loka­sprett­ur­inn eftir og þá verða þeir fram­bjóð­endur sem hafa verið að síga að taka meiri áhættu í nálgun sinni. Auk þess verða þrennar kapp­ræður í næstu viku: þær fyrstu heldur Heim­ildin í Tjarn­ar­bíói á þriðju­dag, þær næstu verða á Stöð 2 og Vísi á fimmtu­dag og þær síð­ustu á RÚV á föstu­dag, degi fyrir kosn­ingar. 

Í könnun Gallup sem birt var á fimmtu­dag kom skýrt fram að Halla Tóm­as­dóttir er sá fram­bjóð­andi sem flestir lands­menn telja að hafi staðið sig best í umræð­unni und­an­farið og hún hefur einnig verið mæld sem sá fram­bjóð­andi sem nýtur sín best í kapp­ræðum. Halla er auk þess sá fram­bjóð­andi sem flestir nefndu sem fyrsta val­kost við þann sem þau styðja nú í könnun Maskínu í vik­unni, eða 23,6 pró­sent. Þar mæld­ist Katrín lægst þeirra fimm sem mæl­ast með tveggja stafa fylgi, en ein­ungis 12,4 pró­sent svar­enda nefndu hana sem sinn „fram­bjóð­anda B“. 

Þá á Halla Tóm­as­dóttir sögu frá því í kosn­ing­unum 2016, þar sem hún var líka í fram­boði, sem gefur henni byr undir báða vængi. Þá mæld­ist hún með 11,8 pró­sent fylgi rúmri viku fyrir kosn­ingar og var þá rúm­lega 40 pró­sentum á eftir Guðna Th. Jóhann­essyni í könn­unum. Þegar atkvæði voru talin á kjör­dag fékk Halla 27,9 pró­sent þeirra en for­skot Guðna end­aði í ein­ungis 11,2 pró­sentu­stigum. 

Þau þrjú sem eru nú með um 18 pró­sent fylgi horfa ugg­laust til ofan­greindra talna, og reynsl­unnar frá kosn­ing­unum 2016, og von­ast til þess að ná að hífa sig nægj­an­lega langt frá hinum tveimur til að telj­ast helsti val­kost­ur­inn við Katrínu á kjör­dag. 

Vill færa sig um eitt sætiKatrín Jak­obs­dóttir sat rík­is­ráðs­fundi sem for­sæt­is­ráð­herra frá 2017 og þangað til snemma í apríl. Nú vill hún færa sig um eitt sæti á þeim fundum og setj­ast í stól­inn sem Guðni Th. Jóhann­es­son hefur setið í frá 2016.

Kannanir benda enda til þess að Katrín, sem mælist óvin­sæl hjá þeim sem styðja hana ekki, eigi ekki mikið fylgi inni á meðan að hin þrjú geta öll vænst þess að stór hluti kjós­enda geti hugsað sér að færa atkvæði sitt yfir á þau. 

Hvað er kosningaspáin?

Kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar er unnin í sam­starfi við dr. Baldur Héð­ins­son. Hann hefur keyrt kosn­inga­spálíkan sem hann smíð­aði fyrir fyr­ir­renn­ara Heim­ild­ar­innar í öllum kosn­ingum sem fram hafa farið á Íslandi síð­ast­lið­inn ára­tug, og mun gera það í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna einnig. 

Líkanið miðar að því að setja upp­lýs­ingar sem skoð­ana­kann­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar reglu­lega í Heim­ild­inni, jafnt á prenti og vef, í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár