Blessing Newton leitaði skjóls á Íslandi fyrir sex árum segist hafa verið að flýja mansal. Hún er fædd í Nígeríu en var nokkrum áður en hún flúði til Íslands seld í mansal þaðan til Ítalíu. Hún flúði þaðan til Íslands árið 2018.
Nú stendur til að senda Blessing og tvær aðrar nígerískar konur sem einnig voru þolendur mansals, frá Íslandi á morgun. Að sögn Þorsteins Silva lögmanns Blessing eru þær nú í varðhaldi á Hólmsheiði.
Brottvísun stefnir lífi í hættu
Í læknisvottorði sem er dagsett 11. maí, eða í gær, segir að Blessing hafi undanfarin ár verið í mati og rannsóknum á Kvennadeild Landspítalans vegna blæðinga um leggöng og kviðverkja. Greint hafi verið hjá henni æxli í legi, eitt stórt og fimm minni. Segir þar að umtalsverður vöxtur hafi verið á stærsta æxlinu síðustu tvö ár og að í ómskoðun í lok apríl síðastliðinn hafi verið staðfest að um verulega stórt æxli í kviðarholi sé að ræða, það nái vel upp fyrir nafla.
Þá segir í læknisvottorðinu að lífsnauðsynlegt sé að Blessing hafi greiðan aðgang að bráðaþjónustu sérhæfðra kvennadeilda á sjúkrahúsi. Hún þurfi þétt eftirlit, blóðprufur og blóðgjöf eða járngjafir í æð þegar þess þurfi með. „Eins og staðan er núna er nánast öruggt að hún muni þurfa sérhæfða hjálp vegna æxlanna í kviðarholi og bara tímaspursmál hvenær hún fær aftur einkenni um alvarlegt blóðleysi og þarf blóðgjöf án tafar.“ Þetta staðfesti sérfræðingar í kvensjúkdómalækningum, segir í læknisvottorðinu.
„Brottvísun mun stefna lífi sjúklingsins í alvarlega hættu“
Þá segir þar að þannig sé ljóst að „brottvísun mun stefna lífi sjúklingsins í alvarlega hættu komi hún til framkvæmdar á núverandi tímamarki.“ Læknirinn sem undirritar vottorðið starfar á Landspítala og segir í lok bréfsins að það sé mat hennar að ,,óforsvaranlegt sé með öllu út frá læknisfræðilegu sjónarmiði að framkvæma brottvísun við þær aðstæður sem til staðar eru í dag“.
Vistuð á Hólmsheiði
Þorsteinn Silva, lögmaður konunnar segir að vottorðið sé þess eðlis að ekki sé annað hægt en að fresta framkvæmd brottvísunar enda hafi það verið gert í öðrum málum þar sem sambærilegar aðstæður og vottorð hafi legið fyrir.
Hann segir að heilsufar Blessing hafi varið ört versnandi og að líf hennar sé í hættu. „Hún er gæsluvarðhaldi í fangelsinu á Hólmsheiði,“ segir Þorsteinn spurður hvar hún dvelji núna.
Hann segir að Blessing og hinar nígerísku konurnar tvær verði að óbreyttu sendar úr landi á morgun, mánudag.
Athugasemdir (1)