Örlæti Haraldar kostar ríkissjóð yfir hálfan milljarð

Rík­is­sjóður situr uppi með yfir 500 millj­óna króna reikn­ing eftir að Haraldur Johann­es­sen, fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri, hækk­aði líf­eyr­is­rétt­indi útval­inna und­ir­manna sinna um helm­ing, án þess að hafa til þess heim­ild. Þetta er nið­ur­staða meiri­hluta Hæsta­réttar sem kallar verk Haraldar „örlæt­is­gjörn­ing“. Stór hluti þess­ara und­ir­manna Haraldar skrif­aði undir opin­bera stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við hann stuttu síðar. Samn­ing­arnir standa samt því und­ir­menn­irnir vissu ekki betur en að Haraldur mætti gera þá. Ummæli tveggja ráð­herra hafi styrkt þá trú þeirra.

Örlæti Haraldar kostar ríkissjóð yfir hálfan milljarð

Þriðju­dag­inn 9. apríl síð­ast­lið­inn sendi Kjara- og mannauðs­sýsla rík­is­ins, sem starfar í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, tölvu­póst til ráðu­neyt­is­stjóra allra 12 ráðu­neyta stjórn­ar­ráðs­ins og for­stöðu­manna allra rík­is­stofn­ana. Yfir­skrift hans var: „Tilmæli vegna dóma Hæsta­réttar Íslands.“

Loka­orðin í þessu erindi fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins voru:

„Að lokum vill Kjara- og mannauðs­sýsla rík­is­ins leggja áherslu á að ráðu­neytin sinni yfir­stjórn­unar- og eft­ir­lits­skyldum sínum til að koma í veg fyrir örlæt­is­gjörn­inga af þessum toga.“

Kjósa
64
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Ótrúlegt að embættismaður í lýðræðisríki geti skuldbundið samfélagið án samþykkis samfélagsins!
    Hverjum á að treysta ef ekki er farið eftir Hæstarétti?
    Getur verið að stjórnendum samfélagsins sé endanlega rúin öllu trausti?
    6
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er gott að vera innsti koppur í búri þó það sé búið að skíta í hann. Líkur sækir líkan heim.
    7
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Það eru engin takmörk fyrir spillingu innan Sjálfstæðisflokksins. Þetta vita allir hinir flokkarnir en passa sig á að ganga ekki of langt í að koma upp um þá. Pólitíkusar eru flestir hverjir sjálfhverfir eiginhagsmunapotarar og það er að kosta komandi kynslóðir öll bjargráð.

    VIÐ ÞURFUM að sópa þessu liði í burtu frá kjötkötlunum, VIÐ VERÐUM að gildistaka nýjju stjórnarkrána ósnikkaða efnislega af misvitrum og óheiðarlegum stjórnmálamönnum.

    VIÐ VERÐUM,

    Svo langar mig að vita hvort þessi Haraldur Jóhannesen verði látinn bera einhverja ábyrgð?

    Mér er sagt að ég sé að skapa mér óvild margra. Það er sárt, en ég læt mig hafa það. Ég er engu að ljúga og á engra hagsmuna að gæta.
    13
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Dýr skyldi Haraldur allur

Ráðherrum ítrekað bent á að gjöf Haraldar stæðist ekki skoðun
AfhjúpunDýr skyldi Haraldur allur

Ráð­herrum ítrekað bent á að gjöf Haraldar stæð­ist ekki skoðun

Upp­lýs­ingar úr fjár­mála­ráðu­neyt­inu styðja ekki þá full­yrð­ingu Bjarna Bene­dikts­sonar að ráðu­neytið teldi rík­is­lög­reglu­stjóra hafa haft heim­ild til „útfærslu samn­inga“ sem sagðir eru gjafagjörn­ingar. Í ráðu­neyt­inu voru þvert á móti veru­legar efa­semdir um að sam­komu­lagið stæð­ist. Ráðu­neyt­is­stjóri í dóms­mála­ráðu­neyt­inu og lög­reglu­stjórar töldu rétt að skoða hvort Haraldur hefði brotið lög.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár